29.05.1980
Sameinað þing: 69. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3242 í B-deild Alþingistíðinda. (3228)
205. mál, launasjóður rithöfunda
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég get ekki annað en brosað að því þegar hæstv. ráðh. eru farnir að tala um að eitt eða annað sé þinglegt eða ekki þinglegt. Það hefur verið þannig staðið að málum upp á síðkastið að ætla má að a. m. k. hæstv. ráðh. mundu sem minnst um það tala hvað sé hæfilegt í þingsölum og hvað ekki. Vil ég rétt minna á að m. a. hefur það komið fram í máli ýmissa úr ríkisstj. að þessu þinghaldi hefði betur verið lokið fyrir viku eða svo, viku eða tíu dögum, vegna þess að það sé um ekkert að ræða, vegna þess að búið sé að afgreiða allt í þinginu nema húsnæðismálafrv. og það sé bara málþóf sem hér fari fram. Þó heyrðist mér að hæstv. menntmrh. fyndist ekki vanþörf á að ræða t. d. samgöngumálin, enda ekki undarlegt ef á það er litið að samkv. þeirri vegáætlun, sem á að reyna að starfa eftir, kemur minna fé í kjördæmi hans en gert var ráð fyrir í þeirri áætlun sem samþ. var fyrir ári. Væri ánægjulegt ef hægt væri að tala um vegaframkvæmd samgöngumálanna á þeim grundvelli að þess væri að vænta að einhver leiðrétting fengist á því. En það er ekki við því að búast.
En málið, sem hér liggur fyrir, er afskaplega einfalt. Störf þingsins hafa verið með þeim hætti að mál hafa ekki fengist tekin á dagskrá á þingfundum. Til hvers er verið að vísa þessu máli til allshn.? Gerir hæstv. menntmrh. ráð fyrir því að kollega hans, Páll Pétursson, muni kalla n. saman og gera eitthvað í málinu — eða hvað? Til hvers á að vísa því til allshn.? Það er ekki til neins, ekki til nokkurs skapaðs hlutar. Annað hvort er að þessi till. nái fram að ganga á þessum fundi eða ekki. Ég vek athygli á því, að tveir af flokksbræðrum ráðh., þeir Guðmundur G. Þórarinsson og Davíð Aðalsteinsson, eru meðflm. að þessari till. Þeir eru að vísu fjarverandi og þess vegna auðvelt verk fyrir þá framsóknarmenn, sem hér eru eftir, að fara einhverjum hæðilegum orðum um þetta mál. Og hvernig í ósköpunum á Alþ. að álykta að skipuð skuli nefnd eftir tilnefningu þingflokkanna og skila áliti er næsta reglulegt Alþingi kemur saman nema málið fáist tekið til afgreiðslu á þessu þingi?
Ég sé ekki, ef á að framkvæma það sem felst í þessari tillgr., að nokkur leið sé að komast undan því að um það verði atkvgr. nú þegar. Ég held að það sé alveg óhjákvæmilegt. Ég held þess vegna fast við það að málið komi til afgreiðslu nú.
Ég man eftir fordæmi þess frá Sþ. að flm. till. hafi óskað eftir því að þáltill. fengi þegar í stað afgreiðslu og yrði ekki vísað til n. þó að um það kæmi fram till. Ég vil skírskota til þess fyrri úrskurðar og vænti þess, að hæstv. forseti sjái sér kleift að fylgja því fordæmi, sem aðrir forsetar Sþ. hafa gefið á undan.