10.01.1980
Sameinað þing: 9. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 234 í B-deild Alþingistíðinda. (341)

Umræður utan dagskrár

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Eftir að hafa hlustað á ræðu hæstv. fjmrh. sé ég ekki betur en ég og aðrir gamlir sveitarstjórnarmenn þurfum að fara í læri til hæstv. ráðh., þar sem kenningar hans varðandi samskipti ríkis og sveitarfélaga eru nokkuð sem ég og sjálfsagt margir aðrir fáum alls ekki skilið.

Það virðist að í þessum umr. hafi ekki fengist skýringar á einu atriði í sambandi við samskipti ríkis og sveitarfélaga sem mjög hefur verið spurt um einmitt núna síðustu daga ársins, þ.e. hvers vegna áætlun um framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga breyttist skyndilega síðustu dagana fyrir jól. Það hafði verið sett fram í öllum bréfum og erindum til sveitarfélaganna um þetta mál, bæði frá félmrn. og Þjóðhagsstofnun, áætlun um ársframlag úr Jöfnunarsjóði til sveitarfélaga sem yrði 30 þús. kr. á hvern íbúa. Skyndilega rétt fyrir jólin, þegar sveitarfélögin áttu að fá síðustu greiðslur eða lokagreiðslur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, var þessi upphæð allt í einu orðin 28 þús. á íbúa. Þarna er um að ræða stórkostlegar fjárhæðir sem sveitarfélögin voru búin að byggja afkomu sína og áætlanir á og búin að gera greiðsluáætlanir og skuldbindingar við aðra í þjóðfélaginu um að standa í skilum á þeim grundvelli. Þetta mál hefur ekki komið hér til umr., en mér þótti rétt að láta það blandast inn í þær umr. sem hér hafa farið fram um fjármálasamskipti ríkis og sveitarfélaga.

Mér þótti það furðuleg fullyrðing og ég undrast þá yfirlýsingu hæstv. fjmrh. að endurtaka enn hér að öll laun og yfirvinna hafi verið greidd sveitarfélögum fyrir áramót, allir reikningar greiddir sem borist höfðu fyrir 12. des. 1979. Eru fræðslustjórar í landinu að fara með rangt mál, og vita sveitarstjórnarmenn ekki hvað eru fjármál sveitarfélaga? Ég spyr. Það kom nefnilega fram hjá hæstv. menntmrh. áðan önnur skýring á málinu, sem hæstv. fjmrh. hefði átt að vera búinn að kynna sér. Hann sagði einfaldlega að reglum hefði verið breytt nú í lokin, þannig að sveitarfélögin fengju ekki greiðslu fyrr en eftir á. Hafði menntmrn. tilkynnt fræðslustjórum eða sveitarstjórnarmönnum um þá ákvörðun að breyta þessum reglum? Ég held ekki.

Í sambandi við þessi mál vil ég segja það, að ég mun beita mér fyrir því, að Samband ísl. sveitarfélaga láti gera nákvæma úttekt á fjárhagsstöðu sveitarfélaga gagnvart ríkissjóði til birtingar. Mér finnst að slíkt sé nauðsynlegt, ekki síst þar sem hér hefur verið fullyrt að sú staða væri síst lakari en áður. Hún er þó ekki nógu góð, því að alla tíð hefur hún verið slök, það get ég vottað.

Ég vil fagna því sérstaklega að umr. skuli hafa farið fram um samskipti ríkis og sveitarfélaga varðandi greiðslu skólakostnaðar. Það var tímabært. Þessi mál hafa í áraraðir verið þung í skauti sveitarfélögunum í landinu, sem hafa oftast orðið að bera stórar fjárhagslegar byrðar af skólakostnaði, þar sem ríkið hefur ávallt — ég undirstrika: hefur ávallt verið á eftir með greiðslu síns hluta. Það dróst jafnvel fram á mitt næsta ár. Var það því mikill höfuðverkur sveitarstjórnarmanna að standa vikum saman í útistöðum við fjármáladeild menntmrn. og fjmrn. að fá greiðslu fyrir hlut ríkisins sem sveitarsjóðir voru búnir að greiða fyrir fram. En með lögunum um grunnskóla, sérstaklega að því er varðar fræðslustjóraumdæmin, breyttist þetta verulega til batnaðar. Fræðslunefndir kjördæmanna, fræðsluskrifstofur og fræðslustjórar hafa tekið þessi mál fastari tökum, og með aðstoð sveitarstjórnarmanna hefur verið unnið skipulega að því að byggja upp nýtt kerfi þar sem fjármálaþáttur grunnskóla færist heim í héruðin til fræðsluskrifstofanna undir umsjón fræðslustjóranna að verulegu leyti.

Ég tel tvímælalaust að stofnun fræðslustjóraembætta og fræðsluskrifstofa í landshlutunum í beinum tengslum við landshlutasamtök sveitarfélaga sé mjög þýðingarmikið spor í dreifingu valds og verði tvímælalaust til að efla sjálfstæði sveitarfélaga í landinu ef rétt verður á haldið. En frumatriðið í þessu máli er að ríkissjóður sjái til þess, að fjármagn í þessar breytingar sé í fullu samræmi við verkefnið og greitt sé á réttum tíma. Það er aðalatriðið. Á því veltur framtíð skipulags fræðslumála úti um landið. Það verður að tryggja að svo verði, á það vil ég leggja höfuðáherslu. Það er óþolandi ástand að reikningshaldarar skóla, t.d. þeir sem sjá um sameiginlegan rekstur heimavistarskóla, skólaakstur o.fl., skuli þurfa að útvega á eigin reikning stórar fjárhæðir til að hægt sé að standa í skilum vegna vangreiðslu ríkissjóðs, eins og mýmörg dæmi eru um og væri hægt að tíunda hér. Ég verð því að endurtaka það, að ég lýsi furðu minni á yfirlýsingu hæstv. fjmrh. í fjölmiðlum varðandi greiðsluskil á reikningum vegna skólakostnaðar, þar sem augljóst er að ríkissjóður mun skulda sveitarfélögum um þessi áramót — ég þori að fullyrða á annan milljarð kr. Og ég vil benda hæstv. ráðh á að það er ekkert smámál í þessu tilfelli fyrir lítil sveitarfélög eða þá sem stjórna litlum sveitarfélögum þó upphæðin sé jafnvel ekki nema 1–5 millj., en hann viðhafði þau ummæli áðan að þarna væri um smáupphæðir að ræða. Þetta eru stórkostleg vandamál í litlum sveitarfélögum sem ekki verður við unað.

Ég ætla ekki að fara nákvæmlega í það sem varðar Vesturland í þessu máli. Ég veit með vissu og það eru öruggar heimildir fyrir því, að ríkissjóður skuldaði fræðsluumdæmi Vesturlands 47 millj. við síðustu áramót aðeins í sambandi við beinan skólakostnað.

En að lokum vil ég segja það, að ég treysti því, að sú þróun verði í samskiptum ríkis og sveitarfélaga, bæði hvað varðar þessi mál og önnur sameiginleg verkefni í sambandi við ýmsa opinbera þætti ríkis og sveitarfélaga, að slík samskipti verði svo traust að það styrki stöðu sveitarfélaga og byggðajafnvægi í landinu.