10.01.1980
Sameinað þing: 9. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 258 í B-deild Alþingistíðinda. (351)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Jón Helgason):

Vegna ummæla hv. síðasta ræðumanns vildi ég aðeins segja það, að hv. 11. þm. Reykv. tjáði mér að hann ætlaði að spyrjast fyrir um þetta mál af öðrum ástæðum en fram koma í fsp. þeirri sem hv. 1. landsk. hefur lagt fram og ég benti honum á að þegar væri komin fram, þ.e. hvort um fleiri svona embættisveitingar yrði að ræða á næstu dögum, hann mundi að öðru leyti ekki ræða það sem komið hefði fram í fsp. hv. 1. landsk. þm.

En ég ætlaði af fleiri ástæðum en vegna beiðni hv. 4. þm. Austurl. að fresta þessari umr. nú. Hins vegar hefur hæstv. félmrh. kvatt sér hljóðs, og ég tel rétt að hann fái að taka til máls áður en þessari umr. er frestað. (SvH: Af hverju? Ég sé enga ástæðu til þess.)