10.01.1980
Sameinað þing: 9. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í B-deild Alþingistíðinda. (353)
Umræður utan dagskrár
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Ég bað um orðið utan dagskrár til þess að koma fram fsp. til hæstv. sjútvrh. þess efnis, hvað liði afgreiðslu eða ákvörðun Verðlagsráðs um fiskverð sem átti að taka gildi 1. jan. s.l., en samkv. ósk Verðlagsráðsins eða yfirnefndar Verðlagsráðs heimilaði sjútvrn. frest til 8. jan. og síðan aftur annan frest, sem sjútvrn. ákvað sjálft, til 18. jan. Nú veit ég það mætavel og hæstv. sjútvrh. einnig og sennilega allir þm. og fjöldi annarra manna, að fiskverð liggur ekki fyrir vegna þess að það er í algerðri sjálfheldu, vegna þess að lögin um olíugjaldið runnu út 31. des. s.l. og ekkert hefur verið lagt fram í þessum efnum á hv. Alþ. Ég hef spurt þm. úr öllum stjórnmálaflokkum utan ríkisstjórnarflokksins, hvort nokkuð hafi verið við þá rætt eða þessa flokka um að hraða afgreiðslu þessa máls, þannig að fiskverð geti legið fyrir mjög fljótlega. Þeir hafa svarað því til, að ekkert hafi komið frá ríkisstj. eða hæstv. sjútvrh.
Ég furða mig á því, að það skuli ekki vera farið að ræða við þingflokkana um þetta mikilsverða mál. Þó að ekki liggi fyrir myndun meirihlutaríkisstjórnar, þá verður auðvitað starfsstjórn á hverjum tíma að hafa frumkvæðið að slíkri lagasetningu. Ég tel það jafnframt skyldu annarra þingflokka að reyna að greiða fyrir afgreiðslu slíks máls sem þessa, þó að menn séu kannske ekki alveg á eitt sáttir um það, hvernig eigi að afgreiða málið. En olíuvandinn er það mikill, eins og áður hefur verið minnst á, að fiskverð verður ekki ákveðið nema það liggi fyrir, hver er vilji og ákvörðun stjórnvalda og Alþingis í þessum efnum. Það er auðvitað ýmislegt fleira, sem þarna kemur inn í, sem Verðlagsráðið bíður eftir, og það liggur auðvitað alveg ljóst fyrir, að yfirnefnd Verðlagsráðsins tekur enga ákvörðun um fiskverð nema þetta liggi fyrir ásamt fleiri upplýsingum.
Ég vona að enginn þm. liggi mér á hálsi fyrir að hafa kvatt mér hljóðs utan dagskrár vegna þessa máls, því að þetta er aðkallandi mál og ekki hægt að bíða eftir því að bera fram fsp. með venjulegum hætti. Ég fyrir mitt leyti vil gera mitt besta, þegar lausn kemur frá sjútvrn. eða ríkisstj. og lagt er fram frv. um þessi efni, til að Alþ. hraði afgreiðslu þess máls. Það hefur löngum gengið allmikið á, ef fiskverð hefur ekki verið ákveðið þegar það átti að taka gildi. Það hefur oft komið fyrir, að liðið hafa nokkrir dagar frá því að fiskverð átti að taka gildi þar til það var ákveðið, en hefur líka gætt allmikils óróa. Nú er málum svo háttað, að hvorki hið almenna fiskverð né loðnuverð liggur fyrir þó liðnir séu 10 dagar af þessu ári, og því eru menn farnir að verða órólegir, sjómenn, útvegsmenn og eiginlega allir sem hér eiga hlut að máli. Á þessu er vakin athygli með þessum orðum í þeim tilgangi að ýta undir að málin séu lögð fyrir Alþ. til úrlausnar, þannig að fiskverð geti legið fyrir, og í trausti þess að þingflokkar taki höndum saman um að afgreiða fljótt og vel þær till. sem fram koma frá hæstv. ríkisstj. og hæstv. sjútvrh.
Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta, en legg þessa fsp. hér með fyrir hæstv. sjútvrh.