10.01.1980
Sameinað þing: 9. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 262 í B-deild Alþingistíðinda. (356)

Umræður utan dagskrár

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. 1. þm. Vestf. fyrir að hreyfa þessu máli, þó að það hefði auðvitað verið eðlilegra að hæstv. ríkisstj. og þeir menn, sem bera ábyrgð á henni, hefðu hreyft þessu máli fyrst af öllum við þá flokka sem eiga fulltrúa á hinu háa Alþingi. Það er nú liðinn nærri hálfur mánuður frá þeim tíma sem ætlast er til að fiskverð sé ákveðið, og þó að svo sé munu sjútvn. Alþingis ekki hafa fengið nein gögn um stöðu sjávarútvegsins nú um áramótin, ef ég veit rétt, né gögn um það, sem mestu skiptir í þessu, á hvaða efnahagslegum staðreyndum á að byggja fiskverðsákvörðun. Það er auðvitað algerlega útilokað fyrir hæstv. ríkisstj., þrátt fyrir allt og allt, að ætlast til þess við þær aðstæður sem nú eru í landinu, að Alþ. taki við frumvörpum frá henni í svo mikilvægum málum eins og þessum í nánast færibandaafgreiðslu þegar hlutirnir eru komnir í óefni, án þess að áður hafi farið fram athugun á þessum málum af þeim flokkum sem fulltrúa eiga á hv. Alþingi.

Það er vitaskuld algerlega útilokað, úr því sem komið er, að fiskverð verði ákveðið í næstu viku eða næstu 10 dögum, nema eitthvað alveg sérstakt gerist. Við höfum engin gögn í höndunum til að átta okkur á grunnforsendum þessa máls. Olíugjaldið hefur fallið niður, féll niður nú um áramótin, og heildarstaða sjávarútvegsins breytist þar af leiðandi ákaflega mikið nú um áramótin. Ég tel alveg augljóst að þetta muni taka tíma, og ég kom hér fyrst og fremst upp í ræðustólinn til að undirstrika það, að þeir, sem sitja í starfsstjórn, verða auðvitað að standa þannig að málum að eðlilegur undirbúningur að þeim geti farið fram í stjórnmálaflokkunum. Það er ekki hægt fyrir hæstv. ríkisstj., hvernig svo sem hún lítur á sig, að gera þá kröfu til Alþingis að það — nánast að segja með færibandavinnubrögðum — taki við hverju sem er og hraðafgreiði það gegnum þingið.

Við höfum dæmi um þetta af öðrum vettvangi. Hæstv. fjmrh. lagði fram frv. rétt fyrir áramótin um skattamál, ákaflega viðamikið og flókið frv. Hann lét sér detta það í hug, hæstv. ráðh., að það yrði afgreitt á þeim sólarhringum sem þá lifðu eftir fram að jólahátíð. Svona ganga málin ekki fyrir sig. Og ég kom hér upp til að undirstrika, að ef þetta á að ganga eðlilega verður aðdragandinn að vera annar en í þessu tilviki.

Ég sé það hins vegar að hæstv. ríkisstj. er að sinna öðrum hlutum sem eru ekki beint bundnir við brýnar dagsetningar eins og fiskverðið. Svo að ég nefni bara eitt dæmi, þá er í Morgunblaðinu fyrir hátíðarnar greint frá því, að þessi starfsstjórn, sem hefur náttúrlega engar heimildir til þess, hafi tekið ákvörðun um það að undirbúa aðild Íslands að Alþjóðaorkumálastofnuninni. Þessi hæstv. ríkisstj. — með fullri virðingu fyrir öllum þeim mönnum sem þar sitja — hefur ekki nokkra minnstu heimild til að taka á sig stjórnskipulegar ábyrgðir varðandi mikilvægt mál eins og þetta. Hér var ég aðeins að nefna dæmi, ekki vegna þess að ég telji að ekki geti komið til greina að athuga þessa alþjóðlegu orkumálastofnun. Ég var að nefna hér dæmi um það, að mér sýnist hæstv. ríkisstj. gefa sér tíma til að sinna málum af þessu tagi, enda þótt ekki sé eðlilega staðið að undirbúningi máls eins og þess sem hér er um að ræða, fiskverðsins, sem er auðvitað afskaplega stórt í öllu okkar efnahagsdæmi og þrýstir á flestallar helstu og mikilvægustu stærðir efnahagslífsins.