15.01.1980
Sameinað þing: 11. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 305 í B-deild Alþingistíðinda. (380)
212. mál, beinar greiðslur til bænda
Fyrirspyrjandi (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Herra forseti. Í lok þings á liðnu vori var samþ. þáltill., sem hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að hlutast til um að settar verði reglur um rekstrar- og afurðalán landbúnaðarins, sem tryggi að bændur fái í hendur þá fjármuni, sem þeim eru ætlaðir, um leið og lánin eru veitt.
Jafnframt láti ríkisstj. fara fram athugun á því, hvernig heppilegast sé að koma við breytingum á greiðslum útflutningsbóta og niðurgreiðslna, þannig að þær nýtist betur.“
Þetta var sem sagt samþ. 22. maí 1979 hér í Sþ. með miklum atkvæðamun.
Till. um þetta mál hafði verið flutt á tveimur þingum áður, en sú till., sem samþ. var í fyrra, var flutt af alþm. Eyjólfi Konráð Jónssyni, Jónasi Árnasyni og Sighvati Björgvinssyni og samþ. orðrétt eins og hún var flutt, og hef ég gert grein fyrir hvernig hún hljóðaði. Með þessari till. fylgdi nokkur grg., sem mig langar að hlaupa á, með leyfi forseta:
„Till. um greiðslu rekstrar- og afurðalána beint til bænda hefur verið flutt á tveimur síðustu þingum, en í hvorugt skiptið verið útrædd. Skömmu fyrir þinglok í vor var till. þó afgreidd frá alshn., og mælti meiri hl. n. með samþykkt hennar og því orðalagi sem á henni er nú þegar hún er flutt þriðja sinni.
Fyrri liður till. er ljós, bændur skulu fá fjármuni sína í hendur um leið og lánin eru veitt, en óheimilt verði að halda peningunum eftir í verslunar- eða afurðasölufyrirtækjum.
Í samstarfsyfirlýsingu núv. ríkisstj. segir:
„Rekstrar- og afurðalánum verði breytt þannig, að bændur geti fengið laun sín greidd og óhjákvæmilegan rekstrarkostnað svipað og aðrir aðilar fá nú.“
Þessi yfirlýsing er góðra gjalda verð og sýnir, að réttlætið er að sigra. Hún gengur þó of skammt, því að unnt er að hártoga hana og halda eftir í fyrirtækjunum hluta þeirra fjármuna, sem bændur eiga að fá beint í hendur. Landbrh. hefur greint frá því, að ný ákvæði um þetta efni ættu að geta komið til framkvæmda áður en lokið er greiðslu afurðalána 20. nóv. n.k. Hann telur málið þó ekki einfatt og ætlar að skipa nefnd til að fjalla um málið. Eðlilegt er að Alþ. hafi hraðan á og taki af öll tvímæli um, hvað fyrir því vaki, með samþykkt þessarar tillögu.
Síðari hluti þáltill. er ekki jafnótvíræður. Ljóst er þó hver tilgangurinn er. Miklum fjármunum er varið til útflutningsuppbóta og niðurgreiðslna. Þetta fé, sem bændur eiga, berst þeim seint og illa. Á þessu verður að ráða bót og tryggja að bændur fái peningana beint, um leið og ríkissjóður reiðir þá af hendi. Væntanlega er hér um að ræða upphæð sem nemur meira en 3 millj. kr. á meðalbú á ári eða yfir 250 þús. á mánuði til hvers bónda. Rekstrar- og afurðalánin munu nema svipaðri upphæð. Þannig er nú valsað með fjármuni bænda, sem nema a.m.k. 6 millj. kr. á meðalbú, í lengri eða skemmri tíma, meira og minna eftirlitslaust“.
Hér lýkur grg. sem fylgdi till. í fyrra. Þessi upphæð, sem hér er nefnd, er auðvitað orðin miklu hærri nú. En nú langar mig og vafalaust þm. alla að fá að vita hvað hafi orðið um þessa till. og hvernig framkvæmd hennar hafi gengið, og því er spurt:
„1. Hvaða reglur hafa verið settar um rekstrar- og afurðalán landbúnaðarins, sem tryggi að bændur fái í hendur þá fjármuni, sem þeim eru ætlaðir, um leið og lánin eru veitt?
2. Hvernig hefur framkvæmd þessara reglna gengið?
3. Hvað líður athugun á breytingum á greiðslu útflutningsbóta og niðurgreiðslna, þannig að þær nýtist betur?
4. Hefur ríkisstj. fjallað um athuganir Stéttarsambands bænda á því, hvernig haga mætti beinum greiðslum útflutningsbóta og niðurgreiðslna?“
Hér er átt við bréf Stéttarsambands bænda frá 6. mars 1979, þar sem um þetta er fjallað mjög ítarlega og bent á ýmsar leiðir til að koma málum fyrir á heppilegri og skynsamlegri hátt en tíðkað hefur verið?
„5. Tók fyrrv. ríkisstj. einhverjar ákvarðanir í þessum málum? Ef svo er, hverjar voru þær?“
Ég vænti svara við þessum spurningum.