15.01.1980
Sameinað þing: 11. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 313 í B-deild Alþingistíðinda. (388)

212. mál, beinar greiðslur til bænda

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Ég hélt að hv. fyrirspyrjandi hefði dregið lærdóma af hvernig þessi mál hafa gengið, og það hefði verið best fyrir hann að málið gleymdist alveg. Þetta var rætt í þinginu í fyrra og var allt saman skýrt einmitt af fulltrúum bænda og þeim sem þekkja best til.

Ég hélt satt að segja að fyrirspyrjandi hefði lesið þær umsagnir sem komu frá bönkunum um þáltill. T.d. voru nöfn Magnúsar Jónssonar og Þórhalls Tryggvasonar undir umsögn Búnaðarbankans, þannig að það var ekkert undarlegt þó að hv. þm. Friðjón Þórðarson tæki þetta mál og það, sem fyrirspyrjandi sagði um umsagnir bankanna, á þann veg sem hann gerði. En það kemur sem sagt í ljós að þm. hefur ekki einu sinni séð ástæðu til að lesa þessar umsagnir.

Það er enginn tími til að ræða þetta hér. En komið hefur í ljós enn þá betur en áður allt það sem við sögðum um þetta mál í fyrra. Þá var þingheimur varaður við að samþykkja þessa till. En því miður kom hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson þessu óheillaverki fram.