15.01.1980
Sameinað þing: 11. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 328 í B-deild Alþingistíðinda. (400)
57. mál, umboðsfulltrúar dóms- og kirkjumálaráðuneytisins
Félmrh. (Magnús H. Magnússon):
Herra forseti. Hv. 11. þm. Reykv. fór með ósannindi þegar hann vitnaði í ummæli mín fyrir nokkrum dögum. Hann sagði að ég hefði sagt að ég mundi skipa í embætti eins og ég gæti. Það er ekki rétt. Ég sagði að ég mundi skipa í embætti eftir því sem nauðsyn krefði, en meira ekki. Og hann segir núna að ég hafi orðið þess valdandi að Flugleiðir hefðu meiri hluta í flugráði. Ég veit ekki til að það hafi verið nema einn starfsmaður Flugleiða af þeim fjórum —tveimur aðalmönnum og tveimur varamönnum - sem ég skipaði í flugráð. En ég lagði spurningu fyrir hv. 11. þm. Reykv. á síðasta fundi, sem hann svaraði ekki þá, en hefði getað svarað núna. (ÓRG: Svarið er nei.) Það getur vel verið að hann treysti sér til að segja nei núna, af því að búið er að skipa viðkomandi aðila.
Þá spurði ég hann hvort mér væri heimilt að skipa Margréti Margeirsdóttur deildarstjóra í félmrn. á grundvelli laga um aðstoð við þroskahefta, þar sem gert er ráð fyrir að deildarstjóri í félmrn. fari með þau mál. Þetta er af öllum aðilum talið nauðsynlegt að gera og þolir enga bið, og ég hafði fullar heimildir bremsunefndar, ráðningarnefndar, fyrir því. Ég held að hann geti ekki vænt Margréti um það að vera einhver sérstakur gæðingur Alþfl. — M.ö.o.: það, sem hann hélt fram í byrjun tölu sinnar um það sem ég sagði, var ósatt.