15.01.1980
Sameinað þing: 11. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 329 í B-deild Alþingistíðinda. (402)
57. mál, umboðsfulltrúar dóms- og kirkjumálaráðuneytisins
Dómsmrh. (Vilmundur Gylfason):
Herra forseti. Vegna ítrekunar á 3. spurningu hv. þm. Péturs Sigurðssonar vil ég segja það, að ég kann ekki kjarasamninga utan að. En ég endurtek það sem fram kom, að launakjör eru samkv. 113. flokki þeirra samninga sem nefndir hafa verið.
Að öðru leyti vil ég segja það, að það starf, sem hér er um að ræða, var auglýst í októbermánuði — ég held ég fari áreiðanlega rétt með frekar en í byrjun nóvembermánaðar, og það að setja upp starf sem þetta er pólitísk ákvörðun. Þessa pólitísku ákvörðun bar ég upp í ríkisstj. og hún var þar samþ. Og að reyna að teng ja þetta því, að verið sé að koma manni, sem féll í kosningum sem fram fóru löngu síðar, inn í embætti, það er auðvitað fráleitt.
Hins vegar tek ég auðvitað undir það sem fram kom hjá hv. 5. þm. Reykv., Ólafi Jóhannessyni, það er mikill munur á þessu starfi annars vegar og starfi óháðs umboðsmanns hins vegar. Og grundvallarmunurinn er sá, að starf umboðsmanns Alþingis — eins og hugmyndir um það starf hafa verið hjá að ég hygg öllum þeim sem fyrir slíkri hugmynd hafa talað — er óháð stjórnkerfinu. Þessu starfi eru auðvitað miklu þrengri skorður settar og þær helstar, að það er inni í kerfinu sjálfu. Engu að síður hygg ég að almennt sé það skynsamlega að staðið að fara hægt af stað. En um starf umboðsmanns Alþingis þarf miklu stærri ákvörðun. Um það þarf sérstaka löggjöf, það verður ekki framkvæmt innan hinnar almennu löggjafar. En ég endurtek einasta þá skoðun mína um þetta, að ég hygg að þetta starf geti auðveldlega þróast þannig að úr því verði starf umboðsmanns Alþingis. Ég endurtek það enn, að allt er þetta starf miklu þrengra, enda annað ekki hægt, en engu að síður held ég, að þetta geti þróast í þessa átt, og mínar hugmyndir standa til þess.
Það er nú einu sinni svo, að þetta veitingarvald er hjá ríkisstj. Ég endurtek það enn, að þessi ríkisstj. situr við óeðlilegar aðstæður. Við höfum 10 þm. af 60. Flokkarnir, sem stóðu t.d. að Kröfluvirkjun, hafa 50 þm., og daginn sem einhverjir koma sér saman um að mynda meirihlutaríkisstjórn hefur veitingarvaldið þar með flust til þeirra. (Gripið fram í.) Það er hjá Alþ., en meðan svo er ekki — (Gripið fram í: Hvað þarf að borga manninum í kaup?) Því hefur verið lýst nákvæmlega, hvernig réttilega og eðlilega hefur verið að þessu staðið, en meðan svo er ekki, þá situr þessi ríkisstj. með þeim réttindum og skyldum sem því fylgja.
Þær vikur sem ég hef setið í þessu rn. hafa sannfært mig um nauðsyn þess, að til sé starfsmaður sem vísi fólki um rangala þess kerfis sem stöðugt verður flóknara og flóknara. Ég hef enn fremur sannfærst um að embætti óháðs umboðsmanns er nauðsynlegt embætti, og ég vona einasta að það moldviðri, sem hér hefur verið þyrlað upp á röngum forsendum, að ég hygg, verði ekki til að varpa slíkri rýrð á þetta starf að það spilli eða eyðileggi þessa hugmynd. Ég þykist viss um að það vakir ekki fyrir þeim sem hér hafa talað, og ég endurtek þar vonir mínar að þessi umr. hafi ekki svo eyðileggjandi áhrif. (Gripið fram í: Vill ekki ráðh. svara fsp. um ráðningarnefnd?) Ég hef lýst því, að þetta starf var samþ. í ríkisstj. á sínum tíma. Mér er ekki kunnugt um það nákvæmlega, hvernig ráðningarnefnd vinnur, en þetta var samþ. af henni 3. jan. samkv. upplýsingum sem ég hef fengið.