15.01.1980
Sameinað þing: 12. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í B-deild Alþingistíðinda. (411)

11. mál, útibú frá Veiðimálastofnun

Flm. (Helgi Seljan):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. 5. landsk. þm. góðar undirtektir við þessa till. og ekki síður þær fróðlegu ábendingar sem hann miðlaði okkur af sínum mikla kunnugleika á þessum málum í heild. Ég vil taka það fram, að formið í sambandi við þetta er ekki aðalatriði. Þó að Austfirðingar hafi að vísu helst séð það til framdráttar þessu máli að koma á fót slíku útibúi, þá hafa þeir einnig hugað að því verulega að veiðifélögin þar eystra ásamt sveitarfélögunum tækju höndum saman og gerðu þarna visst átak, en engu að síður þá með ákveðnum opinberum stuðningi sem þyrfti að tryggja.

Það var gott að hv. 5. landsk. þm. kom inn á það mál sem var til umr. á þinginu í fyrra og var nærri komið í gegn, eins og hann réttilega minnti á, varðandi Fiskræktarsjóð, því að í hann mundu menn geta sótt ef hann kæmist á laggirnar og yrði svo myndarlega að málum staðið eins og þar var ráð fyrir gert. Við skulum sem sagt vona að sú hugmynd verði endurvakin af þeirri reisn, sem þar var gert ráð fyrir, og að Austfirðingar njóti þar góðs af, þó að ég viti að þeir vilji gjarnan að stuðningur hins opinbera verði þar ákveðinn og eitthvert slíkt form sem hér er lagt til verði á þessum málum, svo að þeir eigi þennan stuðning alltaf vísan, og eins að ráðgjöfin verði í tengslum við Veiðimálastofnunina.