15.01.1980
Sameinað þing: 12. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 341 í B-deild Alþingistíðinda. (413)
13. mál, byggðaþróunaráætlun fyrir Borgarfjarðarhrepp
Flm. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um byggðaþróunaráætlun fyrir Borgarfjarðarhrepp í Norður-Múlasýslu, en hana er að finna ásamt grg. á þskj. 13. Flm. að till. eru ásamt mér hv. 4. þm. Austurl., Sverrir Hermannsson, og hv. 3. þm. Austurl., Halldór Ásgrímsson. Till. er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að beita sér fyrir að á árinu 1980 verði gerð byggðaþróunaráætlun fyrir Borgarfjarðarhrepp í Norður-Múlasýslu á vegum Framkvæmdastofnunar ríkisins í samvinnu við heimamenn.
Áætlunin verði lögð til grundvallar við fjárveitingar og aðgerðir af opinbeni hálfu í þágu byggðarlagsins á árinu 1981 og framvegis.“
Í grg. með till. kemur fram rökstuðningur fyrir því, að við flm. teljum ástæðu til að sérstaklega verði tekið á málefnum þessa byggðarlags á Austurlandi með þeim hætti sem felst í till. Gagnlegt væri eflaust að róunaráætlanir væru gerðar fyrir sem flestar byggðir á Íslandi og þær verði liður í víðtækri áætlanagerð og skipulagi. Að slíkum málum er vissulega unnið af ýmsum aðilum, sveitarstjórnum og samtökum þeirra svo og á vegum Framkvæmdastofnunar ríkisins, og er það allt góðra gjalda vert. Hins vegar tel ég vanta samhæfingu í þá starfsemi og ákveðin tengsl milli þeirra aðila, er starfa að hagrænni og félagslegri áætlanagerð, og hinna, er vinna að skipulagi í þrengri merkingu. Á þessu sviði þyrfti sem fyrst að hyggja að gleggri leiðsögn en nú er með löggjöf, og þar má margt skynsamlegt sækja til leiðbeiningar frá hinum Norðurlöndunum.
Eins og nú háttar er það t.d. mjög undir hælinn lagt, hvort tekið er með áætlunum og annarri aðstoð opinberra aðila á málefnum þeirra byggðarlaga sem mesta þörf hafa fyrir þann stuðning sem af slíku má hafa, einkum ef brugðist er við í tæka tíð.
Staða Borgarfjarðar eystra er erfiðari í mörgu tilliti en annarra byggðarlaga á Austurlandi, ef frá er talin nyrsta byggð kjördæmisins, Skeggjastaðahreppur. Í grg. með þáltill. er gerð grein fyrir núverandi stöðu byggðarinnar, atvinnumálum þar og þjónustu. Þar kemur m.a. fram, að íbúum hreppsins fækkaði um nærri þriðjung á tímabilinu 1960–1975, eða úr 348 manns í 246, en síðustu árin hefur íbúatalan haldist nærri óbreytt. Meira en helmingur þeirra, sem þarna búa, er í Bakkagerðisþorpi, en í sveitinni eru nú um 20 jarðir í byggð og sækja ýmsir þaðan atvinnu í þorpið, ef atvinnu er þar að hafa á annað borð. Á sama tíma og íbúum hefur þannig fækkað í Borgarfirði síðustu áratugi hefur byggð eyðst með öllu austan og sunnan við, þ.e. í svokölluðum Víkum og í Loðmundarfirði, sem var sérstakur hreppur með nærri 90 íbúa um síðustu aldamót, og enn bjuggu þar 40 manns árið 1950, en enginn hefur búið þar síðan 1973. Í Borgarfirði og Njarðvík, sem eru í sama hreppi, er því eina byggðin á strandlengjunni frá Seyðisfirði til Héraðs, og þarf ekki að eyða orðum að þýðingu þess að efla þessa byggð til að nýta góða landkosti og styðja jafnframt við búsetu á utanverðu Héraði, í Hjaltastaðaþinghá.
Eins og ég gat um áðan hefur nokkurn veginn tekist að halda í horfinu með búsetu í Borgarfirði síðustu árin vegna dugnaðar og ötullar viðleitni heima fyrir. Undirstaða atvinnumála er hins vegar mjög völt í byggðarlaginu, sem glöggt má sjá af árvissu atvinnuleysi þar yfir vetrarmánuðina, og er birt í grg. yfirlit um atvinnulausa á skrá þar hvern mánuð síðustu fimm árin. Er ástand óvíða jafnslæmt í þessu tilliti á landinu og veldur því fyrst og fremst afar ófullkomin hafnaraðstaða, sem hindrar útgerð stærri fiskiskipa og alla sjósókn að heita má yfir háveturinn. Úti fyrir eru hins vegar fengsæl mið og allgóð aðstaða er til vinnslu afla í landi, frystihús með 12 tonna afkastagetu á dag, tvö saltfiskverkunarhús og beinamjölsverksmiðja. Er því afar brýnt að tryggja undirstöðu atvinnulífs á staðnum og nýtingu þeirrar aðstöðu, sem fyrir er, með skipulegri miðlun á fiskafla og bættri aðstöðu til útgerðar með myndarlegum hafnarbótum. Viðunandi hafnaraðstaða er hér eins og annars staðar lykill að bjargræði fyrir þá sem við sjávarsíðuna búa, en frá náttúrunnar hendi eru skilyrði til hafnargerðar erfið og því þarf að kosta allnokkru til á þessu sviði, en slík fjárfesting mun skila sér á ekki löngum tíma í verðmætum útflutningsafurðum.
Sérstök ástæða er til að vekja athygli á þeirri staðreynd að ungt fólk í Borgarfjarðarhreppi á aldrinum 15–24 ára er að tölu til talsvert yfir meðaltali þess sem gerist á Austurlandi, en ónóg atvinna að vetrarlagi knýr það til að leita að heiman eða búa ella við atvinnuleysi og mun lægri tekjur en almennt gerist.
Það getur því ráðið úrslitum um þróun byggðar í hreppnum, að ráðin verði bót á þessu ótrygga atvinnuástandi fyrr en seinna, og það er m.a. ástæðan fyrir að lögð er áhersla á að vinnu við byggðaþróunaráætlunina verði hraðað og þar með fenginn grunnur til að byggja á aðgerðir og raða framkvæmdum þannig að það fjármagn, sem fæst, nýtist sem best á næstu árum. Sú úttekt þarf að sjálfsögðu að ná til allra atvinnuvega og undirstöðuþátta á sviði þjónustu og samgangna. Þannig þarf að gera úttekt á stöðu landbúnaðar í hreppnum og möguleikum á að bæta stöðu hans. Skilyrði til búskapar eru þar á margan hátt góð, afréttir grösugar og miklir ræktunarmöguleikar, en riðuveiki hefur þar eins og víðar á Austurlandi valdið töluverðum búsifjum á nokkrum bæjum. Gefa þarf gaum að iðnaði, ekki síst þjónustuiðnaði, sem nær alveg vantar í byggðarlaginu, en saumastofa, sem komið var á fót í Borgarfirði fyrir rúmu ári, hefur bætt stöðu atvinnumála þarna eins og víðar þar sem slík iðnfyrirtæki hafa risið.
Flugsamgöngur mega teljast líftaug byggðarinnar, en Flugfélag Austurlands heldur uppi reglubundnu flugi milli Egilsstaða og Borgarfjarðar við batnandi aðstæður að undanförnu. En þó skortir á margt til að viðunandi sé, ekki síst varðandi öryggisbúnað við flugvöllinn. Á landleiðina, sem er 71 km milli Egilsstaða og Bakkagerðis, er ekki að treysta að vetri til nema til komi verulegar lagfæringar, og í því sambandi ber að hafa í huga líkurnar á að á að hafís geti lokað sjóleiðinni til Borgarfjarðar, en þær líkur eru síst minni þar en í öðrum byggðum á Norðausturlandi, eins og m.a. sýndi sig á síðasta ári. Borgarfjörður og þá um leið Úthérað þurfa á sínum harðindavegi að halda á sama hátt og Þistilfjörður og Bakkafjörður og fleiri byggðir á landinu norðaustanverðu.
Herra forseti. Ég hef hér drepið á nokkra þætti varðandi afkomumöguleika og stöðu byggðar í Borgarfirði eystra. Margir hv. þm. þekkja eflaust byggðarlagið úr heimsóknum, einkum að sumri til, en þá skartar Borgarfjörður fríðum fjallahring og sterkri grænku hið neðra í björtu veðri. Litríki er þar rómað og örvaði eflaust Kjarval hinn unga, er þar ólst upp í Geitavík, til að ganga þá braut er við þekkjum af verkum þess meistara. Enn er í Borgarfirði verulegur þróttur í mannlífi og ríkur vilji og áhugi, m.a. hjá sveitarstjórninni, til að treysta þar undirstöður áframhaldandi byggðar. Við flm. þessarar till. leggjum áherslu á að sá stuðningur, sem koma þarf frá opinberri hálfu í þessu sambandi, má ekki dragast í mörg ár úr þessu, einkum á þeim sviðum er úrslitum ráða um atvinnuöryggið. Þarna þarf að koma til þróunarátak til eflingar byggðinni, og verði það gert þarf engu að kvíða um framtíð hennar. Með þetta í huga er þessi þáltill. um byggðaþróunaráætlun fyrir Borgarfjörð eystra nú flutt, og ég treysti á góðar undirtektir hv. alþm. við hana og síðan hæstv. ríkisstj. að till. samþykktri.
Herra forseti. Ég vil svo leggja til að umr. þessari verði frestað og till. vísað til hv. atvmn.