15.01.1980
Sameinað þing: 12. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í B-deild Alþingistíðinda. (418)

15. mál, málefni hreyfihamlaðra

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Ég vil lýsa stuðningi mínum við þessa till. sem er í alla staði tímabær. Ég tel ekki ástæðu til að endurtaka það sem hv. flm. þáltill. og aðrir hv. þm. hafa tíundað hér á undan, en vil ítreka það, að ég er sammála um að brýnt er að taka í alvöru á þessu máli, ekki bara í orði, heldur einnig á borði, þ.e. í verki.