16.01.1980
Neðri deild: 17. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 372 í B-deild Alþingistíðinda. (429)
61. mál, umferðarlög
Dómsmrh. (Vilmundur Gylfason):
Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., fjallar um vátryggingarfjárhæðir ökutækja. Þær fjárhæðir voru síðast ákveðnar á árinu 1978 og nema nú 24 millj. kr. fyrir bifreiðar og 12 millj. kr. fyrir önnur vátryggingarskyld ökutæki, auk 1200 þús. kr. fyrir hvern farþega sem ökutæki má flytja umfram tíu.
Vátryggingum ökutækja er ætlað að tryggja, að því leyti sem vátryggingarfjárhæð hrekkur til, greiðstu á bótakröfum sem falla kunna á þann sem ábyrgð ber á tjóni samkv. umferðarlögum eða almennum skaðabótareglum. Nauðsynlegt er að fjárhæðir þessar fylgi verðlagsþróun í landinu. Er nú svo komið að þær fjárhæðir, sem lögboðnar eru, veita eigi lengur þá vernd sem ætlast verður til þegar um meiri háttar tjón er að ræða. Á vernd þessi bæði við að því er varðar þann sem fyrir tjóni verður, þ.e. að hann fái bætur greiddar, og einnig að því er varðar þann sem ábyrgðina ber. Til að auka þetta fjárhagslega öryggi er nauðsynlegt að hækka vátryggingarfjárhæðirnar. Er með frv. þessu lagt til að vátryggingarfjárhæðin verði hækkuð verulega og verði almennt 180 millj. kr., þó svo að hún verði 360 millj. kr. að því er varðar ökutæki sem flytja mega fleiri farþega en tíu.
Hér er vissulega um mikla hækkun að ræða. Það ber hins vegar að hafa í huga, að þegar tjón er gert upp er að jafnaði miðað við verðlag á tjónsuppgjörsdegi, en vátryggingarfjárhæðin helst óbreytt. Í því breytilega verðlagi, sem við nú búum við, er nauðsynlegt að þessi sjónarmið séu höfð í huga. Til álita gæti verið að taka upp ótakmarkaða vátryggingu, svo sem sums staðar tíðkast erlendis, en eigi hefur þótt rétt að mæla með því að sinni a.m.k. Rétt er þó að geta þess, að Tryggingaeftirlitið lagði á síðasta ári til að vátryggingarfjárhæðin yrði hærri en hér er lagt til, eða 240 millj. kr. atmennt, en tryggingafélögin töldu þá ekki rétt að fara hærra en í 120 millj. kr.
Auk þess sem frv. felur í sér breytingar á vátryggingarfjárhæðum er í því lagt til að eigin áhætta, sú sem boðin er í umferðarlögum, hækki úr 24 þús. kr. vegna tjóns af völdum bifreiðar og 12 þús. kr. vegna annarra ökutækja. Er í frv. lagt til að fjárhæðir verði 36 þús. kr.
Hækkun vátryggingarfjárhæðar leiðir að öðru jöfnu til hærri vátryggingariðgjalda. Þegar um svo almenna vátryggingu er að ræða sem bifreiðatryggingarnar eru er hækkunarþörfin talin mjög lítil. Hefur verið áætlað að t.d. áhættan á bilinu milli 120 og 240 millj. kr. fyrir Tryggingastofnunina í heild sé innan við 1%. Hins vegar er augljós hækkunarþörf vegna almennra verðlagsbreytinga, en á móti henni kemur hækkun eigin áhættu.
Nánari upplýsingar um iðgjaldaþörf liggja ekki fyrir eins og er, en þau mál munu án efa skýrast fljótlega. Nýtt vátryggingatímabil hefst 1. mars næstkomandi og fyrir þann tíma þurfa vátryggingafélögin að leggja fram iðgjaldaskrá. Gerir frv. og ráð fyrir gildistöku þann dag.
Herra forseti. Ég vil svo leyfa mér að leggja til að þessu máli verði vísað til hv. allshn. og 2. umr.