17.01.1980
Sameinað þing: 13. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 389 í B-deild Alþingistíðinda. (452)
12. mál, mengunarvarnir í fiskimjölsverksmiðjum
Flm. (Helgi Seljan):
Herra forseti. Á þskj. 12 hef ég leyft mér ásamt hv. 5. þm. Austur., Hjörleifi Guttormssyni, að flytja svo hljóðandi till. til þál.:
„Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að beita sér fyrir því, að á árinu 1980 verði gert átak til að ráða bót á mengun frá fiskimjölsverksmiðjum og jafnframt verði gerð áætlun um varanlegar úrbætur í mengunarmálum slíkra fyrirtækja í samvinnu við hlutaðeigandi eigendur og samtök þeirra svo og heilbrigðis- og náttúruverndaryfirvöld.
Áætlunin tæki m.a. mið af að lágmarkskröfum um mengunarvarnir allra starfandi fiskimjölsverksmiðja verði fullnægt innan tveggja ára og fjármagn sé tryggt til þeirra aðgerða. Verði í senn haft í huga ytra og innra umhverfi verksmiðjanna og athugaðir möguleikar á bættri nýtingu hráefnis og orkusparnaði samhliða viðhlítandi mengunarvörnum.“
Vissulega væri freistandi að ræða þetta mál miklu ítarlegar en að því leyti sem snertir fiskimjölsverksmiðjurnar einar, en þó skal við það eitt látið sitja nú, Í raun og veru þykir mér rétt að lesa hér fyrst og fremst þá grg. sem fylgir með till., sem segir í raun og veru allt sem segja þarf á þessu stigi málsins af hálfu okkar flm. Þar kemur skýrt fram hver aðalvandamálin eru, hvernig ástandið er og hverjar úrbætur þó hafa verið gerðar. Það kemur glögglega fram þar, að till. var upphaflega flutt á s.l. vori. En þó síðan hafi liðið u.þ.b. átta mánuðir má segja að allt sitji við það sama. Ýmsar frekari hræringar hafa orðið varðandi málið, einkum þó á Suðurnesjum, en allt situr þó við það sama í raun. Ályktanir koma þaðan á víxl og ákvarðanir eru teknar á víxl, en ekkert gerist. Nákvæmri könnun á hugsanlegum úrbótum varðandi Neskaupstað, sem vikið er að í grg., hefur verið haldið áfram. Menn hyggja þar á framkvæmdir til úrbóta, en það má segja að beðið sé vissra aðgerða, viss stuðnings til þess að úr megi bæta svo sem þörf er á.
Í grg. segir svo, með leyft forseta: „Marggefin tilefni valda því, að rétt þykir nú og brýnt að flytja þáltill. um mengunarvarnir í fiskimjölsverksmiðjum. Meginatriði þess vanda, sem þar er komið inn á, kalla á skjóta og örugga úrlausn þar sem stjórnvöld hljóta að hafa alla forustu. Til þess að grg. með till. þessari mætti vera sem ítarlegust var leitað til fróðustu aðila um upplýsingar. Eyjólfur Sæmundsson, þá deildarverkfræðingur hjá Heilbrigðiseftirliti ríkisins og nú öryggismálastjóri, veitti þessar upplýsingar góðfúslega og færa flm. honum þakkir fyrir glöggar upplýsingar um eðli vandans og beinar tillögur til úrbóta. Meginmál þess, sem hér fer á eftir, er á þessu byggt.
„Á nýafstaðinni loðnuvertíð“ — og þá er rétt að geta þess enn, að þetta er grg. sem fylgir till. frá því í fyrra og er hér óbreytt — „komu fram háværar kröfur frá íbúum ýmissa byggðarlaga um úrbætur í mengunarmálum fiskimjölsverksmiðja, og er þar skemmst að minnast kröfugöngu húsmæðra í Keflavík og Njarðvík vegna óþolandi loftmengunar frá verksmiðjunni í Njarðvík. Hér er um að ræða gamalt vandamál sem menn hafa átt við að stríða, og hafa oft áður komið fram mótmæli íbúa í byggðarlögum þar sem slíkrar mengunar gætir í verulegum mæli. Þannig barst þingmönnum Austurlandskjördæmis afrit af erindi til ríkisstj. frá heilbrigðisnefndum og heilbrigðisfulltrúum fimm þéttbýlisstaða á Austurlandi í nóv. 1978, þar sem heitið er á stjórnvöld að beita sér fyrir úrbótum á loft- og lagarmengun frá fiskimjölsverksmiðjum, sem valdi m.a. íbúum þessara staða verulegum óþægindum og jafnvel heilsutjóni. Einnig hafa farið fram undirskriftasafnanir, sem fjöldi fólks hefur tekið þátt í, t.d. á Akranesi og í Keflavík og Njarðvík. Mengun frá verksmiðjunum hefur hins vegar nú náð nýju hámarki vegna stóraukins aflamagns og aukinnar afkastagetu einstakra verksmiðja.
Á landinu munu vera starfandi í dag 33 verksmiðjur, sem unnið geta úr feitum fiski (loðnuverksmiðjur) eða unnið gætu úr slíkum fiski með fremur litlum endurbótum, auk u.þ.b. 20 verksmiðja, sem einungis geta unnið úr fiskúrgangi.
Verst hefur ástand loftmengunarmála að undanförnu verið í bæjunum við Faxaflóa utan Reykjavíkur og á Austfjörðum, en vandamálsins verður vart víðast hvar þar sem slíkar verksmiðjur eru reknar.
Mengunarvandamál fiskimjölsverksmiðja eru ekki einungis takmörkuð við loftmengun. Víða hefur orðið vart við verulega sjávarmengun frá slíkum verksmiðjum, einkum á Austfjarðahöfnum og á Siglufirði þar sem grútur frá verksmiðjunum hefur lagst á fjörur. Var gerð athugun á vandamáli þessu s.l. haust“ — þ.e. haustið 1978 — „á vegum Heilbrigðiseftirlits ríkisins og niðurstöður ásamt tillögum um úrbætur birtar í skýrslu um málið. Ljóst er enn fremur að mikil verðmæti fara forgörðum hvert ár með frárennsli frá verksmiðjunum. Auk þessara vandamála má benda á að veruleg óþrif stafa víða af slæmri umgengni um athafnasvæði verksmiðjanna og ófullnægjandi frágangi hráefnisgeymslna. Starfsumhverfi er einnig víða verulega ábótavant, m.a. vegna ónógrar loftræstingar, óþrifa á vinnustöðum, heilsuspillandi hávaða og ófullnægjandi starfsmannaaðstöðu.
Fram til 1969 voru opinber afskipti af þessum málum alfarið í höndum heilbrigðisnefnda viðkomandi sveitarfélaga. Með lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, nr. 12/1969. var sveitarfélögum áfram falið heilbrigðiseftirlit hverju í sínu umdæmi, en stofnað var Heilbrigðiseftirlit ríkisins, er hafa skyldi yfirumsjón með starfi heilbrigðisnefndanna. Með reglugerð nr. 164/1972, um varnir gegn mengun af völdum eiturefna og hættulegra efna, sem sett var skv. lögum nr. 85/1968, um eiturefni og hættuleg efni, var rekstur fiskimjölsverksmiðja, ásamt með rekstri annarra verksmiðja sem mengunarhætta fylgir, bundinn sérstöku starfsleyfi heilbrmrh. Reglugerðin nær jafnt til eldri fyrirtækja sem nýrra, og skulu umsóknir um starfsleyfi ásamt tilskildum gögnum sendar Heilbrigðiseftirliti ríkisins er gerir till. til ráðh. um afgreiðslu hvers leyfis. Auk heilbrigðisyfirvalda hefur Náttúruverndarráð látið þessi mál nokkuð til sín taka og þau hafa verið rædd sérstaklega á tveim síðustu náttúruverndarþingum.
Almennt má segja að mjög treglega hafi gengið að fá framgengt kröfum heilbrigðisyfirvalda um úrbætur í mengunarmálum fiskimjölsverksmiðja. Hafa verksmiðjueigendur m.a. borið við fjármagnsskorti, skorti á opinberri fyrirgreiðslu og skorti á samræmingu krafna um úrbætur. Þær úrbætur, sem helst hafa verið gerðar fram til þessa gagngert til þess að draga úr óþef og loftmengun, eru sem hér segir:
Reykjavík. Við þær þrjár verksmiðjur, sem starfræktar eru, hefur reykurinn verið hreinsaður í einföldum þétti og þvottaturnum, en slíkur búnaður fjarlægir einungis hluta lyktarefnanna. Auk þess var reistur 70 m hár reykháfur við verksmiðjuna að Kletti.
Þorlákshöfn. Reistur var rúmlega 40 m hár reykháfur árið 1976 og er talið að hann hafi orðið að verulegu gegni, enda landfræðilegar aðstæður með þeim hætti að vænta má gagns af slíkri ráðstöfun.
Grindavík. Við verksmiðjuna hefur verið reistur rúml. 30 m hár reykháfur, sem talinn er hafa dregið úr óþægindum, enda aðstæður svipaðar og í Þorlákshöfn.
Akranes. Reistur var á s.l. ári“ — þ.e. 1978 — „43 m hár reykháfur við verksmiðjuna. Reykháfurinn mun hafa komið að verulegu gagni fyrir þá sem búa næst verksmiðjunni, en kvartanir hafa eftir sem áður borist frá íbúum sem fjær búa. Einungis er lítið á þessa ráðstöfun sem bráðabirgðaráðstöfun til fárra ára.
Hafnarfjörður. Á s.l. ári var settur upp við verksmiðjuna hreinsibúnaður, sem Jón Þórðarson hefur hannað. Er útblástursloftið fyrst meðhöndlað í þétti- og þvottabúnaði, en síðan í hreinsitæki Jóns Þórðarsonar. Rekstur búnaðarins hefur gengið nokkuð erfiðlega vegna erfiðleika á öflun nægilega hreins sjávar fyrir þétti- og þvottabúnaðinn, auk bilana á tækjabúnaði. Einungis hafa verið gerðar takmarkaðar mælingar á hreinsihæfni búnaðarins, enda nauðsynlegur búnaður til slíkra mælinga ekki fyrir hendi í landinu eins og síðar mun frá greint. Þannig liggur ekki fyrir í dag hvort búnaður þessi muni geta leyst þann vanda sem honum er ætlað að leysa. Vissulega væri æskilegt að vandamál sem þessi yrðu leyst með íslensku hugviti og framleiðsla slíks búnaðar félli íslenskum iðnaði í skaut.
Njarðvík. Hafist hefur verið handa um að endurnýja búnað verksmiðjunnar og taka upp gufuþurrkun í stað eldþurrkunar. Jafnframt er gert ráð fyrir að útblástursloft verði hreinsað í þétti- og þvottabúnaði, en síðan brennt undir gufukötlum verksmiðjunnar. Þessi aðferð hefur gefið góða raun í nágrannalöndunum, en þar hafa verið reistir sérstakir efnahreinsiturnar til viðbótar þessum búnaði til notkunar í þeim tilvikum þegar gufukatlar anna ekki brennslu útblásturslofts.
Neskaupstaður. Við endurreisn verksmiðjunnar eftir snjóflóðin í des. 1974 var við hönnun mannvirkja gert ráð fyrir að hreinsibúnaður yrði settur upp við verksmiðjuna síðar. Kannanir hafa verið gerðar á hentugum búnaði og tilboða aflað, en af framkvæmdum hefur ekki orðið. Að því máli er nú hugað alveg sérstaklega og ákvörðun væntanleg innan tíðar um aðgerðir.
Loftmengun, sem frá fiskimjölsverksmiðjunum stafar, er flókið vandamál og erfitt úrlausnar. Við rotnun og niðurbrot á fiski myndast fjöldi daunillra lofttegunda, sem losna úr læðingi, þegar unnið er úr hráefninu, og berast út í andrúmsloftið. Tækniþróun til lausnar þessa vandamáls hefur hins vegar verið ör á undanförnum árum. Við upphaflega afgreiðslu starfsleyfa samkv. reglugerð nr. 164/1972 á árunum 1972–1974 var þannig gengið út frá því, að vandamál þetta yrði ekki leyst nema með háum reykháfum. Í maí 1976 gaf Heilbrigðiseftirlit ríkisins hins vegar út ítarlega greinargerð um þessi mál sem byggð var á könnun á þróun þessara mála í nágrannalöndunum. Urðu niðurstöður stofnunarinnar þær, að eyða mætti lyktinni að mestu leyti og kæmu eftirtaldar þrjár leiðir helst til greina í því efni:
1. Tekinn verði upp þvottur útblásturslofts í svonefndum efnahreinsiturnum af viðurkenndri gerð.
2. Tekin verði upp brennsla útblásturslofts í eldhólfi þurrkara með svonefndri Hetland-aðferð.
3. Breytt verði um framleiðsluhætti og tekin upp gufuþurrkun samfara brennslu lyktarefna undir gufukötlum eða eyðingu þeirra í efnahreinsiturnum.
Frá því grg. þessi var gefin út hefur orðið enn frekari þróun og menn fengið reynslu af þeim búnaði sem um ræðir. Fram hafa komið frá verksmiðjueigendum ábendingar um að setja verði staðlaðar kröfur um hæfni lykteyðingarbúnaðar við fiskimjölsverksmiðjur. Þetta er ýmsum erfiðleikum háð vegna þess, hve samsetning útblástursloftsins er flókin. Engu að síður hefur Heilbrigðiseftirlit ríkisins nú gert tillögu til heilbr.- og trmrn. um setningu fastmótaðra reglna í þessum efnum, bæði um lágmarkshæfni slíks búnaðar og framkvæmd mælinga og mats á hæfni búnaðarins. Til þess að nauðsynlegar
mælingar geti farið fram skortir hins vegar fjármagn til kaupa á nauðsynlegum mælibúnaði og þjálfunar starfsmanna (líklegur kostnaður er 4–5 millj. kr. á núverandi gengi). Fyrr en slíkar mælingar hafa verið gerðar verður hins vegar ekki skorið úr um hæfni þess búnaðar, sem settur hefur verið upp í Hafnarfirði og unnið er að að koma upp við verksmiðjuna í Njarðvík, né heldur annars búnaðar, sem upp kann að verða settur í náinni framtíð.
Ljóst er að Íslendingar hafa dregist langt aftur úr nágrannaþjóðunum í þessum málum, en þar eru nú starfræktar fjölmargar verksmiðjur sem leyst hafa sín mengunarvandamál að langmestu leyti, bæði hvað varðar loftmengun og sjávarmengun. Jafnframt eru þessar verksmiðjur betur búnar framleiðslutækjum og hafa að jafnaði náð betri nýtingu hráefnis en hér er algengast. Á allra síðustu árum hefur þó stórauknu fjármagni verið varið til fjárfestingar í íslenskum loðnuverksmiðjum, svo sem fram kemur í skýrslu áætlanadeildar Framkvæmdastofnunar ríkisins og Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins um loðnuverksmiðjur frá jan. 1979. Í skýrslu þessari er gerð grein fyrir framkvæmdum, sem unnið hefur verið að á undanförnum tveim árum, og þeim áætlunum um framkvæmdir, sem uppi eru. Fram kemur að á árinu 1977 var á vegum loðnuverksmiðjanna varið 1886.6 millj. kr. og á árinu 1978 2234.9 millj. kr. til framkvæmda, en á árinu 1979 er áætlað að verja 2976.8 millj. kr. Af þessum upphæðum er einungis óverulegum fjárhæðum varið til mengunarvarna.
Gera þarf stórátak til úrbóta í mengunarmálum fiskimjölsverksmiðja hér á landi á næstu árum. Leggja ber á það höfuðáherslu að firra sem fyrst íbúa þeirra byggðarlaga, sem nú eru verst sett í þessum efnum, þeim óþægindum sem loftmengunin hefur valdið, jafnframt því að komið verði í veg fyrir alvarlega mengun sjávar af völdum frárennslis. Jafnframt þarf að samræma aðgerðir í mengunarmálum úrbótum á öðrum þáttum í rekstri verksmiðjanna. Þannig má í ýmsum tilvikum koma við aðgerðum til hagræðingar og framleiðniaukningar samhliða mengunarvörnum í stað þess að einungis verði um fjárfestingu í fjárhagslega óarðbærum mengunarvarnabúnaði að ræða. Sérstaklega ber að athuga í hverju tilviki hvort hagkvæmt sé að taka upp gufuþurrkun í stað eldþurrkunar, en með gufuþurrkun má auka gæði framleiðslunnar. Enn fremur þarf að taka tillit til sjónarmiða orkusparnaðar, en á undanförnum árum hafa m.a. komið fram hugmyndir um nýtingu þeirrar orku sem felst í útblásturslofti fiskimjölsverksmiðja.
Ljóst má vera af framansögðu að nauðsynlegt er að efna til samstarfs þeirra aðila er vinna að málefnum fiskimjölsiðnaðarins. Virðist eðlilegast að gerð verði víðtæk áætlun um úrbætur í mengunarmálum fiskimjölsverksmiðja, þar sem einnig verði tekið tillit til framleiðni- og orkusparnaðarsjónarmiða. Slíkri áætlun væri heppilegast að skipta annars vegar í almennar lágmarkskröfur, sem allar verksmiðjur verða að uppfylla, og hins vegar frekari kröfur, sem einstakar verksmiðjur yrðu að uppfylla vegna sérstakrar stöðu sinnar, t.d. vegna óheppilegrar afstöðu til byggðar, mikilla afkasta eða langs vinnslutíma. Hinar almennu kröfur þurfa m.a. að ná til aðgerða í frárennslismálum, frumhreinsunar á útblásturslofti, loftræstingar á framleiðslubúnaði og vinnslusölum, frágangs hráefnisgeymslna, frágangs og umgengni um athafnasvæði o.fl. Hinar sérstöku kröfur þurfa hins vegar fyrst og fremst að beinast að frekari aðgerðum til lykteyðingar þar sem þeirra er þörf. Ljóst er að þær úrbætur, sem hér er um fjallað, munu kosta mikið fé og að árangur muni ekki nást nema til komi fyrirgreiðsla af hálfu hins opinbera. Sérstaklega ber að hafa í huga í þessu sambandi að verulegur hluti kostnaðar mun óhjákvæmilega verða fjárhagslega óarðbær fyrir verksmiðjurnar. Á fjárlögum fyrir árið 1979 er í fyrsta sinn veitt heimild til þess að fella niður aðflutningsgjöld af búnaði til mengunarvarna. Til þess að tryggja þá samræmingu aðgerða, sem rætt er um hér að framan, er hins vegar nauðsynlegt að aðflutningsgjöld verði einnig felld niður af meginframleiðslubúnaði fyrir fiskimjölsverksmiðjur, svo sem gufuþurrkurum, gufukötlum o.fl. Auk þessara aðgerða er ljóst að einnig verður að koma til stóraukin lánafyrirgreiðsla til verksmiðjanna þannig að dreifa megi kostnaði við mengunarvarnir yfirhæfilegt tímabil. Sérstaklega þarf að meta í þessu sambandi hvort heppilegt sé að leggja hluta af hráefnisverði verksmiðjanna í sérstakan sjóð til fjármögnunar á úrbótum í þessum málum.“
Hér lýkur grg. og litlu þarf við að bæta, enda ærinn lestur orðinn. Þegar bræðsla sumarloðnunnar kemur svo til einnig, þá verður vandamálið víða enn hrikalegra, svo sem vel kom í ljós s.l. sumar, þó að sumarið væri kalt, hvað þá ef við fengjum eðlileg heit sumur. Æ víðar er fólk að rísa upp og heimta aðgerðir, unir því hreinlega ekki að búa jafnvel mikinn hluta ársins í meiri og minni mekki frá verksmiðjunum, jafnvel svo að vart sést til sólar þegar hún er hæst á lofti. Þessu verður að mæta að sjálfsögðu. Hér er einnig um einn þýðingarmesta þáttinn að ræða í framleiðslu okkar sjávarafurða, og vonandi fer hann ekki rýrnandi, og því er skylda jafnt til þeirra, sem við framleiðsluna fást beint, og opinberra aðila, fjárveitingarvaldsins þó jafnvel enn frekar, að láta til sín taka í málinu. En málið er ekki auðleyst þó vandinn sé ótvíræður. Því dugir hér ekkert minna en heildarúrbætur, skipulegar og vel undirbúnar. Fjármagnsleiðin er svo veigamikil, að að henni þarf að hyggja alveg sérstaklega, svo sem hér er ráð fyrir gert. Í engu duga vettlingatök. Málið þolir enga bið. Það hefur þegar fengið margvíslegan undirbúning og rannsóknir og athuganir hafa verið framkvæmdar, ýmsar aðgerðir einnig. En fyrst og síðast mun fólkið, sem við þessa mengun býr, hvoft sem það vinnur í þessum verksmiðjum eða býr við hana að öðru leyti, hreinlega ekki una svo algjörlega óviðunandi aðstæðum, og æ víðar mun koma til beinna árekstra, eins og við höfum séð glögg dæmi um, — árekstra svo sem hugsanlegra stöðvana á dýrmætri framleiðslu, sem aftur bitna bæði á einstökum stöðum, þar sem þetta er veigamikill þáttur í atvinnulífinu, og að sjálfsögðu á þjóðarheildinni um leið. Því þarf hér inn í að grípa. Till. er flutt til enn frekari áherslu á nauðsyn aðgerða, og þess er að vænta, að Alþ. samþykki þessa till. í einhverju því formi, sem viðunandi mætti teljast og í kjölfar þess verði í alvöru að málinu unnið í heild svo að nauðsynleg úrlausn megi fást sem fyrst.
Ég vil svo, herra forseti, leggja til að þessari umr. verði frestað og málinu vísað til hv. atvmn.