17.12.1979
Neðri deild: 3. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í B-deild Alþingistíðinda. (46)
8. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Aðeins örfá orð í framhaldi af því sem hv. 2. þm. Reykv. sagði í upphafi máls síns. Hann sagði að það ætti að byrja á öðru en fyrirtækjum ef lækka ætti skattbyrði. Þetta er ekki ný skoðun hv. þm. og ekki heldur nýtt sjónarmið úr hans flokki, svo það kemur mér ekkert á óvart. Alþb.-menn viðurkenna ekki að fyrirtæki séu undirstaða vinnumarkaðarins og hafa aldrei gert. Aftur á móti er það skoðun mín að frekar ætti að byrja á því að lækka peningaþörf ríkissjóðs.
Hér stangast á skoðanir eða hugsjónir. Við sjálfstæðismenn viljum styrkar stoðir undir atvinnurekstri og sérstaklega þeim atvinnurekstri sem gefur af sér tekjur til hins opinbera, en ekki opinberum atvinnurekstri sem yfirleitt er rekinn með tapi. Með þessari skoðun okkar viljum við tryggja atvinnuöryggi með þjóðinni.
Alþb.-menn hafa þá hugsjón að brjóta niður og gera atvinnuvegina sjálfa veika með því að draga út úr þeim veltufé til hins opinbera. Þetta er ekkert nýtt. Þetta vitum við allir. Og ég vil halda því fram, að það stefni tekjuöflun fólksins í landinu í voða að veikja atvinnuvegina.
Alþb. vill líka að allur rekstur sé ríkisrekinn, þannig að afstaða hv. 2. þm. Reykv. er öllum ljós og kemur engum á óvart — að veikja alla aðra starfsemi en þá sem er á vegum hins opinbera. En nái þessi stefna fram að ganga, hver á þá að greiða skattana? Mér er spurn, og væri gaman að vita hvað ætti að koma í staðinn.
Sá tiltölulega litli skattur, sem nú er til umræðu, er ekki stór fjárupphæð fyrir hið opinbera. En 11/2 milljarður dreginn út úr rekstri þeirra, sem eiga atvinnu- eða skrifstofuhúsnæði, er gríðarlega stór hluti af rekstrarfjármagni fyrirtækja og atvinnutækja sem enn eru á hinum frjálsa markaði. Ég segi „enn eru“, vegna þess að mér skilst að það sé yfirgnæfandi meirihluti af vinnandi fólki í landinu sem starfar annaðhvort hjá ríki eða sveitarfélögum.
Ef við tökum veltufé eða rekstrarfjármagn frá aðilum hins frjálsa markaðar, þá erum við að taka vinnutæki, þ.e. peninga, fyrirtækjanna frá þeim. Og það er það sem ég er á móti og vara við.