17.01.1980
Efri deild: 19. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í B-deild Alþingistíðinda. (463)
65. mál, greiðsla opinberra gjalda 1980
Salome Þorkelsdóttir:
Herra forseti. Ég vil í upphafi máls míns taka undir vínsamleg tilmæli hv. þm., sem talaði á undan mér, um að athugað verði hvort möguleikar séu á að innheimta aðeins 60% upp í fyrirframgreiðslu þinggjalda í stað 65%, eins og frv. gerir ráð fyrir ef samþ. verður, og þá með tilliti til innheimtu fasteignagjalda sem eru orðin þungur baggi á mörgum. En ég kom jafnframt upp til að lýsa því yfir að ég muni ekki gera neinn ágreining varðandi þetta frv. Ég vil aðeins láta þess getið varðandi prósentuhlutfallið á innheimtu fyrirframgreiðslu útsvara, að komið hefur fram að nokkur sveitarfélög hafa talið nauðsynlegt að sú heimild færi í allt að 75% í stað 70, eins og frv. gerir ráð fyrir. Ég vil aðeins geta þessa, vegna þess að ég er almennt þeirrar skoðunar að sveitarfélögin eigi að hafa sem mestan sjálfsákvörðunarrétt um mál sín og þá einnig varðandi fyrirkomulag á innheimtu, og þess vegna þarf að mínu viti slík rammalöggjöf að vera eins rúm og raunhæft getur talist, þ.e. að sama innheimtuhlutfall náist vegna fyrirframgreiðslu útsvara 1980 og var 1979. Ég reyndi því að afla mér upplýsinga um hvað raunhæft gæti talist í þessu efni og ræddi í því skyni við Ólaf Davíðsson hjá Þjóðhagsstofnun. Hann taldi að 70% væru nær því að vera sama hlutfall en ef upp fyrir þá tölu væri farið, og hlýt ég því að fallast á að 70% hlutfall verði hámarkið að þessu sinni.
Ég vil einnig varðandi 3. gr. fagna því, að gerð skuli vera réttmæt leiðrétting á útreikningi dráttarvaxta, en þarna var um að ræða útreikning á dráttarvöxtum eftir álagningu, þ.e. ekki á dráttarvöxtum vegna vangreiddra fyrirframgreiðslna í hverjum mánuði, heldur eftir álagninguna. Ég tel að þetta sé réttmæt leiðrétting. Það var athyglisvert, sem kom fram í máli hv. þm. sem talaði á undan mér, að skilvísir skattgreiðendur ættu fáa formælendur. Það er víst nokkuð til í því. Það þykir orðið svo sjálfsagt — og hefur væntanlega alltaf þótt — að vera skilvís að nú er fyrst og fremst lögð áhersla á að refsa þeim sem ekki standa í skilum. Við verðum þó að hafa í huga að menn standa ekki alltaf í skilum af einhverju kæruleysi, heldur er það oft miklu frekar vegna einhverra persónulegra ástæðna og erfiðleika, og það verð ég að segja, að ég vil heldur túlka þetta svo og þess vegna sé 3. gr. réttmæt ef hún verður í framkvæmd eins og nú er gert ráð fyrir.