21.01.1980
Efri deild: 22. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 430 í B-deild Alþingistíðinda. (487)

31. mál, lögskráning sjómanna

Félmrh. (Magnús H. Magnússon):

Herra forseti. Á síðasta ári áttu sér stað viðræður milli fulltrúa ríkisvaldsins og ýmissa launþegasamtaka í landinu um úrbætur í félags- og réttindamálum sem komið gætu í stað beinnar krónutölu á laun. Hv. þm. er kunnugt um tilefni þessara viðræðna svo og ýmsar laga- og reglugerðarbreytingar sem fylgdu í kjölfar þeirra og eru gjarnan kenndar við félagsmálapakka.

Af hálfu samtaka sjómanna, þ.e. Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og Sjómannasambands Íslands, var lögð fram skrifleg grg., dags. 2. apríl 1979, þar sem tilgreind voru allmörg löggjafaratriði er vörðuðu hagsmuni sjómanna og brýnt var talið að endurskoða.

Í fyrstu ábendingu þessarar grg. varðandi lög um lögskráningu sjómanna segir m.a. svo, með leyfi forseta: „Það hefur verið samtökum sjómanna mikið áhyggjuefni, hvernig framkvæmd hefur verið lögskráning sjómanna víðast hvar á landinu. Virðist það ærið handahófskennt, hvort menn eru skráðir í skiprúm eða ekki, og veldur slíkt erfiðleikum. Enn fremur virðist ekki gengið hart fram í þeim efnum, að menn leggi fram atvinnuskírteini þar sem það á við, og jafnvel eru menn skráðir sem yfirmenn án vitundar viðkomandi o.s.frv. Til áréttingar því, að réttindi sjómanna fari alfarið eftir ráðningarsamningi, verði gerðar þær breytingar á lögskráningu að lögum, að útgerðarmönnum verði bannað að afskrá og ráða skipverja einhliða og fyrirvaralaust í því augnamiði að svipta þá launum og öðrum réttindum.“

Mál þetta hefur síðan komið nokkrum sinnum til umræðu, nú síðast á kjaramálaráðstefnu Alþýðusambands Íslands, þar sem eftirfarandi ályktun var gerð, með leyfi forseta:

„Kjaramálaráðstefna A.S.Í. haldin 8. des. 1979, samþykkir að nú þegar verði teknar upp viðræður við ríkisvaldið um breytingu á lögum um lögskráningu sjómanna, sem feli í sér að með stórhækkuðum sektarákvæðum og missi veiði- og skipstjórnarréttinda verði tryggt að skip séu ekki gerð út með óskráða áhöfn. Jafnframt verði þær breytingar gerðar á lögunum, að tryggt verði að sjómaður haldi launum sínum skv. kjarasamningi þótt hann hafi verið afskráður af skipi.“

Í grg. með samþykktinni segir m.a. að hún sé efnislega samhljóða niðurstöðum kjaramálaráðstefnu Sjómannasambands Íslands og Farmanna- og fiskimannasambands Íslands sem haldin var um sama leyti. Auk þess var þar vitnað til ályktunar, sem gerð hafði verið 19. okt. s.l. á kjaramálaráðstefna ASÍ, þar sem segir, með leyfi forseta:

„Verður þó sérstaklega að minna á að enn hafa ekki verið lögð fram frv. vegna réttinda sjómanna og gera verður kröfu til þess, að úr því verði bætt hið bráðasta.“

Af þessum tilvitnunum er ljóst, að samtök sjómanna telja sig hafa fengið vilyrði fyrir úrbótum í þessum efnum og kalla eftir efndum á þeim með fullum stuðningi annarra launþegasamtaka innan vébanda ASÍ. Að mínum dómi er því fullkomlega tímabært að hrinda nú þessum málum í framkvæmd. Treysti ég því, að hv, alþm. séu fúsir til að veita frv. skjótan og góðan framgang, ekki síst vegna þess að hér er greinilega um mikið sanngirnismál að ræða.

Ýmis mikilvæg starfsréttindi sjómanna hafa með tímanum verið tengd lögskráningu þeirra, ýmist með lögum eða í kjarasamningum. Nefna má sjómannafrádrátt skv. skattalögum, lífeyrisréttindi, slysatryggingar að nokkru leyti, kauptryggingu, rétt til fæðispeninga o.fl. Sama gildir um ýmsar greiðslur til stéttarfélaga sjómanna og sjóða á þeirra vegum. Ófært er að útgerðarmaður geti svipt sjómann slíkum réttindum með einhliða afskráningu án vitundar hans og svipt hann þannig möguleikum til réttmætra andmæla og aðgerða, m.a. gagnvart lögskráningarstjóra.

Mér er það ljóst, að þetta frv., þó að lögum verði, nægir ekki eitt sér til að bæta úr þeim ágöllum sem samtök sjómanna og ASÍ vekja máls á í þeim ályktunum sem ég vitnaði til fyrr í ræðu minni. Framkvæmd laganna þarf einnig að batna og hef ég rætt það atriði lítillega við dómsmrh. og þarf að gera betur. Auk þess verður nauðsynlegt að gera nokkrar lagfæringar á sjómannalögum. Undirbúningur þess er nú á lokastigi og er þar verið að reyna að ná samstöðu sem flestra viðkomandi aðila, þannig að ekki þurfi að leiða til átaka.

Þetta frv. er þó nokkurt spor í rétta átt. Ég legg áherslu á að efni þess hef ég rætt við fulltrúa sjómanna og Landssamband ísl. útvegsmanna, og er full samstaða við þessa aðila um efni þess. Efni frv. hygg ég að þarfnist ekki frekari skýringa, og legg ég til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og samgn. þessarar hv. deildar.

Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu.