21.01.1980
Efri deild: 22. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 433 í B-deild Alþingistíðinda. (492)

63. mál, almenn hegningarlög

Dómsmrh. (Vilmundur Gylfason):

Herra forseti. Frv. það um breyt. á almennum hegningarlögum, sem hér er lagt fyrir hv. Ed., er hið þriðja af slíkum frv. sem nú hafa verið lögð fyrir deildina. Frv. þetta er veigamest og fjallar um breytingar á allmörgum greinum hegningarlaganna. Það er samið af hegningarlaganefnd og er þáttur í endurskoðun nefndarinnar á ýmsum þáttum hegningarlaganna.

Frv. má skipta í tvo meginþætti. Fjallar sá fyrri um ákvæði 9. kafla laganna um fyrningu saka og brottfall viðurlaga og ákvæði tengd þeim, en hinn síðari um ákvæði 23. kafla laganna um líkamsárásir og líkamsmeiðingar.

Tillögur þær, sem hér eru settar fram um sakarfyrningu, byggjast á tillögum norrænu hegningarlaganefndarinnar sem gerðar voru 1967 og síðan hafa verið lögfestar á Norðurlöndum. Það hefur verið meginstefna að löggjöf á þessu sviði væri líkust á Norðurlöndunum. Skv. frv. er lagt til að öll brot verði háð fyrningu nema þau sem ævilangt fangelsi liggur við, og er það veruleg rýmkun fyrninga frá því sem nú er. Vegna aðstæðna hér á landi er lagt til í frv. að rannsókn gegn manni sem sökunaut fyrir lögreglustjóra og löglegum fulltrúa hans geti rofið fyrningu, en núgildandi ákvæði eru einskorðuð við dómsrannsókn í þessu sambandi.

Þá geymir frv. till. um nýja fyrningarfresti og breyttan grundvöll þeirra. Að því er varðar fyrningu refsinga er lagt til í frv. að fyrningarfrestur sekta verði miðaður við það tímamark, er fullnægja mætti dómi, úrskurði eða sátt, og verði þrjú ár þegar fésekt er lægri en 500 þús., en fimm ár ef sekt er hærri.

Síðari hluti frv., 10.–12. gr., fjallar um breytingar á 217. og 217. gr. hegningarlaganna, sem fjalla um líkamsárásir og líkamsmeiðingar. Helsta breytingin, sem lagt er til að gerð verði á þeim ákvæðum, er sú, að 218. gr. verði skipt í tvær greinar, 218 og 218 a, og að greinarmunur verði gerður á líkamstjóni meiri háttar og minni háttar, en það hefur í för með sér aftur einfaldari saksóknarreglur, því að skv. núgildandi ákvæði er skylda að fram fari sókn og vörn um öll brot sem ákært er fyrir skv. 218. gr. Slík sundurgreining brotanna hefur því í för með sér verulegt hagræði í málsmeðferð.

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að leggja til að málinu verði vísað til hv. allshn. og 2. umr.