22.01.1980
Sameinað þing: 14. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 455 í B-deild Alþingistíðinda. (504)

214. mál, eftirlitsskylda Tryggingarstofnunar ríkisins á gjaldtöku tannlækna

Félmrh. (Magnús H. Magnússon):

Herra forseti. Ég er algjörlega sammála hv. fyrirspyrjanda um það, að þessi mál þurfa að vera í sífelldri endurskoðun og eru það, ekki kannske nógu örri, en í sífelldri endurskoðun eru þau.

Ég er líka sammála honum um það, að þessi kostnaður við tannlækna er hrikalega hár, og þeir hafa að mínu mati og hafa alltaf haft allt of há laun miðað við aðra launþega í þessu landi. En þeir hafa þá aðstöðu að geta að verulegu leyti skammtað sér sjálfir launin.

Vegna þriggja fyrstu liðanna í fsp. leitaði ég til Tryggingastofnunar ríkisins um upplýsingar og fékk þar þessi svör:

Varðandi fyrsta liðinn segir Tryggingastofnunin: Í samningi milli Tryggingastofnunar ríkisins og Tannlæknafélags Íslands er heimild um eftirlít af hálfu Tryggingastofnunar ríkisins með gjaldtöku tannlækna og gilda sömu reglur um eftirlit sérfræðinga í tannréttingum sem annarra sérfræðinga og almennra lækna. Samningur þessi var undirritaður hinn 19. apríl. 1975, og hljóðar 5. gr. hans svo með leyfi forseta:

„Tannlæknir gefur sjúklingi kvittun fyrir greiddri tannlæknishjálp og greinir tímabil þegar hjálpin er veitt. Í kvittun skal greina eftir hvaða aðalgjaldskrárliðum greitt er. Tannlæknishjálp veitta börnum 3–10 ára má verðleggja eftir tímaeiningum í gjaldskrá, sem þá skulu greindar bæði í kvittun og á tannkorti. Kvittanir skulu gefnar á auðkennd eyðublöð, ætluð til notkunar eingöngu þegar ætlað er að réttur til endurgreiðslu sé fyrir hendi. Fjárhæð skal skrifuð með bókstöfum. Ekki skal tannlækni skylt að gefa kvittun í þessu formi þegar sjúklingur greiðir ekki að fullu, heldur má láta nægja viðurkenningu til bráðabirgða fyrir móttekinni fjárhæð. Tryggingarnar endurgreiða ekki nema kvittun í fyrirskrifuðu formi, sem stjórn Tannlæknafélags Íslands semur. Eftirlit með gjaldtöku tannlæknis má framkvæma þannig, að trúnaðartannlæknir trygginganna skoði tannkort hjá honum og beri saman við reikninga, eftir því sem trúnaðarmaðurinn telur sig þurfa. Trúnaðartannlæknir skal boða komu sína og semja við tannlækni um hentugan tíma til slíkrar skoðunar. Fyrir tíma, sem trúnaðartannlæknir óskar aðstoðar tannlæknis við skoðun gagnanna, greiðist samkvæmt tímataxta tannlækna. Kortin eru eign tannlæknis og er honum hvorki skylt né heimilt að láta þau af hendi. Gögnin skal hann hafa tiltæk í tvö ár. Trúnaðartannlæknir ræður hvort hann kallar sjúklinga til skoðunar.“

Svo sem fram kemur í 5. gr. samningsins milli Tryggingastofnunar ríkisins og Tannlæknafélags Íslands fer eftirlitið fram á þann veg, að tryggingatannlæknir ber saman tannkort eða sjúkraskrá tannlæknis og greiðslukvittun. Hefur stjórn Tannlæknafélags Íslands samkvæmt samningnum ótvíræðan rétt til þess að kanna greiðslukvittunarformið. Gildandi greiðslukvittun veitir alls ekki að mati Tryggingastofnunarinnar nægar upplýsingar um þær tannaðgerðir sem framkvæmdar hafa verið og greitt fyrir. Þá er gerð tannkorta með ýmsu móti og torveldar það mjög eftirlit.

Þau gögn, sem tryggingatannlæknir hefur á milli handa við eftirlitið, eru að mati Tryggingastofnunar hvergi nærri nógu nákvæm. Telja verður að með 5. gr. samningsins hafi ekki fengist tæknilegur grundvöllur fyrir nægjanlega virku eftirliti með gjaldtöku tannlækna. Hefur því tryggingatannlæknir lagt fram tillögur sem miða að nákvæmara og fljótvirkara eftirliti. Við gerð þeirra var stuðst við skipulag þessara mála á Norðurlöndum, þar sem afskipti ríkis af tannlæknaþjónustu hafa staðið um langt árabil.

Tillögur þessar fjalla um breytt skipulag á taxta Tannlæknafélagsins, hönnun staðlaðrar sjúkraskrár fyrir tryggða sjúklinga og nýja greiðslukvittun, þar sem tannaðgerðir eru tilgreindar og kostnaðarupphæð þeirra sundurliðuð. Tillögur þessar hafa verið kynntar stjórn Tannlæknafélags Íslands og munu teknar til umræðu í samstarfsnefnd Tryggingastofnunar ríkisins og Tannlæknafélags Íslands.

Það er von Tryggingastofnunarinnar, að samkomulag geti tekist um tillögur tryggingatannlæknis, svo að ekki þurfi að koma til uppsagnar samningsins.“

2. liður fsp. er þessi: Hversu há fjárhæð var greidd til þessara aðila gegnum kerfið árið 1978 og það sem af er árinu 1979?“

Á árinu 1978 voru greiddar tæpar 845 millj. kr. vegna tannlækninga tryggðra sjúklinga. Á árinu 1977 voru greiddar tæpar 700 millj. kr. í sama skyni og árið 1976 rúmar 322 millj. og 500 þús. kr. Ekki liggja enn þá fyrir niðurstöðutölur fyrir árið 1979, en gert var ráð fyrir 790 millj. kr. á fjárlögum í þessu skyni.

3. liður fsp: „Hvernig er háttað eftirliti Tryggingastofnunar ríkisins með gjaldtöku og greiðslu til lækna í heilsugæslukerfinu almennt?“

Eftirlit Tryggingastofnunar ríkisins með gjaldtöku og greiðslu til lækna í heilsugæslukerfinu er háttað á eftirfarandi veg:

a. Tryggingastofnun ríkisins hefur undanfarin ár sent mann í sjúkrasamlög landsins sérstaklega til eftirlits með greiðslum til lækna. Er miðað við að hvert samlag sé sótt heim á minnst tveggja ára fresti, en oftar ef þörf krefur.

b. Tryggingastofnun fær senda til yfirferðar einstaka reikninga heilsugæslulækna til sjúkrasamlaga. Er hér bæði um að ræða reikninga, sem samlög telja sérstaka ástæðu til að athuga, og reikninga, sem Tryggingastofnun óskar eftir.

c. Haldin eru námskeið á vegum Tryggingastofnunar ríkisins á tveggja ára fresti fyrir starfsfólk sjúkrasamlaganna. Á þeim er m.a. leiðbeint um meðferð og eftirlit með reikningum heilsugæslulækna.

d. Tryggingastofnun fær sendar mánaðarlegar skilagreinar frá flestum sjúkrasamlögum um fjárhæðir greiddar einstökum heilsugæslulæknum.

e. Tryggingastofnun ríkisins hefur ekki eftirlit með greiðslum þeim er sjúklingar inna af hendi til lækna í heilsugæslukerfinu.

f. Ríkisendurskoðun annast endurskoðun reikninga sjúkrasamlaga eftir hvert ár, þ. á m. reikninga heilsugæslulækna. Er Tryggingastofnun gert viðvart ef sérstakar misfellur koma í ljós.

Þessu til viðbótar upplýsir Tryggingastofnun ríkisins að ekki séu fullkomnar upplýsingar um framlög sveitarfélaga til þessara mála, því að á vegum Tryggingastofnunar er þær upplýsingar ekki að fá fyrr en öll bókhaldsatriði eru endanlega kunn, þ.e. ekki fyrr en 1–11/2 ári eftir að greiðslur fara fram. — Hér lýkur upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins.

Í fjórða lagi er spurt hvað líði útgáfu margræddrar reglugerðar varðandi framkvæmd laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 57 frá 1978.

Strax og lög um heilbrigðisþjónustu komu til framkvæmda voru gefnar út tvær reglugerðir samkv. þeim lögum, þ.e. reglugerð um landlækni og embætti landlæknis og reglugerð um starfsmannaráð sjúkrahúsa. Þá hefur verið sett reglugerð um starfsháttu heilbrigðismálaráða samkv. 7. gr. laganna, og ráðh. hefur fengið tillögur landlæknis um erindisbréf héraðslækna og erindisbréf heilsugæslulækna, og er þess að vænta að gengið verði frá þessum tveim erindisbréfum nú á næstu dögum. Þá hefur verið sett erindisbréf fyrir hjúkrunarforstjóra samkv. 17. gr. laganna.

Þær tvær aðalreglugerðir, sem ég tel að þurfi að setja, en beðið hefur verið með að skipa nefndir til að semja, eru reglugerð samkv. 24. gr., um flokkun sjúkrahúsa, og reglugerð samkv. 19. gr., um stærð heilsugæslustöðva, fyrirkomulag, læknafjölda og annað því tengt. Ástæðan fyrir því, að ekki hefur verið sett nefnd til að gera tillögur að reglugerð um þessi tvö atriði, er sú, að það var talið skynsamlegt að nokkur reynsla fengist um starfrækslu heilsugæslustöðva, bæði í dreifbýli og þéttbýli, áður en þessar reglugerðir væru settar, svo og um það, hvernig yrði um samvinnu heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa, þar sem þessar stofnanir eru í sambýli. Nú hefur það orðið svo, að lítil reynsla hefur enn fengist af starfrækslu heilsugæslustöðva í þéttbýli vegna þess að ekki hafa fengist fjármunir til byggingarframkvæmda heilsugæslustöðva á þéttbýlissvæðum og lítið starfslið hefur fengist til þessara stöðva. Það hefur því verið skoðun rn., að tæplega væri tímabært að setja þessar reglugerðir, þar eð ónóg reynsla væri af þessu enn sem komið er. Í sambandi við málefni heilsugæslustöðva verður að minna á að á vegum rn. voru gefnar út leiðbeiningar um starfsemi heilsugæslustöðva, sem komu út í riti rn. nr. 1 frá 1976, og hefur þetta rit verið leiðbeinandi í sambandi við uppbyggingu heilsugæslustöðvanna.

Í fimmta og síðasta lagi er spurt um það, hvaða ráðstafanir hafi verið gerðar af hálfu heilbrmrn. til að jafna þann mikla aðstöðumun sveitarfélaga sem er varðandi greiðslu kostnaðar við rekstur heilsugæslustöðva sem ekki eru reknar í beinum tengslum við sjúkrahús.

Lög um heilbrigðisþjónustu gera ráð fyrir því, að þar sem heilsugæslustöðvar eru staðsettar við sjúkrahús séu bein rekstrartengsl milli þessara eininga. Þetta er að sjálfsögðu gert í hagræðingarskyni og má gera ráð fyrir því, að ávallt verði einhver munur á því að reka heilsugæslustöð í tengslum við sjúkrahús eða reka hana sem sjálfstæða einingu. Hvort hér er um óeðlilega mikinn mun að ræða er að sjálfsögðu hægt að deila um. En því hefur verið haldið fram af heilbrmrn., að ef um óeðlilega mikinn mun væri að ræða á rekstrarkostnaði þessara heilsugæslustöðva, þá væri það vegna þess að einhver kostnaður væri færður á sjúkrahúsþjónustuna sem ætti að vera á heilsugæslustöðvunum. Á vegum daggjaldanefndar hefur verið gerð könnun einmitt á þessum atriðum, og hefur hvergi komið fram að þeir, sem reka sjúkrahús og heilsugæslustöð saman, hafi fært óeðlilegan kostnað á sjúkrahúsaþjónustuna.

Við breytingu á lögum nm heilbrigðisþjónustu á árinu 1978 var gert ráð fyrir því, að ráðh. setti gjaldskrá um greiðslur sjúkrasamlaga fyrir rannsóknir og meðferð veitta á heilsugæslustöð, aðra en læknishjálp, og var hér verið að færa kostnaðarhluta frá sveitarfélögum og yfir á sjúkrasamlög. Haustið 1978 skipaði ég nefnd undir forustu þáv. alþm. Braga Níelssonar til þess að gera gjaldskrártillögur í samræmi við þessi lagaákvæði og gerði ráð fyrir að nefndin skilaði störfum í ársbyrjun 1979, eins og hv. fyrirspyrjandi kom inn á hér áðan.

Því miður hefur þessi nefnd enn ekki lokið störfum þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar rn. um að nauðsyn sé að hún flýti starfi sínu.