22.01.1980
Sameinað þing: 14. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í B-deild Alþingistíðinda. (522)

217. mál, kaup og sala á togurum

Sjútvrh. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Aðeins örstutt aths.

Það er einmitt líka vegna þess hvernig til hefur tekist með skipti á skipum og eftir því sem mér varð það ljósara sem ég taldi nauðsynlegt að staldra við í þessum efnum. Við getum eiginlega sagt að reglan hafi verið einhvern veginn á þá leið, að skipt væri á hinum útfluttu skipum jafnóðum, og svo endaði það á því, að það fór árabátur úr landi. Þetta er að vísu ýkt, en það var í þessa áttina. Og ég hef einmitt á þessum tíma verið að reyna að koma fram breytingum í þessum efnum þannig að þau skip, sem áttu að fara úr landi, færu úr landi. Það hefur nokkuð miðað í þeim efnum. (MB: Hvað eru árabátar stórir hjá hæstv. ráðh.?) Ég sagði nú að þetta væri ýkt mynd. (Gripið fram í: Hvað hafa mörg farið til Suðurnesja?) Af árabátunum? (Gripið fram í: Nei, þau sem áttu að fara úr landi.) Ég veit ekki til að það sé nema eitt, ekki a.m.k. sem mér er kunnugt um á mínu tímabili, og það liggur alveg ljóst fyrir og ég rakti það áðan.

En það er önnur klemma í þessu máli. Menn sjá auðvitað hvað það getur verið hagkvæmt og þægilegt og boðið þægileg kjör að skipta út á við, ef ég má orða það svo, flytja inn skip og flytja úr landi skip á móti. En þá verða menn líka að hyggja að stöðu hins íslenska skipasmíðaiðnaðar og hvernig staða hans er í samkeppni við slíkt fyrirkomulag. Ég held að það sé atriði sem við eigum að hyggja að.