22.01.1980
Sameinað þing: 14. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 480 í B-deild Alþingistíðinda. (527)

217. mál, kaup og sala á togurum

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég ætlaði ekki að blanda mér í þessar umr. meðan ég hafði von um að koma hér að fsp. sem legið hefur fyrir síðan fyrir jól frá mér, en full ástæða væri þó til að segja margt um það sem hér er til umr. Tímans vegna vil ég takmarka mig við örfá atriði.

Vandinn í sambandi við endurnýjun fiskiskipa og kaup á nýjum skipum er margþættur. Við fengum að kynnast því, sem störfuðum í síðustu ríkisstj., eins og ég geri ráð fyrir að allir kannist við sem hafa verið í ráðherrastarfi, og ég öfunda út af fyrir sig ekki hæstv. sjútvrh. af því hlutskipti sem hann hefur búið við. En meginatriðið í þessum málum er að sjálfsögðu að reyna að gæta samkvæmni í gerðum. Ég hygg að þar hafi hæstv. ráðh. misstigið sig nokkuð. Ég geri ráð fyrir að hann sjái nú að það hefði betur verið öðruvísi að málum staðið t.d. í sambandi við innflutning á togaranum Júlíusi Geirmundssyni.

Það er mjög erfitt að standa frammi fyrir atriðum eins og óskum Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, sem hér hefur verið gerð að umtalsefni, og neita henni um eðlilega endurnýjun á skipakosti. Um það mál hefur verið rætt í blöðum og menn kastast á hnútum þar að lútandi. Það mál hefur leysts þannig, að innan fárra daga kemur það skip til heimahafnar sem keypt var í staðinn fyrir annað sem selt var úr landi.

Í síðustu ríkisstj. var ég í þeirri aðstöðu að eiga að gæta hagsmuna innlends skipasmíðaiðnaðar og leitast við að hlúa að honum. Það var unnið á þeim tíma með góðum skilningi í ríkisstj. almennt að því að leita leiða til að hlúa að innlendum skipasmíðaiðnaði. Ég kom af stað áætlunargerð varðandi aðstöðu innlendra skipsmíðastöðva og reyndi að glöggva mig á stöðu skipasmíðaiðnaðarins hér, samkeppnisstöðu hans miðað við erlendan skipasmíðaiðnað. Ég veit ekki annað en í góðum gangi sé vinna að því að glöggva stöðuna. Það hefur þegar nokkuð áunnist frá því sem var, m.a. vegna þess að veitt var fjármagn á síðustu fjárfestingar- og lánsfjáráætlun til stofnlána í íslenskum skipasmíðastöðvum. Það vantar hins vegar mjög mikið á að þær séu samkeppnishæfar eins og eðlilegt væri vegna þess hvernig að þeim hefur verið búið um mjög langt skeið. Það er því ekkert undarlegt þó að útgerðarmenn vilji leitast við að fá fiskiskip með mun hagstæðari kjörum erlendis frá, þar sem þau eru til í allríkum mæli og hægt að fá þau nánast langt undir kostnaðarverði.

Við megum ekki láta þessa aðstöðu verða til þess að slá slöku víð að byggja upp skipasmíðaiðnað okkar þannig að hann verði samkeppnishæfur og geti leyst sem allra flest verkefni i sambandi við fiskveiðiflota okkar og reyndar önnur verkefni. En það þarf einnig að gera áætlanir um endurnýjun flota okkar og stilla þetta saman. Það áleit ég og ég held fleiri í fyrrv. ríkisstj. að þyrfti að gera. Þar þarf að horfa á m.a. þá staði þar sem ósamræmi er í afla, í afköstum útgerðarinnar og aðstöðu í landi. Það þarf að reyna að stilla saman fjárfestinguna þannig að hún nýtist sem best, það sé samkvæmni í fiskveiðiskipum viðkomandi staða og vinnsluaðstöðu í landi, að þar hallist sem minnst á. Á þetta vantar mjög mikið. Allmargir staðir á landinu þurfa nauðsynlega á skipum að halda, nýjum veiðiskipum eða viðunandi fiskiskipum til þess að nýta bæði vinnsluaðstöðu, fyrirliggjandi fjárfestingu og mannafla sem hefur ónóg verkefni í landi. Ég ætla ekki að fara að telja slíka staði upp, en þeir eru í mínu kjördæmi, á Austurlandi, og þeir eru víðar. Þetta þarf að fara yfir. Það dæmi, sem hér var rakið frá Siglufirði, finnst mér vera mjög lýsandi um ósamkvæmni í þessum efnum og nánast gott til að glöggva fyrir mönnum hvernig þarna getur hallað á.

Svo þarf að sjálfsögðu að fyrirbyggja að útlendingar geti komist inn í lögsögu okkar með veiðiskip sem flutt eru inn vegna þess að fiskiskip eru á frílista, eins og gerist með skipið Ými í Hafnarfirði. Ég vil út af fyrir sig ekkert fullyrða um hvernig það skip er fengið eða fyrir hvaða fjármuni. En það er mikil spurning hvort ekki sé réttmætt að taka fiskiskip af frílista til að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig eða útlendingar geti komið hér inn skipum sem sigli svo að meginhluta með aflann til útlanda.