22.01.1980
Neðri deild: 22. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 490 í B-deild Alþingistíðinda. (535)
68. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Garðar Sigurðsson:
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að flytja langa ræðu við 1. umr. þessa frv., því að það á eftir að ræða málið allt saman og aths. við það í n. Auk þess geri ég ráð fyrir að það eigi eftir að ræða þessi mál í þingflokkunum. Ég geri því ráð fyrir að aðalumr. um það verði við 2. umr., eftir að það — hefur fengið meðferð í sjútvn.
Það gera sér allir ljóst að með svo miklum þorskveiðitakmörkunum sem settar hafa verið á togarana er ekki gert ráð fyrir að þeir liggi allan þann tíma aðgerðalausir og þess vegna þurfi þeir að sækja í annað. Það er auðvitað ekki á margt að róa í þeim efnum, en að glíma við aðrar fisktegundir, eins og ufsa og karfa, máske grálúðu og jafnvel eitthvað fleira. En sannleikurinn er sá, að hér á landi hefur verð á ufsa og karfa verið svo lágt að með núverandi olíuverði er ákaflega erfitt og varla hægt að ætlast til þess að menn geti gert út á þær fisktegundir. Það er augljóst mál.
Ég geri því ráð fyrir að flestallir hér séu sammála um að bæta þurfi upp verðið á þessum fisktegundum — og grálúðu einnig, ef menn gera þá yfirleitt ráð fyrir að sótt sé í þær tegundir. Einhvers staðar verður að taka til þess peningana. Ég á ekki von á að það verði upp á teningnum nú fremur en fyrri daginn, að peningar komi inn í sjávarútveginn frá öðrum en honum sjálfum. Það hafa engir aðrir atvinnuvegir í landinu burði til að styðja við sjávarútveginn eða leysa þau vandkvæði sem kunna að koma upp í honum. Það hefur ævinlega verið reglan að tilflutningur hefur verið innan þessa atvinnuvegar sjálfs, því að aðrir hafa ekki bolmagn til að styðja hann. Það er nú í lögum, að vísu brbl., ákvæði um hvernig skuli fara með að bæta upp þessar tegundir. Það mál þekkja allir hér. Þess vegna verð ég að segja, að ég álít nauðsynlegt, eins og ástandið er nú, að halda verðuppbótum áfram. Hitt er annað mál, að það hafa verið nokkuð skiptar skoðanir um hvort eigi að festa slíka gjaldtöku í lögum til frambúðar, því að bæði ég og aðrir, sem hér hafa talað, vona að ástandið, sem nú er, sé aðeins bráðabirgðaástand. Um þetta hafa verið skiptar skoðanir og einnig um nokkur önnur atriði, eins og t.d. kom fram í máli hv. 1. þm. Vestf. Þess vegna held ég að varla sé tímabært að ræða málið fyrr en menn hafa rætt aths. vandlega og þær leiðir sem hugsanlega kæmu til greina í staðinn til tekjuöflunar eða hvaða form verður haft á henni.
Ég vil að lokum leggja á það áherslu, sem hv. 4. þm. Norðurl. v. reifaði hér, — hann reifaði hina stórpólitísku þætti í þessu sambandi eðlilega fremur en ég, — að við í sjútvn. fáum í hendurnar þau plögg sem til eru og tiltæk eru til skoðunar varðandi fiskverðsákvörðunina.