18.12.1979
Sameinað þing: 4. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í B-deild Alþingistíðinda. (54)
Skýrsla forsætisráðherra
Forseti (Jón Helgason):
Í 2. mgr. 52. gr. þingskapa segir:
„Þá skal og útvarpa innan tveggja vikna frá þingsetningu stefnuræðu forsrh. og umr. um hana, en eftirrit af ræðunni skal afhent þm. sem trúnaðarmál eigi síðar en viku áður en hún er flutt.“
Forsrh. telur, að eins og nú er ástatt sé þetta ákvæði ekki framkvæmanlegt og sé því nauðsynlegt að veita afbrigði um frestun stefnuræðunnar þar til síðar á þessu þingi er ný stjórn hefur verið mynduð.