23.01.1980
Neðri deild: 23. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í B-deild Alþingistíðinda. (543)

46. mál, orlof

Flm. (Karvel Pálmason):

Herra forseti. Á þskj. 49 hef ég leyft mér að flytja ásamt hv. þm. Páli Péturssyni og Árna Gunnarssyni frv. til l. um breytingu á orlofslöggjöfinni. Þetta frv. er um breytingu á 11. gr. téðra laga og efnislega er það samhljóða frv. sem ég flutti á 99. löggjafarþinginu, en varð þá ekki útrætt.

Lagt er til að breyta 11. gr. orlofslaganna, sem hljóðar þá svo:

„Orlofsfé skal greitt á þann hátt, að tryggt sé að launþegi fái það í hendur, þegar hann tekur orlof. Félmrh. setur reglugerð um þetta atriði í samráði við Alþýðusamband Ístands, Vinnuveitendasamband Íslands og Vinnumálasamband samvinnufélaganna. Einstök verkalýðsfélög hafa þó óskoraðan rétt til þess að semja við viðsemjendur sína um annað fyrirkomulag en reglugerðin gerir ráð fyrir. Kostnaður við framkvæmd greinar þessarar greiðist úr ríkissjóði að svo miklu leyti sem vaxtatekjur af orlofsfé hrökkva ekki til að bera kostnaðinn.“

Hér er um það að ræða, að skotið er inn í 11. gr. orlofslaganna þessari viðbót: „Einstök verkalýðsfélög hafa þó óskoraðan rétt til þess að semja við viðsemjendur sína um annað fyrirkomulag en reglugerðin gerir ráð fyrir.“

Nú er það svo, að almennt held ég að menn séu um það sammála, að sú breyting, sem gerð var á orlofslögunum 1971, ef ég man rétt, var til mikilla bóta. Það hefur sýnt sig og sýndi sig strax, að innborgun eftir gírókerfinu var miklu meiri en eftir gamla fyrirkomulaginu sem var með merkjunum. Eigi að síður tel ég og margir fleiri, og það hefur komið fram í áliti ýmissa verkalýðsfélaga, að hér megi mun betur um bæta en sú löggjöf gerir ráð fyrir sem nú er í gildi. Það er öllum ljóst, að orlofsgreiðslurnar nú eiga samkv. lögunum að borgast inn í gírókerfið sem Póstur og sími hefur allan veg og vanda af. Því miður, segi ég, hefur það komið í ljós allt of oft, að ekki er sem skyldi sinnt því innheimtufyrirkomulagi sem nauðsynlegt er, eigi þessi mál að verða í lagi. Það eru mörg dæmi þess, að atvinnurekendur liggja með svo og svo miklar upphæðir fjármuna í svo og svo langan tíma eftir að þeir eiga að vera búnir að skila þeim inn í gírókerfið. Þetta hefur að sjálfsögðu það í för með sér, að launþegar glata vegna þessa fjármunum, því að a.m.k. allt til þessa hefur það ekki verið gert, að ég best veit, að greiddir hafi verið vextir af orlofsfé sem þannig er til komið miklu seinna en lög gera ráð fyrir, en hefði ella verið greitt hefði verið um að ræða greiðslu á réttum tíma.

Auk þessa er það svo annað atriði í þessu, að þetta fyrirkomulag, sem hér er um að ræða og við leggjum til, er líka breyting í þá átt að orlofsfé verði ávaxtað í heimabyggð. Við teljum ástæðulaust að stórar fjárfúlgur, sem greiddar eru inn vegna orlofs, séu sendar hingað til Reykjavíkur til geymslu hjá ríkisstofnun og að sú sama ríkisstofnun borgi orlofsþegum tiltölulega litla vexti miðað við það sem þeir gætu fengið ella, ef breytt væri í það fyrirkomulag sem hér er gert ráð fyrir, að þetta yrði ávaxtað í sparisjóðum eða bönkum á viðkomandi svæði og síðan fengju launþegar greidda þá vexti sem um er að ræða á hverjum tíma af þessu fé.

Með þessu vinnst auðvitað tvennt. Í fyrsta lagi, að ávaxta féð á þeim stað sem það fellur til, en ekki senda það í burtu, og í öðru lagi, sem er ekki síðra, að launþegar fái hæstu vexti á hverjum tíma sem þeir mögulega geta fengið, en búi ekki við það, eins og nú er, að fá einungis 11% vexti eins og borgað er hjá Pósti og síma, en gætu samkv. því, sem við leggjum hér til, fengið á bilinu 32–36% líklega. Þetta er vissulega geysilegur munur og að okkar áliti ástæðulaust fyrir löggjafann að standa gegn því, að slík breyting eigi sér stað, ef aðilarnir á vinnumarkaðinum vilja og geta komið sér saman um annað fyrirkomulag á greiðslu þessara fjármuna. Þetta er því tiltölulega einfalt mál að okkar viti, einföld breyting, sem er í því fólgin, að þessir aðilar hafi heimild til þess, ef þeim sýnist svo, að semja um annað fyrirkomulag á greiðslu orlofsfjár en nú er samkv. lögum.

Nú er það að sjálfsögðu opinbert leyndarmál, að mörg fyrirtæki í landinu munu hafa þennan hátt á, þ.e. þau borga ekki inn í gírókerfið. Aðeins til glöggvunar fyrir hv. þm. um það, hvaða fjármuni er hér um að ræða, gæti ég trúað t.d. að á svæði eins og Vestfjörðum væru það 500–600 millj. kr. á árinu 1979 sem greiddar hefðu verið vegna orlofsfjár. Hér er því ekki um að ræða litlar upphæðir, bæði að því er varðar að hafa þetta í heimabyggð og ekki síður hitt, að launþegar fái af þessu þá vexti sem þeir í raun og veru gætu fengið, ef löggjöfin bannaði þeim það ekki. Okkur finnst óeðlilegt að löggjöfin standi í vegi fyrir því, að í þessu tilfelli geti aðilar komið sér saman um æskilegra form á þessum málum að áliti beggja, því að auðvitað er hér aðeins um að ræða heimild fyrir þessa aðila til að semja um þetta með þeim hætti sem hér er lagt til, en enga skyldu.

Ég þarf í sjálfu sér ekki að hafa öllu fleiri orð um þetta. Eins og ég sagði áðan hafa allmörg verkalýðsfélög óskað eftir því að fá heimild til þess að gera þetta. Mér er kunnugt um, að um þetta hefur verið rætt milli aðila vinnumarkaðarins á sumum svæðum, en þeir telja sig ekki geta gert þetta með samningum vegna þess að löggjöfin leyfi það ekki. En ég þykist fullviss um að það er hægt að ná um þetta skynsamlegra samkomulagi ef löggjafinn þvingar menn ekki til að halda því í því formi sem það nú er. Og það er óskynsamlegt að mínu viti og okkar, að löggjafinn knýi þessa aðila inn í óæskilegra kerfi en ella væri hægt að ná með breytingu á löggjöfinni.

Ég vænti þess, að þm. geti, þegar þeir hugleiða þá breytingu sem hér er lögð til, orðið okkur sammála um að þetta sé breyting í átt til hins betra. Við viljum a.m.k. láta á það reyna, hvort ekki er vilji fyrir því hér á hv. Alþ. að launþegar fái í þessu tilfelli þann rétt sem þeir telja sér betur henta fái þá ávöxtun síns fjár sem þeir eiga kost á með þessari breytingu.

Ég skal ekki að sinni a.m.k., herra forseti, hafa um þetta öllu fleiri orð, en ég vænti þess, að þetta mál fái afgreiðslu á þessu þingi, og ég vænti þess, að þm. verði jákvæðir til þess með hliðsjón af því hvers eðlis málið er.

Ég legg svo til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. félmn.