23.01.1980
Neðri deild: 23. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í B-deild Alþingistíðinda. (546)

46. mál, orlof

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Það er örstutt aths. vegna orða sem komu fram í ræðu hv. 10. þm. Reykv. Ég skal heils hugar taka undir þau orð hans, að það beri allt að gera til þess að ná fram sparnaði í þessu kerfi sem öðrum í okkar þjóðfélagi. En vegna þeirrar bollalegginga sem hann var með um hvort ekki væri hægt að greiða þetta með launum, þá bendi ég á þá hættu sem verður samfara því. Við höfum fyrir okkur þá staðreynd, að stór hluti, jafnvel meginhluti launþega þessarar þjóðar, telst til svokallaðra láglaunastétta — þó það virðist nú vera mjög afstætt hugtak hjá sumum í þessu þjóðfélagi og ég tala nú ekki um hér á hv. Alþ. Ég tel því að ef þetta fyrirkomulag væri tekið upp, þá mætti búast við að orlofsféð rynni — og rennur að sjálfsögðu — beint inn í almenn laun og verður metið sem slíkt og verður að eyðslueyri þessa fólks strax og það fær þessa peninga í hendur. Það gengur til hinnar daglegu framfærslu. Þegar svo kemur að því, að þetta fólk vill taka orlof og fara í frí, þá eru engir peningar til. Þótt leitað verði sparnaðar og farið verði inn á það fyrirkomulag sem hv. 1. flm þessa frv. leggur til að verði farið og ég styð, þá held ég að nokkur hætta sé samfara hugmyndum hv. 10 þm. Reykv., og ég vil óska eftir að þessi varnaðarorð fylgi með til n., þegar málið verður tekið til athugunar þar.