23.01.1980
Neðri deild: 23. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í B-deild Alþingistíðinda. (548)
46. mál, orlof
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Ég vil byrja á því að vekja athygli á þeirri tölu, sem hæstv. ráðh. gat ekki um hér áðan. Hann sagði að það væri, ef ég skildi hann rétt, helmingurinn af vöxtunum sem færi í kostnað, eins og vextirnir voru fyrir hækkun. Ef það er rétt, sem kom fram hjá hv. 1. flm. málsins, að það væru 500 millj. sem legðust til sem orlofsfé á Vestfjörðum, þá eru það 12.5 millj. af því fé sem fara beint til rekstrar í þeirri deild hjá Pósti og síma sem heldur þessum málum gangandi. Ég vek athygli á þessu, og svo geta menn leikið sér við að margfalda þessa tölu til þess að finna út hvað hún er há að öllum líkindum fyrir allt landið.
Það, sem skiptir máli, er að átta sig á því, að það er engin trygging fyrir að fólk, sem fær þetta fé útborgað þegar hægt er að fá það útborgað, noti það í sumarleyfi sínu. Það er margt fleira sem þetta fólk hugsar um að leggja fjármagn í. Ég hef sjálfur reynslu af því og hef séð það allt í kringum mig, að þetta fólk geymir alveg eins fjármuni á bankabókum til að eyða í sumarfríi sínu. Þegar það hins vegar fær útborgað orlof fara þær greiðslur í allt annað, enda er lögunum ekki fylgt út í ystu æsar hvað þetta snertir.
Það, sem skiptir þó öllu máli fyrir launafólkið í landinu, er að þessi hluti af launum, sem þarna er geymdur, sé verðbættur, og það gerir íslenska ríkið ekki. Það greiddi 5% vexti þegar verðbólgan var allt að því 10 sinnum meiri. Það er komið upp í 11% og enn er verðbólgan a.m.k. þrisvar, fjórum, fimm eða jafnvel sex sinnum meiri. Það er einmitt þetta vandamál sem við erum að ræða hér um. Og ég treysti fólkinu sjálfu betur til þess að leysa þetta vandamál með því að leggja þetta fé inn á bankabækur, inn á fastar bankabækur, heldur en ég treysti Pósti og síma, þótt þar séu ágætir menn, til að geyma og varðveita þetta fé. Og ég treysti verkalýðsfélögunum betur til að semja þannig fyrir sína umbjóðendur en ríkisstarfsmönnum, hversu góðir sem þeir eru.
Það er þetta sem um er að ræða, og það er þess vegna sem ég lét þessi sjónarmið koma fram í fyrri ræðu minni. Og ég bið menn um að átta sig á því, að hér er um það að ræða, hvort við eigum endalaust að halda áfram að hugsa í þá veru, að ríkisvaldið og þeir, sem fara með völdin á hverjum tíma, eigi að sjá fyrir öllum sköpuðum hlutum fyrir fólkið í landinu. Ég held að það sé kominn tími til þess, vegna breyttra aðstæðna og breyttra skilyrða, að við hugsum annað slagið, ég geri ekki meiri kröfur en það, um það, hvort ekki sé hægt að ímynda sér að fólkinu sjálfu sér treystandi fyrir eigin hag.