23.01.1980
Neðri deild: 23. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 502 í B-deild Alþingistíðinda. (549)
46. mál, orlof
Flm. (Karvel Pálmason):
Herra forseti. Mér finnst ástæða til þess að fagna því, hversu góðar undirtektir þetta mál hefur fengið, og með hliðsjón af því hef ég a.m.k. ástæðu til að ætla að málið ætti að geta fengið greiða göngu í gegnum þingið og jákvæða. (Gripið fram í.) Já, fær það kannske í dag. En út af því, sem hér hefur komið fram, langar mig til að fara örfáum orðum um einstaka þætti.
Það má vera út af fyrir sig rétt hjá hv. þm. Friðrik Sophussyni, að það þyrfti eða væri æskilegt að gera stórkostlegri breytingu á orlofslöggjöfinni en hér er lagt til. En ég er út af fyrir sig ekki reiðubúinn til að standa að eins stórkostlegri breytingu á orlofslögunum og t.d. kom fram í máli hans, því að það er alls ekki ætlun mín eða okkar, sem að þessu frv. stöndum, að orlof verði greitt út sem eyðslueyrir með kaupi, síður en svo. Við gerum ráð fyrir að hið sama gildi áfram, að þetta séu peningar eða fjármunir sem eru lagðir til hliðar og að fólk geti fengið þá útborgaða á þeim tíma sem gert er ráð fyrir að launþegar geti tekið sér frí frá störfum og farið í orlof. Hér er einungis um það að ræða, að við gerum ráð fyrir, að ef af þessari breytingu yrði, þá yrði þetta fé lagt inn á bankabækur sem væru bundnar til árs, þannig að fólk fengi þetta fé ekki út fyrr en orlofsár er hafið. Ég undirstrika það, að það er ekki okkar ætlun að þetta fé verði borgað út jafnhliða kaupi og þannig notað sem eyðslueyrir. Það er víðs fjarri. Breytingin miðar ekki að því.
Út af því, sem hæstv. félmrh. sagði, vil ég aðeins segja það, að mönnum þykir kannske mikið upp í sig tekið að halda því fram, að það hafi verið slæleg innheimta hjá Póstgíróstofunni. En ég fullyrði það, því að ég hef reynslu af því sjálfur. Hún hefur talið sig standa frammi fyrir þessu vandamáli án þess að geta gert neitt.
Það er út af fyrir sig rétt hjá hæstv. ráðh., að ekki er allt fengið með þessari breytingu, það er okkur ljóst. En við teljum þó að það sé svo mikið fengið með henni, að hún sé réttlætanleg, svo mikið til hins betra, að það sé réttlætanlegt að gera þessa breytingu.
Það kom jafnframt fram hjá hæstv. ráðh., að nú bæri Póstgíróstofunni skylda til þess að greiða orlofsfé þó ekki sé búið að greiða af atvinnurekendanna hálfu. Þetta er rétt. En mér dettur ekki í hug að halda annað en að t.d. þau verkalýðsfélög, sem mundu semja við sína viðsemjendur um að þetta fé yrði greitt inn á bankabækur í viðkomandi peningastofnun, sæju um að viðkomandi peningastofnun yrði skuldbundin á sama hátt og Póstgíróstofan til að greiða út féð þó ekki væri komin greiðsla frá atvinnurekendunum. Ég vil að tækifæri sé til að semja um þessa hluti jafnframt, þannig að ég sé ekki að neinn hængur sé á þessari breytingu. Það er jafnframt hægt að fá samkomulag við þessar peningastofnanir um skyldu þeirra til að greiða þetta fé út, þó að viðkomandi vinnuveitendur séu ekki búnir að greiða til þeirra, þannig að það á ekki að standa í vegi fyrir því, að þessi breyting verði gerð.
Ég held að það sé ekki fleira sem ég þyrfti að ræða út af því sem hér hefur komið fram í umr. Ég tók ræðu hv. þm. Svavars Gestssonar svo, að það væri jákvæður málflutningur við þessar breytingar. (Gripið fram í: Ertu nokkuð hissa á því?) Ja, ég tók hana svo. Sé það ekki rétt, þá vænti ég þess, að hv. þm. leiðrétti það. En ég gat ekki skilið betur en það væri stuðningur við þessa breytingu, að því gefnu, að hér væri ekki verið að breyta í þá átt að fólk ætti að fá þetta sem eyðslueyri. Það er alls ekki ætlun okkar.
Ég skal ekki, herra forseti, lengja þetta meira, en taldi rétt að þetta kæmi þó fram.