24.01.1980
Sameinað þing: 16. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 534 í B-deild Alþingistíðinda. (587)
219. mál, hagræðingarlán til iðnaðar
Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Varðandi fsp. hefur komið skýrt fram hjá hæstv. iðnrh., að hann hefur metið það svo og ríkisstj. hans að ekki væri ástæða til að leggja út í það hagræðingarátak sem gert var ráð fyrir í umræddum lögum. Ég hef sagt álit mitt á því og hvernig ég lít á þann lagabókstaf. En það er fróðlegt fyrir menn að átta sig á hvaða viðhorf hæstv. ríkisstj. hefur í þessum efnum og varðandi fleiri þætti í málefnum iðnaðarins.
Svo aðeins vegna þess sem kom fram hjá fyrrv. hæstv. fjmrh., 1. þm. Austurl., Tómasi Árnasyni, að engar tillögur hefðu borist fjmrn. varðandi ráðstöfun á aðlögunargjaldi, vil ég segja þetta: Hann skaut að vísu inn orðunum „engar sundurliðaðar“, og það var ákveðinn öryggisventill. Það var gott að hann sagði þetta, því að við undirbúning fjárlaga í seinni hluta júnímánaðar var gerð um það tillaga frá iðnrn. að höfðu samráði við fjárlaga- og hagsýslustofnun að tekjur af aðlögunargjaldi skyldu færðar til gjalda í fjárlagafrv. undir liðnum til iðnþróunar, en þegar tekjuáætlun hefði borist frá fjárlaga- og hagsýslustofnun um afraksturinn af þessu gjaldi á árinu 1979 ætlaði iðnrn. að leggja fram sínar tillögur. Tekjuáætlun hafði ekki til okkar komið og ég vissi ekki til að það væri neinn ágreiningur um að þessi upphæð stæði þarna í fjárlagafrv. hæstv. þáv. fjmrh. Það var einmitt verið að vinna að sundurliðuðum tillögum um
þetta efni um það leyti sem fyrrv. ríkisstj. fór frá.