18.12.1979
Efri deild: 4. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í B-deild Alþingistíðinda. (61)

3. mál, lántaka vegna framkvæmda á sviði orkumála

Tómas Árnason:

Herra forseti. Eins og hæstv. fjmrh. hefur greint frá er hér um að ræða frv. sem efnislega er samhljóða ákvörðunum sem þegar voru teknar af fyrrv. ríkisstj., og fer ekkert á milli mála að ég fylgi að sjálfsögðu því máli. Ég vildi aðeins í sambandi við 7. gr., sem fjallar um að fjmrh. sé fyrir hönd ríkissjóðs heimilt að taka skammtímalán hjá Seðlabanka Íslands til að fjármagna tímabundinn mismun tekna og gjalda ríkissjóðs allt að 4 500 millj. kr., segja nokkur orð.

Þegar gerð var úttekt á stöðu ríkissjóðs á miðju seinasta ári var ljóst að af ýmsum ástæðum, sem ég skal ekki rekja við þetta tækifæri, ég geri það eflaust síðar meir, varð að styrkja stöðu ríkissjóðs á árinu annaðhvort með aukinni tekjuöflun eða með einhverju öðru móti. Sú leið, sem valin var, var eins og kunnugt er að ákveðið var að hækka söluskatt og tímabundið vörugjald.

Ég gerði tillögur um þetta strax í júlímánuði í ríkisstj., en það var ekki fyrr en um miðjan september sem samkomulag náðist um að hækka þessa skatta og þess vegna að sjálfsögðu liðinn talsvert langur tími af árinu, frá því um miðjan júlí til miðs september, sem hefði gefið tekjur ef þessi löggjöf hefði verið sett fyrr. Þess vegna var það að ríkissjóður varð af tekjum, af því að dróst að setja lögin um tvo mánuði, og í framhaldi af þessu var ákveðið að haga málum á þá leið að taka skammtímalán innanlands og þá fyrst og fremst hjá Seðlabankanum til þess að brúa bilið á milli útgjalda og tekna ríkissjóðs á þessu ári. Þetta skammtímalán að upphæð 4 500 millj. kr. var ákveðið að taka í des., og ég hygg að það sé þegar búið að gera það, og greiða það til baka á fyrstu mánuðum næsta árs af þessum nýju tekjustofnum, hækkuðum söluskatti og hækkuðu tímabundnu vörugjaldi.

Ég vildi aðeins upplýsa þetta í sambandi við þessa umr. til að skýra fyrir hv. þm. hvernig þetta er til komið. Þessi sérstaka skammtímalántaka, og þegar fjárlög voru undirbúin af minni hálfu og fyrrv. ríkisstj. fyrir næsta ár, að upphæð 4 500 millj. kr., greiðist af tekjum næsta árs og verður ekki til ráðstöfunar af tekjum þess.