24.01.1980
Efri deild: 24. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 542 í B-deild Alþingistíðinda. (610)
79. mál, olíugjald til fiskiskipa
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Þegar olíugjald til fiskiskipa kom til umr. hér í deildinni fljótlega eftir að hún tók til starfa bar ég fram þá ósk við hæstv sjútvrh. að hann aflaði d. upplýsinga um hvernig olíugjaldið hefur komið á misjafnan hátt niður eftir veiðitegundum, eftir útgerðarstöðum, eftir tegundum fiskiskipa. Hæstv. sjútvrh. hafði góð orð um að útvega þær upplýsingar. Síðan eru liðnar nokkrar vikur og hæstv. ráðh. hefur haft ærinn tíma til að efna þetta loforð. Ég sakna þess, að hvorki í grg. með frv. né í ræðu hæstv. ráðh. var vikið að þessu einu orði.
Ég er þeirrar skoðunar að olíugjald, lagt á með þeim hætti sem hér er gert, sé óeðlileg aðferð til þess að mæta vanda útgerðarinnar, það komi mjög misjafnlega niður og geti beinlínis haft í för með sér verulegan hagnað fyrir fjölmarga aðila og því sé nauðsynlegt að finna aðrar aðferðir í þessum efnum. Ég vil því ítreka þá fsp. mína til hæstv. ráðh., hvers vegna þessar upplýsingar hafa ekki verið veittar. Auðvelt hefði verið á þeim langa tíma sem nú hefur verið að leggja grundvöll að ákvörðun fiskverðs að vinna að öflun þessara upplýsinga. Ég ítreka hér margra vikna gamla ósk við hæstv. ráðh. um að láta þessar upplýsingar í té.
Hvað snertir ósk ráðh. um að hraða þessu máli, þá er það ansi seint fram komið. Ráðh. gaf hér í þinginu fyrir nokkru loforð um að það kæmi miklu fyrr fyrir þingið en hann hefur nú lagt það fram. Ýmsir þm. skuldbundu sig í dag, áður en þetta frv. var lagt fram, til annarra fundarhalda en hér í d. Ég tel mikið vafamál hvaða möguleikar séu til þess að verða við ósk ráðh., enda er hún mjög seint fram komin og frv. miklu seinna en hann lofaði þinginu.