24.01.1980
Efri deild: 24. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 544 í B-deild Alþingistíðinda. (616)

78. mál, kjarasamningar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja

Flm. (Jón Helgason):

Herra forseti. Frv. þetta er flutt til að taka af öll tvímæli um að forsetar Alþingis geri sérkjarasamninga við starfsfólk Alþingis. Í lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, 35. gr., segir:

„Forsetar Alþingis hafa aðild og úrskurðarvald um réttindi og skyldur starfsmanna þingsins samkv. lögum þessum.“

Hinn 25. okt. 1974 var undirritaður fyrsti sérkjarasamningur Alþingis og Starfsmannafélags ríkisstofnana fyrir hönd starfsmanna Alþingis. Með gildistöku laga nr. 29/1976, um kjarasamninga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, fengu starfsmenn Alþingis fyrst formlegan samningsrétt, þar sem í þeim var m.a. fellt niður undanþáguákvæði um að lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna nái ekki til starfsmanna Alþingis. En þar sem fjmrh. fer með kjarasamninga fyrir hönd ríkissjóðs samkv. þeim lögum þykir rétt, til að taka af öll tvímæli um að forsetar Alþingis fjalli um sérkjarasamninga starfsfólks þess eins og hingað til, að setja það ákvæði sem hér um ræðir inn í lögin, hliðstætt því sem er í lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna.

Ég legg til að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.