24.01.1980
Efri deild: 26. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í B-deild Alþingistíðinda. (629)

69. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Sjútvrh. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Ég vísa til ræðu minnar áðan, undir seinasta dagskrárlið, varðandi framsögu með þessu frv. um breyt. á lögum um Aflatryggingasjóð sjávarútvegsins. Ég legg til að því verði enn fremur vísað til 2. umr. og sjútvn. og fái skjóta afgreiðslu í deildinni.