18.12.1979
Efri deild: 4. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í B-deild Alþingistíðinda. (63)
5. mál, lántaka Bjargráðasjóðs
Fjmrh. (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Frv. þetta er 5. mál þessarar hv. d. á þskj. 5 og fjallar um ábyrgðarheimildir vegna lántöku Bjargráðasjóðs og er til staðfestingar á brbl. þess efnis sem gefin voru út 9. nóv. 1979.
Eins og kemur fram í aðfaraorðum að þeirri brbl.setningu var ástæða hennar sú, að ríkisstj. hafði falið Bjargráðasjóði að annast fyrirgreiðslu vegna tjóna af völdum hafíss og harðinda s.l. vor og vegna grasbrests og uppskerutjóns á liðnu sumri, enda er það í samræmi við hlutverk sjóðsins. Í því sambandi heimilaði ríkisstj. sjóðnum að taka lán allt að 850 millj. kr. Til tryggingar þeim lánum þurfti sjálfskuldarábyrgð ríkissjóðs, en lagaheimild skorti til að veita slíka ábyrgð. Var því brýn nauðsyn að setja lög um slíka heimild, þar sem stóð fyrir dyrum að ganga frá umræddum lánveitingum. Fyrir því voru sett brbl. þau sem hér er leitað staðfestingar á. — Nokkur vafi þykir leika á að ábyrgðarheimildin, eins og hún er nú orðuð í brbl., sé nógu góð, þ.e. hvort heimildin nái til verðtryggðs eða gengisbundins láns, og vænti ég þess, að um það atriði verði nánar fjallað í þeirri n. sem fær þetta frv. til athugunar.
Ég tek það sérstaklega fram, að í þeirri n., sem gerði till. um þessa fjárhagslegu fyrirgreiðslu vegna tjóna af völdum hafíss og harðinda, sátu fulltrúar allra stjórnmálaflokka. Var það sameiginleg niðurstaða þeirra sem bjó á bak við þau brbl. sem sett voru þann 9. nóv. 1979, og býst ég því við að þetta frv. njóti stuðnings nokkuð almennt í þessari hv. d. og raunar í Alþingi öllu.
Ég legg svo til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.