24.01.1980
Efri deild: 27. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í B-deild Alþingistíðinda. (635)
69. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins
Frsm. (Stefán Guðmundsson):
Herra forseti. Sjútvn. hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á lögum nr. 80 16. sept. 1971, með áorðnum breytingum, um Aflatryggingasjóð sjávarútvegsins. N. hefur rætt þetta frv. og er sammála um að það verði samþ. eins og það hefur komið til hv. Ed. frá Nd.
Það á sama við og um fyrra frv., að Geir Gunnarsson var fjarverandi. Aðrir, sem rita undir nál., eru Stefán Guðmundsson, Lárus Jónsson, Egill Jónsson, Guðmundur Karlsson, Guðmundur Bjarnason og Karl Steinar Guðnason.