28.01.1980
Efri deild: 29. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 553 í B-deild Alþingistíðinda. (654)

77. mál, niðurgreiðsla á olíu til upphitunar húsa

Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., er til komið af brýnni nauðsyn. Það er komið fram til þess að bæta þegar í stað úr ástandi sem er óþolandi. Nálægt 1/4 hluti þjóðarinnar býr nú við þetta ástand. Það eru þeir sem nota olíu til upphitunar húsa. Þetta frv. fjallar um niðurgreiðslu á olíu til upphitunar húsa til að létta þessu fólki byrðar þær sem það hefur nú að bera.

Hin gífurlegi kostnaður við olíukyndingu er ekki nýr af nálinni þótt keyrt hafi um þverbak á síðasta ári. Sögu þessa má rekja allt til ársins 1973, en þá voru fyrirséðar mjög miklar verðhækkanir á olíu, þegar olíukreppan fyrri var í aðsigi. Árið 1974 var hafin niðurgreiðsla á olíu til að draga úr áhrifum af hækkun olíuverðs á hitunarkostnað íbúðarhúsnæðis Síðan hefur þessum varnaraðgerðum verið fram haldið, en hafa nú reynst algjörlega ófullnægjandi.

Verð á gasolíu til húshitunar hefur hækkað frá 1. júlí 1973 úr kr. 5.30 hver lítri í kr. 155.25 nú. Samkvæmt þessu hefur olíuverð á þessu tímabili 29.3-faldast. Á sama tíma hefur styrkur til niðurgreiðslu olíu hækkað úr 1800 kr. á ársfjórðungi fyrir hvern mann í 18 000 kr. á íbúa, eða tífaldast.

Athuganir hafa leitt í ljós, að verkamaður þurfti að greiða átta vikna dagvinnulaun fyrir gasolíu til upphitunar á fjölskylduíbúð miðað við kaupgjald og gasolíuverð 1. júlí 1973, 11.5 vikna dagvinnulaun miðað við kaupgjald og gasolíuverð, að frádregnum olíustyrk, 1. mars 1979 og 14.8 vikna dagvinnulaun miðað við kaupgjald og gasolíuverð, að frádregnum olíustyrk, 21. des. 1979. Tilsvarandi hlutfallstölur af árslaunum fyrir dagvinnu eru sem hér segir: 1. júlí 1973 15.4%; 1. mars 1979 22.1%; og 21. des. 1979 28.5%.

Ef sami maður hefði átt þess kost að kaupa tilsvarandi orku í heitu vatni frá Hitaveitu Reykjavíkur á tilgreindum viðmiðunartímum hefði 3.5 vikna dagvinnukaup nægt fyrir ársnotkun miðað við 1. júlí 1973, 2.5 vikna laun miðað við 1. mars 1979 og 2 vikna laun miðað við 21. des. 1979.

Samkvæmt þessu kostar olíukynding meira en tilsvarandi orka í heitu vatni frá Hitaveitu Reykjavíkur sem þessu nemur: Miðað við verðlag 1. júní 1973 4.5 vinnuvikur eða 8.7% af árslaunum. Miðað við verðlag 1. mars 1979 9 vinnuvikur eða 17.3% af árslaunum. Og miðað við verðlag 21. des. 1979 12.8 vinnuvikur eða 24.6% af árslaunum verkamanna í fiskvinnu miðað við 40 klst. vinnuviku. Er þá búið að draga frá olíustyrk eins og hann var á þeim tíma sem um var að ræða.

Það vekur sérstaka athygli, að á sama tíma og byrðar þess, sem býr við olíukyndingu, nálega tvöfaldast léttast yfir 40% byrðar þess, sem nýtur tilsvarandi orku í heitu vatni frá Hitaveitu Reykjavíkur.

Upplýsingar og samanburður á hitunarkostnaði, sem ég hef gert, byggjast á athugunum Fjórðungssambands Vestfirðinga, sem framkvæmdastjóri þess, Jóhann T. Bjarnason, hefur unnið. Vísa ég nánar um þetta efni til grg. með frv. og fylgiskjala. Athuganir þessar eru byggðar á rauntölum varðandi upphitunarkostnað á Ísafirði. En þær hafa fullt gildi til upplýsinga um ástand þessara mála um allt land hjá þeim sem búa við olíukyndingu íbúðarhúsnæðis, þar sem olíuverð er alls staðar það sama.

Það er úr þessu ástandi sem frv. þessu er ætlað að bæta. Meginstefna frv, er að komið sé til bjargar með því að gera mögulegt að olíukostnaður við olíukyndingu húsnæðis verði á hverjum tíma sem næst því sem upphitunarkostnaður er hjá nýjustu hitaveitum sem hafa jarðvarma að orkugjafa. Kostnaður við olíukyndingu yrði samkv. frv. ákveðinn eftir viðmiðunarreglu sem felur í sér sjálfvirkar breytingar á olíuniðurgreiðslu eftir hreyfingum á olíuverði og gjaldskrám hitaveitna. Þetta þýðir, að niðurgreiðsla olíu er tvöfölduð frá því sem verið hefur, miðað við verð á olíu og gjaldskrá hitaveitna þegar frv. var lagt fram. Skal ég nú gera nánari grein fyrir efni frv.

Til þess að ná þeim tilgangi, að kostnaður af olíukyndingu verði sem næst upphitunarkostnaði hjá nýjustu hitaveitum, er sett regla til að ákveða fjárhæð niðurgreiðslna af olíu. Ekki þykir viðhlítandi að miða gagngert við nýjustu hitaveitu á hverjum tíma, þar sem um gæti verið að ræða afbrigðilegan kostnað í sumum tilfellum. Þess vegna er sett viðmiðunarregla sem er ætlað að gefa festu í framkvæmd til þess að ná settu marki.

Í frv. er þannig kveðið á um þetta, að verð olíu skuli greitt niður sem nægir til að olíukostnaður við kyndingu húsa verði eigi hærri en sem nemur 2.5- földu vegnu meðalverði hjá hitaveitum landsins sem hafa jarðvarma að orkugjafa. Samkvæmt þessu er fjárhæð niðurgreiðslu á olíu miðuð við verð hjá hitaveitum. Þetta verð er fundið með því að reikna út svokallað vegið meðattal, þannig að orkuverð hverrar hitaveitu í kr./kwst. er margfaldað með tölu íbúa á hverju hitaveitusvæði. Margföldunartölurnar fyrir allar hitaveiturnar eru lagðar saman og loks deilt í summu þeirra með samanlögðum íbúafjölda allra hitaveitusvæðanna. Er þá komið hið vegna meðaltal, sem síðan er margfaldað með 2.5. Miðað við gjaldskrá hitaveitna, þegar frv. þetta var lagt fram, kemur þá út orkuverðið 9.68 kr./kwst., en orkuverðið hjá nýrri hitaveitu, Hitaveitu Suðurnesja, er nú 8.63 kr./kwst. Þetta þýðir að olía til húshitunar, sem nú kostar 23.70 kr./kwst. er greidd niður í 9.68 kr./kwst.

En viðmiðunarregla þessi felur í sér sjálfvirkar breytingar á fjárhæð niðurgreiðslna á olíu, þar sem hún skal ákveðast fjórum sinnum á ári eftir gjaldskrám hitaveitna og olíuverði á hverjum tíma. Þannig getur niðurgreiðsla á olíu farið vaxandi eða minnkandi eftir því hver þörfin er til að ná því markmiði, að kyndingarkostnaður verði sem næst upphitunarkostnaði hjá nýjustu hitaveitum.

Kostnaður við hitun 450 m3 einbýlishúss er nú áætlaður 978 þús. kr. á ári ef kynt er með olíu. Ef fjögurra manna fjölskylda býr í húsinu fengi hún 288 þús. kr. í olíustyrk á ári. Raunverulegur kyndingarkostnaður er því 690 þús. kr. á ári. Nemur þá niðurgreiðslan 29.5% af olíuverði. Í frv. þessu, sem hér er til umræðu, felst, þegar það er lagt fram, að niðurgreiðsla á verði olíu til húshitunar verður 59%. Þetta þýðir að í dæmi því, sem hér er tekið, nemur olíustyrkurinn á ári 576 þús. kr. í stað 288 þús kr., eða styrkurinn tvöfaldast. Raunverulegur kyndingarkostnaður verður 402 þús. kr. í stað 690 þús. kr.

Í frv. er að finna ákvæði um hverjir skuli njóta niðurgreiðslu á olíu og um form olíustyrkja. Er í þessu efni sumt óbreytt frá gildandi lögum, en annað felur í sér veigamiklar breytingar frá því sem verið hefur.

Í gildandi lögum er svo mætt fyrir, að olíustyrkir skuli greiðast hverjum framteljanda til skatts og einnig vegna maka og barna sem eru á framfæri hans. En í þessu frv. er gert ráð fyrir að styrkur vegna hverrar íbúðar sé greiddur einum aðila, þ.e. húsráðanda. Húsráðandi íbúðar er eigandi íbúðar eða leigjandi íbúðar. Einstaklingur, sem leigir herbergi í húsnæði hjá öðrum, telst í þessu sambandi einn í fjölskyldunni og olíustyrkur vegna hans greiðist húsráðanda. Þetta horfir til einföldunar í framkvæmd niðurgreiðslnanna.

Önnur og eigi veigaminni breyting er fólgin í því ákvæði frv. að upphæð olíustyrks fari bæði eftir fjölskyldustærð og stærð íbúðar. Í gildandi lögum er ekki tekið tillit til íbúðarstærðar. Þá er ekki tekið tillit til raunverulegrar orkunotkunar. Þetta getur verið sérstaklega óréttlátt gagnvart fólki sem býr eitt sér í íbúð, og á það oft við gamalt fólk. Er þá vegið að þeim er síst skyldi. Með frv. þessu er ætlunin að gera hér bragarbót á. Í reglugerð verður svo að kveða nánar á um með hverjum hætti skuli ákveða upphæð olíustyrkja, Skal þá að sjálfsögðu við það miðað, að olía verði í hverju tilfelli greidd niður sem næst að sama hundraðshluta og nemur heildarniðurgreiðslunni. Athyglisverðar eru hugmyndir um leiðir til að ákveða upphæð olíustyrkja, sem settar eru fram í nál. um jöfnun á hitunarkostnaði frá okt. s.l., sem samið var af nefnd sem fyrrv. iðnrh. skipaði til að gera tillögur um leiðir til jöfnunar á hitunarkostnaði.

Það er nýmæli í frv., að olíustyrki skal greiða til þeirra sem nota olíu til upphitunar atvinnuhúsnæðis. Þetta þykir eðlileg ráðstöfun til þess að jafna þann aðstöðumun sem nú er hjá atvinnurekstrinum í landinu eftir því, hvert orkuverðið til húshitunar er. Þessi niðurgreiðsla færi fram með beinum framlögum til hvers fyrirtækis eða atvinnurekanda fyrir sig.

Frv. gerir ráð fyrir niðurgreiðslu olíu til skóla og annarra menningarstofnana, sjúkrahúsa og annarra heilbrigðisstofnana og dvalarheimila fyrir unga og aldna. Þetta ákvæði ber að skýra rúmt, og heyra hér undir t.d. kirkjur, þótt ekki sé sérstaklega nefnt. Í núgildandi lögum er aðeins gert ráð fyrir að heimavistarskólar á grunnskólastigi njóti olíustyrks. Hér er því um að ræða víðtækari niðurgreiðslu en nú er.

Lagt er til með frv. þessu að olíustyrkur sé greiddur þeim aðilum sem ekki eiga kost á raforku frá samveita og verða að leysa orkuþörf sína með rekstri dísilstöðva. Þetta kemur í þarfir bænda, sem enn njóta ekki sveitarafvæðingarinnar. Ákvæði þetta er óbreytt frá gildandi lögum.

Enn er ótalið að verð olíu, sem hitaveitur nota sem orkugjafa og rafveitur nota til framleiðslu rafmagns til upphitunar húsa, skal greitt niður. Hér er gert ráð fyrir að greiða orkuveitum styrki sem koma til góða orkunotendum í lægri gjaldskrám. Það er nýmæli, að olía sé greidd niður til hitaveitna sem nota þann orkugjafa. Að því marki sem olía er notuð tekur þessi niðurgreiðsla einnig til hitaveitna sem bæði nota jarðvarma og olíu. Hins vegar er það ekki nýmæli, að greidd sé niður olía til framleiðslu rafmagns, eins og hér er gert ráð fyrir, því að svo er mælt fyrir í gildandi lögum: Styrki skal greiða rafveitum að því marki sem þær nota olíu sem orkugjafa til framleiðslu rafmagns til hitunar húsnæðis.

Áríðandi er að engir hljóti olíustyrk aðrir en þeir sem til er ætlast. Bein ákvæði um þetta er að finna í frv. Lögð er áhersla á að öll framkvæmd þessara mála verði sem einföldust og þess gætt að koma í veg fyrir misnotkun á niðurgreiðslunni.

Sú skipan er nú, að viðskrh. fer með mál er varða olíuniðurgreiðslu. Hér er gert ráð fyrir að á verði sú breyting, að mál þessi heyri undir iðnrh. Þykir þetta eðlileg breyting þar sem hér er um að ræða orkumál og þau fer iðnrh. með.

Er þá komið að kostnaði af niðurgreiðslunni. Í frv. segir að ríkissjóður skuli greiða í Orkusjóð óafturkræft framlag, sem varið skal til að greiða niður verð á olíu til upphitunar húsa. Það er nýmæli, að þetta fjármagn gangi gegnum Orkusjóð. Þykir það eðlileg meðferð og er hliðstætt því sem nú er um verðjöfnunargjald af rafmagni.

Útgjöld ríkissjóðs vegna olíuniðurgreiðslunnar verða breytileg eftir hreyfingum á verði olíu og gjaldskrám hitaveitna. Og þegar lítið er til lengri tíma koma fram áhrifin af þeim orkuframkvæmdum sem nú er unnið að og gera mögulegt að hita upp húsnæði með innlendum orkugjöfum í stað olíu. Hefur nú verið sett fram það markmið, að um 80% af því húsnæði, sem í árslok 1978 var hitað upp með olíu, verði á árinu 1983 hitað upp með innlendum orkugjöfum. Gangi þetta fram hraðminnkar á næstu árum það fjármagn sem þarf til niðurgreiðslu olíu. Það ber því að líta á þau miklu fjárútlát, sem frv. þetta gerir ráð fyrir, sem bráðabirgðaskipan. En til þess að svo verði má einskis láta ófreistað að hraða þeim orkuframkvæmdum, sem leysa olíuna af hólmi til húshitunar, svo og að leggja áherslu á orkusparandi aðgerðir.

En hvað sem þessu líður felur frv. í sér mikinn kostnað á árinu 1980. Áætla má að niðurgreiðslan á þessu ári muni nema 7-8 milljörðum kr. Um þetta efni vísa ég til útreikninga á áætluðum niðurgreiðslum olíu, sem Edgar Guðmundsson verkfræðingur hefur gert og er að finna á fskj. VI. með frv.

Þá er til þess að taka, hvernig eigi að gera ríkissjóði mögulegt að mæta þeim útgjöldum sem frv. þetta felur í sér. Langt er nú síðan talið var sjálfsagt að leggja fram almannafé til jöfnunar á hitunarkostnaði í landinu. Með lögum nr. 5/1975, um álagningu sérstaks gjalds til að draga úr áhrifum olíuverðshækkana, var fjár aflað til niðurgreiðslu olíu með því að leggja 1% gjald á söluskattsstofn. Áætlað var að þessi tekjustofn gæfi fyrir árið 1980 rúma 5 milljarða kr. En tekjustofn þessi er nú ekki lengur fyrir hendi. Hann var aflagður árið 1977. Síðan hefur sú skipan verið, að fjárhæð þeirri, sem ákveðin er í fjárlögum hverju sinni, skuli varið til að draga úr áhrifum olíuverðshækkunar á hitunarkostnað íbúða.

Ef frv. þetta verður samþykkt, sem ég vænti fastlega, bæri að ákveða fjárhæð í fjárlögum hverju sinni fyrir útgjöldum samkv. því. Það væri að formi til óbreytt skipan frá því sem nú er. En það er eftir spurningin, hvar eigi að taka peningana. Fyrir mitt leyti svara ég þessu á þann veg, að það skuli gert án skattahækkana með því að skera niður á móti önnur útgjöld ríkisins. Það mætti gera á árinu 1980 með flötum niðurskurði á öðrum málaflokkum en orkumálum. Ég reikna í þessu sambandi ekki með þeim útgjöldum ríkissjóðs sem hann á að bera að óbreyttum reglum um niðurgreiðslu olíu. Ég geri ekki ráð fyrir að nokkur fyrirfinnist, sem vilji afnema niðurgreiðslu á olíu eða minnka hana frá því sem nú er. Þess vegna hef ég í huga niðurskurð sem svarar viðbótariðgjöldum ríkissjóðs vegna þessa frv., en það mundi nema um 1% af fjárlagaupphæð. Hin leiðin er að fá ríkissjóði markaðan tekjustofn til að standa undir olíuniðurgreiðslunni eins og áður var. Það fer væntanlega eftir ríkjandi stjórnarstefnu í ríkisfjármálum hvor aðferðin yrði viðhöfð. En hvaða leið sem farin yrði felur þetta frv. í sér, að undir niðurgreiðslu olíu sé staðið með skatttekjum ríkissjóðs, svo sem alltaf hefur verið.

Frv. þetta fjallar ekki um heildarskipan á verð jöfnun á þeim orkugjöfum sem þjóðin notar. Það mál er í biðstöðu nú og tekur tíma að leysa. En hvaða skoðun sem menn kunna að hafa á verðjöfnun hljóta allir sanngjarnir menn að sjá, að við svo búið má ekki sitja sem nú er hjá þeim hluta þjóðarinnar sem notar olíu til upphitunar húsa. Þær búsifjar, sem verðhækkun olíu veldur þessu fólki, eru svo miklar að jafna má við áföll vegna náttúruhamfara eða aðra óáran, sem sjálfsagt þykir að hið opinbera bæti úr þegar í stað. Aðgerðaleysi í þessum efnum er í hróplegri mótsögn við anda þeirrar samhjálpar og skilnings sem þjóðin er vön að sýna þeim sem ínauðum eru staddir.

En hér er ekki einungis um sanngirnismál að ræða, heldur hagsmunamál þjóðarheildarinnar. Ef ekkert er aðhafst og ekki er skjótt við brugðið vofir yfir brottflutningur fólks frá olíuhitunarsvæðunum og stórfelld byggðaröskun í landinu öllum til ómælanlegs tjóns.

Í þessu ljósi ber að líta á það frv. sem hér er til umræðu. Herra forseti. Að loknum þessum umræðum legg ég til að frv. verði vísað til 2. umr. og iðnn.