28.01.1980
Neðri deild: 29. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í B-deild Alþingistíðinda. (660)
75. mál, meðferð mála vegna rangrar notkunar stöðureita
Dómsmrh. (Vilmundur Gylfason):
Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr. um sérstaka meðferð mála vegna rangrar notkunar stöðureita fyrir ökutæki o.fl., er nú lagt fram öðru sinni, en frv. var upphaflega flutt undir þinglok veturinn 1977–1978. Var því þá vísað til n., en kom ekki til frekari meðferðar á Alþingi.
Frv. þetta er, eins og segir í aths., samið af réttarfarsnefnd að ósk dómsmrn. og fjallar um umfangsmikinn þátt mála, er lögregla og dómstólar fást við, og miðar að einföldun og hraðari meðferð þeirra. Fjöldi þeirra mála er mjög mikill. Má nefna sem dæmi að miðar festir á bifreiðar í Reykjavík vegna vanskila á að greiða í stöðumæli voru 77 594 á síðasta ári. Er ökumanni þá boðið að ljúka máli sem greiðslu svokallaðs aukaleigugjalds. Nú lýkur ekki öllum málum með því og voru í Reykjavík gefin út 34 166 sektarboð á síðasta ári af hálfu lögreglustjóra í þeim tilvikum. Ef sektarboði er ekki tekið er máli svo vísað til dómara.
Ljóst er að miklu varðar ef unnt er að einfalda meðferð þessara mála. Frv. þetta miðar að slíku. Er lagt til að hætt verði að meðhöndla mál þessi sem refsimál. Málin eru „afkriminaliseruð“, eins og það er stundum kallað, og þá meðhöndluð sem einkamál. Hefur svo þegar verið gert í nágrannalöndum okkar og gefið góða raun. Frv. fjallar nánar um meðferð þessara mála, sem ég tel ekki ástæðu til að rekja hér frekar, en vísa til grg. sem með frv. er.
Rétt er að geta þess, að frv. er flutt óbreytt eins og það var lagt fram hið fyrra sinni. Frv. hafði þá verið sent Umferðarráði til umsagnar og komu ýmsar ábendingar fram í umsögn þess um atriði sem talið var að koma mætti fyrir með öðrum hætti þótt meginhugsun frv. sé í rétta átt. Ábendingar Umferðarráðs voru sendar þn. þeirri sem málið fékk til meðferðar þá. Þá hefur komið fram að borgaryfirvöld í Reykjavík, m.a. umferðarnefnd Reykjavíkur, eru að fjalla um málin þessa dagana. Er rétt að þn. sú, sem fær málið nú til meðferðar, kynni sér ábendingar Umferðarráðs og viðhorf borgaryfirvalda, en hér er um að ræða mál sem einnig snertir hagsmuni sveitarfélaga og þá sér í lagi Reykjavíkurborgar.
Herra forseti. Ég tel ekki rétt að hafa fleiri orð um þetta, en legg til að frv. verði að lokinni umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.