28.01.1980
Neðri deild: 29. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 572 í B-deild Alþingistíðinda. (665)
58. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Hér er vissulega hreyft mikilvægu máli, en ég held að það sé ekki nema lítill hluti af því sem þarf um að tala í sambandi við jöfnun á aðstöðu.
Þetta frv. gerir ráð fyrir að ákveðnum hluta af tekjum Byggðasjóðs verði varið til jöfnunar á raforkuverði í landinu. Út af fyrir sig er það góðra gjalda vert. En ég held að nauðsynlegt sé að menn horfist í augu við þann vanda sem er í heild í sambandi við ekki einungis raforkumálin, heldur og upphitunarkostnaðinn sem er orðinn mjög stór baggi á að vísu tiltölulega litlum hluta þjóðarinnar, en slíkur baggi að hann er að verða — ef ekki þegar orðinn — það mikið vandamál að hann mun valda stórkostlegri byggðaröskun ef ekki verður þegar í stað tekið á því máli.
Ég hygg að öllum hv. þm. sé þetta ljóst, en sé þeim það ekki er nauðsynlegt að þeir kynni sér það, að nú er svo komið að á svonefndum olíukyndingarsvæðum þarf hver íbúðareigandi að borga á bilinu frá 100–130 þús. a.m.k. í hverjum einasta mánuði til að hita upp venjulegt íbúðarhúsnæði. Það segir sig sjálft að fólk á olíukyndingarsvæðum unir ekki slíku ástandi öllu lengur. Ég held því að þó að þetta frv. sé út af fyrir sig góðra gjalda verð tilraun til að jafna aðstöðu manna sé það ekki nema brot af því sem þarf að gera.
Ég tek undir það sem hv. síðasti ræðumaður sagði. Ég held að fara þurfi aðra leið í þessu efni og taka allt dæmið með í reikninginn. Og ég sé ekki að Alþ. geti lengur daufheyrst við því að hér verði tekið til hendinni og lausn verði fundin á líklega einu mesta hagsmunamáli fyrir þann hluta þjóðarinnar sem býr við þessi kjör nú — eða ókjör kannske réttara sagt.
Ég skal ekki fara öllu fleiri orðum um þetta. Ég tel nauðsynlegt að það verði nú þegar gerð að því gangskör að leysa málið á heildargrundvelli þannig að hinn gífurlegi mismunur hverfi og þeim drápsklyfjum, sem nú hvíla á líklega um eða yfir 20% af þjóðinni, verði af því fólki létt og það sem allra fyrst.
En menn hafa ekki aðeins rætt jöfnun á orkuverði í umr. um þetta mál. Menn hafa rætt almennt um Framkvæmdastofnun sem slíka. Mér finnst oft þegar ég hlýði á slíkar umr. furðu gegna það sem sumir þm. láta út úr sér um þá stofnun. Það er eins og þar sé um slíka stofnun að ræða að varla sé verjandi að hafa hana til í þjóðfélaginu. Mér heyrist á sumum hverjum þm. að þar sé á ferðinni slíkt fyrirtæki að það ætti sem allra fyrst að leggja upp laupana. Ég er annarrar skoðunar. Ég tel að á þeim tiltölulega stutta tíma, sem stofnunin hefur starfað, hafi Framkvæmdastofnun og Byggðasjóður látið margt gott af sér leiða. Stofnunin hefur breytt búsetumöguleikum víðs vegar úti á landsbyggðinni þannig að staðir, sem áður voru í sannkallaðri niðurníðslu, eru nú að mörgu leyti orðnir mjög byggilegir. Ég er ekki með þessu að segja alfarið að ekki megi setja út á þessa stofnun, það er ýmislegt sem þar mætti bæta og svo er að sjálfsögðu um öll mannanna verk, en í heild tekið held ég að stofnunin hafi náð þeim tilgangi sem henni var ætlað þegar hún var sett á fót.
Menn tala um að þm. eigi ekki að sitja í hinum og þessum stofnunum og útdeila fjármunum, það eigi einungis að vera verkefni embættismanna í kerfinu. Ég er síður en svo á þeirri skoðun. Ég tel ekkert alfarið réttlætismál að það sé embættismannanna að útdeila úr sjóðum eða stofnunum, það sé ekkert síður þörf á því að þm., sem kjörnir eru af almenningi í landinu, hafi puttana á þeim afgreiðslum.
Menn tala um fyrirgreiðslupólitík af öllu tagi, ekki síst í Framkvæmdastofnun. Það má vel vera að eitthvað slíkt megi finna þar. En ég efast um að þar yrði réttlátar skipt þó að einhverjir embættismenn úr kerfinu kæmu til og hefðu síðasta orðið í þeim efnum. (Gripið fram í: Fá siðferðisvottorð hjá forstjórunum.) Það má vel vera að þetta sé siðferðisvottorð frá forstjórunum. Þeim, sem ekki líkar, er þá í lófa lagið að koma hér upp á eftir og bæta um betur ef þeir hafa eitthvað annað mat á þeim forstjórum sem um er að ræða. En það er ekki sérstök ástæða fyrir mig að vera neitt að hæla þeim tilteknu tveim forstjórum sem nú eru taldir vera fyrir þessari stofnun.
Ég tel að það sé síður en svo alfarið nauðsynlegt að útiloka þm., hverju nafni sem þeir nefnast, frá því að vera með í ráðum þegar verið er að úthluta fjármagni sem á að fara til þess fyrst og fremst, eins og í þessari stofnun, að auka atvinnuuppbyggingu á þeim stöðum sem hafa orðið á eftir og hafa orðið úti vegna rangrar stjórnarstefnu á hinum ýmsu tímum. Það var og er tilgangur Framkvæmdastofnunar ríkisins að jafna búsetuna þannig að það sé í raun og veru nánast sama hvar á landinu menn búa, að þeir eigi að hafa sem jafnasta aðstöðu. (Gripið fram í.) Er það hæstv. dómsmrh. sem þarna er kominn?
Það er kannske ástæðulaust að vera að ræða öllu meira um þessa hluti í þessum dúr. En fyrst menn hefja almennar umr. um Framkvæmdastofnunina sem slíka er ég reiðubúinn til að taka þátt í þeim. Ég vildi að hér kæmi fram, að ég tel það ekki rétt sjónarmið hjá þeim sem halda því fram að þar hafi átt sér stað einhver sérstök fyrirgreiðslupólitík, sem menn tala þá um í óvirðingartón. Ég held að ef menn skoði málið fordómalaust, sem helst allir ættu að gera, komist menn að raun um að Framkvæmdastofnunin hefur verið þjóðþrifafyrirtæki sem var nauðsynlegt að koma á fót til að rétta hlut landsbyggðarinnar vegna þess hvernig farið var með hana á vissu árabili, er aðrir staðir í landinu voru látnir njóta forgangs af allri þeirri uppbyggingu sem þá átti sér stað. Stofnun þessi var svar við því sem hafði gerst á árunum þar á undan. Og það er síður en svo að því verkefni Framkvæmdastofnunar eða Byggðasjóðs sé lokið. Það er enn fyrir hendi fullt af verkefnum sem eru þess eðlis að nauðsynlegt er að sinna þeim og að þau hafi forgang til þess að rétta frekar hlut þeirra, sem höllum fæti standa víðs vegar úti á landsbyggðinni, og jafna þar með búsetu manna án tillits til þess hvar þeir eru búsettir á landinu.