28.01.1980
Neðri deild: 29. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 574 í B-deild Alþingistíðinda. (666)
58. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins
Flm. (Eggert Haukdal):
Herra forseti. Út af orðum hv. 5. þm. Austurl. vil ég geta þess, að þótt ríkið taki nú þegar á sig að standa undir hinum félagslega þætti RARIK, sem nauðsynlegt er að verði gert og þó fyrr hefði verið, eins og fram kom hjá honum, vantar enn stórfé til að jafna raforkuverðið. Um það fjallar þetta frv. Samkv. upplýsingum RARIK þarf til verðjöfnunar um 2 milljarða. Rafhitunarkostnaður er þar ekki meðtalinn, en afgangurinn af tekjum frv., eins og það liggur fyrir, færi til að jafna þann kostnað, og húshitunarkostnað allan í landinu þarf að sjálfsögðu að jafna, eins og hv. síðasti ræðumaður gat um.
Þessar umr. hafa að ýmsu leyti verið gagnlegar, og vil ég sérstaklega þakka þeim sem tekið hafa vel í málið. En mér hefur þótt á skorta hjá ýmsum ræðumönnum, einkanlega þegar þetta mál var til umr. um daginn, að taka á því máli, sem fyrst og fremst var til umr., að jafna orkuverðið í landinu, heldur vildu ýmsir hv. þm. þá gleyma sér í þeirri endalausu umræðu sem ávallt verður þegar Framkvæmdastofnun ríkisins ber á góma á hv. Alþ. Umr. varð þannig að hluta til að drepa á dreif jafnþýðingarmiklu máli sem jöfnun orkuverðsins er, og var það vissulega slæmt. Hins vegar vona ég þrátt fyrir það, að umr. veki til umhugsunar um þetta mál og við skoðun í n. náist samkomulag um raunhæfa lausn til að jafna raforkuverðið, þannig að um leið og menn hafna þeirri leið, sem í frv. felst, ef menn vilja það, bendi þeir á aðra sem leiði til sama markmiðs.