18.12.1979
Efri deild: 4. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í B-deild Alþingistíðinda. (67)

30. mál, kosningar til Alþingis

Dómsmrh. (Vilmundur Gylfason):

Herra forseti. Frv. þetta er flutt til staðfestingar á brbl. sem sett voru í haust þegar þing hafði verið rofið og kosningar ákveðnar í tvo daga. Efni brbl. var þríþætt. Í fyrsta lagi var nauðsynlegt vegna hins stutta tíma, sem var til kjördaga, að lengja þann tíma sem að lögum var til að skila framboði. Rann framboðsfrestur þannig út tveimur vikum og þremur dögum fyrir kjördag í stað fjögurra vikna og þriggja daga. Jafnframt varð að fresta því, að utankjörfundaratkvæðagreiðsla gæti hafist. Hófst hún 22 dögum fyrir kjördag í stað 28 daga, en tími kjörstjórnar til að úrskurða framboð styttist þannig um einn dag.

Í öðru lagi var rýmkaður réttur kjósanda til að greiða atkv. utan kjörfundar, ef kjósandi hafði ástæðu til að ætla að veður eða færð mundi hamla honum að sækja kjörfund á kjördegi.

Í þriðja lagi voru sett ákvæði um framkvæmd kosninga í tvo daga og heimild til þriðja dags. Ákvæði þessi voru samin eftir hliðstæðum ákvæðum um haustkosningar 1942, 1949 og 1959.

Ekki er ástæða til að hafa fleiri orð um efni brbl. Ekki er kunnugt að efni þeirra hafi sætt gagnrýni. Hér er um að ræða liðin atvik sem ekki verða aftur tekin. Kosningar hafa farið fram og þrátt fyrir hrakspár tókst framkvæmd þeirra eftir öllum atvikum vel. Samkvæmt stjórnarskránni ber að leggja mál þetta fyrir Alþ. til meðferðar. Ég leyfi mér að leggja til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.