29.01.1980
Sameinað þing: 17. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í B-deild Alþingistíðinda. (675)

71. mál, smásöluverslun í dreifbýli

Fyrirspyrjandi (Sigurgeir Bóasson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. viðskrh. fyrir svör hans við fsp. Eins og fram kom í svari ráðh. hefur lítið verið gert í þessum málum. Það, sem einna helst hefur verið gert, er að það hefur verið skipuð enn ein nefndin, og mér sýnist að þessi mál ætli að vera mjög lengi á umræðustiginu. En mörg undanfarin ár hafa margvíslegar athuganir og kannanir verið gerðar í þessum málum, og fyrirliggjandi eru miklar upplýsingar um hvern einstakan þátt. Ég er þó ekki með þessu að ásaka núv. hæstv. viðskrh., því að það er greinilegt, að ekkert samband er á milli seinagangsins í þessum málum og þess, hver hefur verið viðskrh. á hverjum tíma. Ég vil hins vegar skora á hæstv. ríkisstj. — eða væntanlega hæstv. ríkisstj. — að taka af skarið og koma í framkvæmd þessum umbótamálum verslana í dreifbýli.