29.01.1980
Sameinað þing: 17. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 591 í B-deild Alþingistíðinda. (682)

217. mál, kaup og sala á togurum

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Aths. skal vera örstutt. Í ræðu minni átti ég við með einkunninni útgerðarbraskari í þessu sambandi þá menn sem er látið haldast uppi að sigla samtímis því með aflann sem takmarkaðar eru þorskveiðar og ýsuveiðar fyrir frystihúsin og fólkið sem vinnur í frystihúsunum, í stað þess að hafa atvinnu fyrir fólkið sem er að auka verðmæti aflans. Ég átti við þá menn sem er látið haldast uppi að taka þennan fisk frá fólkinu, sem vantar hráefni til vinnslu, og sigla með hann til útlanda til að selja hann á hæsta verði, þegar markaðir falla þar til, til þess að standa undir rekstri á skipum sem þeir hafa engan siðferðilegan eða eðlilegan rétt á að hafa undir höndum.