18.12.1979
Neðri deild: 4. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í B-deild Alþingistíðinda. (70)

32. mál, eftirlaun til aldraðra

Félmrh. (Magnús H. Magnússon):

Herra forseti. Frv. það til l. um eftirlaun aldraðra, sem hér er til umr., er nú lagt fyrir Alþ. sem stjfrv. í þriðja sinn. Á 100. löggjafarþingi hafði það hlotið afgreiðslu í Ed. þingsins, en stöðvaðist í Nd. eftir afgreiðslu þar við tvær umr. Frv. var einnig lagt fram á 101. löggjafarþingi, en kom þá ekki til umr. af alkunnum orsökum.

Hér er á ferðinni mikið sanngirnis- og réttlætismál, eins og ég veit að hv. þm. gera sér allir ljósa grein fyrir. Nú, þegar rutt hefur verið úr vegi þeim ágreiningsefnum, sem varða fjárhagsákvæði frv. og urðu framgangi þess til trafala á s.l. vori, treysti ég því, að eftirleikurinn verði auðveldur og greiður.

Ég fylgdi þessu frv. úr hlaði í fyrravetur með ítarlegri framsöguræðu nm aðdraganda þess og efni. Mun tæpast þörf svo gagngerrar umfjöllunar nú, enda efni frv. sjálfsagt ljóst í hugum þeirra sem hér áttu sæti á s.l. vetri, en framsaga mín frá þeim tíma aðgengileg í Alþingistíðindum hinum, sem ekki sátu á Alþ. þá. Þó þykir mér hlýða að gera stuttlega grein fyrir helstu efnisatriðum.

Rétt er að víkja þá fyrst að því, til hve margra hin nýju lífeyrisréttindi ná samkv. frv. Áætlað hefur verið að um s.l. áramót hafi fjöldi fólks 70 ára og eldra verið nálægt 14 700 hér á landi. Af þeim hópi eru nú um 6000 taldir njóta verðtryggðs lífeyris með beinum eða óbeinum hætti á grundvelli laga frá 1971 um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum og hliðstæðra ákvæða í lögum um Lífeyrissjóð bænda. Um það bil 2400 hafa slík réttindi í lífeyrissjóðum hins opinbera og bankamanna. Eftir standa þá um það bil 6300 manns sem njóta ýmist engra eða mjög óverulegra réttinda. Þar af er áætlað að með þessu nýja frv. öðlist um 4500 manns verðtryggð lífeyrisréttindi beint eða óbeint.

Spyrja má hverjir standi þá enn utan þessa kerfis. Það eru samkv. framansögðu um það bil 1800 manns sem skiptast einkum í tvo flokka. annars vegar er fólk á aldursbilinu 70–75 ára sem enn stundar vinnu. Þetta er töluvert fjölmennur hópur sem nýtur fullra réttinda samkv. frv., en frestar einungis töku lífeyrisins. Hins vegar er fólk sem hefur ekki haft neinar tekjur, hvorki launatekjur né aðrar atvinnutekjur s.l. 15 ár. Auðvitað má um það deila, hvort átt hefði að reyna að ná einnig til þessa síðari hóps. En þá er þess að gæta, að lífeyrissjóðsgreiðslum er einkum ætlað það hlutverk að jafna þá röskun sem verður á högum manna er þeir hafa aflað tekna sér til lífsviðurværis, en missa þeirra svo skyndilega við þegar starfsorkan glatast fyrir aldurs sakir eða vegna örorku. Slík röskun verður ekki á högum þeirra sem engra tekna hafa aflað. Auk þess er óhjákvæmilegt að hafa einhverja viðmiðun til að byggja á útreikning um réttindaávinning. Er örðugt að sjá hvernig þar er hægt að ganga lengra en svo að miða við atvinnutekjur. Töluverður hluti þessa fólks er á dvalarheimilum, hjúkrunarheimilum eða sjúkrahúsum og nýtur þar í gegn verulegs stuðnings.

Ég vík þá næst að fjárhæð lífeyrisins. Hún ræðst að mestu af því, hve hárra tekna viðkomandi aflaði síðustu 15 árin áður en taka lífeyrisins hófst. Byggt er á sérstökum stigaútreikningi, þar sem deilt er í atvinnutekjur lífeyrisþegans hvert ár með svonefndum grundvallarlaunum ársins. Grundvallarlaunin eru árslaun samkvæmt 2 taxta Dagsbrúnar miðað við fast dagvinnukaup í 52 vikur og með fullri starfsaldurshækkun. Hafi raunverulegar tekjur lífeyrisþegans verið jafnar þessum viðmiðunarlaunum, fær hann eitt stig fyrir hvert ár eða samtals 15 stig. Stigin eru síðan margfölduð með 1.8 og fæst þá það hlutfall grundvallarlaunanna sem viðkomandi fær greitt mánaðarlega í lífeyri. Þannig gefa 15 stig 27% af grundvallarlaunum, sem eru nú 243 354 kr., eða 65 706 kr. á mánuði. Ef lífeyrisþeginn heldur áfram að vinna eftir 70 ára aldur, reiknast honum stig áfram þar til hann er orðinn 75 ára. Séu laun hans áfram hin sömu og grundvallarlaunin bætir hann við sig 5 stigum og á þá rétt til lífeyris sem er 36% af þessum grundvallarlaunum eða um 87 600 kr. á mánuði. Þessar upphæðir geta síðan hækkað eða lækkað eftir því hvort tekjur lífeyrisþegans voru hærri eða lægri en grundvallarlaunin þau ár sem stigaútreikningurinn miðast við.

Mikilvægt er að þessar lífeyrisgreiðslur skerða ekki eftirlaunin frá almannatryggingum í þeim tilvikum, þegar viðkomandi hefur engar aðrar tekjur en lífeyri og eftirlaun. Heildarráðstöfunarfé getur því orðið eftir samþykkt frv., sé miðað við einstakling, ellilaun 77 142 kr. á mánuði, tekjutrygging 70 857 kr. á mánuði og lífeyrir samkv, frv. 66–88 þús. kr. á mánuði til viðbótar, svo að algengt dæmi sé tekið. Ég ítreka það, að hér er átt við einstakling. Ráðstöfunarféð er þá orðið um 214–236 þús. kr. á mánuði. Verður að ætla að með þessum greiðslum sé þjóðfélagið búið að rækja með dágóðum sóma, a.m.k. miðað við það sem verið hefur, þá grundvallarskyldu sína að tryggja afkomuöryggi þeirra sem glata starfsorku sinni vegna aldurs eða örorku.

Frv. tekur ekki eingöngu til ellilífeyris. Það veitir rétt til örorkulífeyris, þegar orkutap er metið 40% eða meira, og einnig til makalífeyris, þ.e. lífeyris til eftirlifandi maka þess sem rétt átti til lífeyrisgreiðslna samkv. frv. eða hefði getað öðlast slíkan rétt með áframhaldandi réttindavinnslu. Réttindaávinningur samkv. frv. byggist á því, hverjar atvinnutekjur lífeyrisþegans væru. Með atvinnutekjum er átt við hvers konar launagreiðslur, en auk þess arð eða gróða sem sjóðfélaga hlotnaðist af atvinnu sinni. Skiptir þá ekki máli hvort unnið var við eigin atvinnurekstur eða í þjónustu annarra. Hlunnindi eru reiknuð á skattmatsverði. Gert er ráð fyrir að setja um þetta nánari ákvæði í reglugerð. Aðstoð við atvinnurekstur hjóna telst hins vegar ekki til atvinnu í þessu sambandi, ef hún er eingöngu færð sem frádráttarliður á skattframtali.

Sú spurning vaknar sjálfsagt hjá ýmsum, hvernig unnt sé að afla upplýsinga um atvinnutekjur fólks allt að 15 ár aftur í tímann. Þetta er leyst þannig, að farið er eftir iðgjöldum sem hlutaðeigandi kann að hafa greitt til lífeyrissjóðs. Að öðrum kosti er stuðst við upplýsingar skattstjóra. Þegar fara þarf lengra aftur í tímann en upplýsingar lífeyrissjóðs og skattstjóra ná skal miða við meðaltal stiga þriggja bestu áranna sem upplýsingar eru til um. Með þessum hætti fæst þó ekki meira en eitt stig fyrir hvert ár.

Allur lífeyririnn samkv. frv. er verðtryggður og hækkar ársfjórðungslega í samræmi við hækkun kauptaxta í landinu.

Unnt verður að fá samtímis fleiri en eina tegund lífeyris. Þannig getur maður notið samtímis makalífeyris eða elli- og örorkulífeyris, þó aldrei hærri upphæðar en sem svarar til 20 stiga. Hins vegar fellur niður greiðsla örorkulífeyris þegar ellilífeyririnn tekur við.

Greiðslur, sem menn kunna að eiga tilkall til frá einhverjum lífeyrissjóði og hliðstæðar greiðslur úr ríkissjóði, koma til frádráttar lífeyri samkv. þessu frv. Tilgangur þess er ekki að veita mönnum margfaldan rétt, heldur að tryggja ákveðin lágmarksréttindi.

Lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn eða eitt samræmt lífeyriskerfi er auðvitað lokatakmarkið. Líta ber á þetta frv. sem áfanga að því marki, vissulega stóran og mikilsverðan áfanga. En lokatakmarkinu verður tæplega náð fyrr en að 1–2 árum liðnum. Það er vandasamt verk og viðkvæmt, sem ekki má rasa að.

Ég ætla þá að víkja að fjárhagsákvæðum frv. Ágreiningsefnin varðandi þau voru þríþætt þegar frv. var til umræðu s.l. vor. Laut hið fyrsta að hlutdeild Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í fjármögnun hinna nýju lífeyrisgreiðslna. Var að þeirri tilhögun fundið nema til kæmu lagfæringar á tekjustofnun sveitarfélaga og það eins þótt fullgild rök standi til nokkurrar aðildar sveitarfélaganna að þessu máli. Úr þessu var bætt með þeim hætti, að Jöfnunarsjóði var fengin hlutdeild í þeirri hækkun söluskatts sem ákveðin var með brbl. nr. 73 frá 10. sept. 1979. Áætlað er að þessar nýju söluskattstekjur Jöfnunarsjóðs nemi um 800 millj. kr. á næsta ári, en útgjöld hans aukist hins vegar um 450 millj. vegna eftirlaunanna. Er þá reyndar við það miðað, að fram sé kominn allur kostnaður af hinum nýju lífeyrisréttindum. Í raun mun það hins vegar verða smám saman og á nokkuð löngum tíma. Þessar tölur um tekjur og útgjöld Jöfnunarsjóðs eru í báðum tilvikum miðaðar við kauplagsforsendur fjárlagafrv.

Í öðru lagi varð ágreiningur um þá tilhögun, að lífeyrissjóðir á samningssviði Alþýðusambands Íslands og Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og vinnuveitenda greiddu 1% af iðgjaldatekjum sínum til að kosta hinar nýju lífeyrisgreiðslur. Það framlag svarar til um 150 millj. kr. á næsta ári. Andmæli komu fram hér í þinginu við þessa tilhögun, og henni var eindregið mótmælt í bréfi sem fulltrúar aðila vinnumarkaðarins aðrir en BSRB og fulltrúi Landssambands lífeyrissjóða sendu sameiginlega til formanns heilbr.- og trn. Ed. hinn 27. apríl s.l. í því bréfi var m.a. vitnað til þess, að samkomulag það, sem þessir aðilar gerðu árið 1976 og endurnýjuðu ári síðar, um að leggja 4% iðgjaldatekna sinna í sameiginlegan sjóð til að standa undir verðbótum á lífeyri, væri sjóðunum þungur baggi og hefði óheppileg áhrif á stöðu þeirra til lengri tíma litið.

Einnig var á það bent, að verðtryggingin legðist mjög misþungt á hina einstöku sjóði, þannig að sumir þeirra þyrftu að kosta til hennar fast að þriðjungi allra iðgjaldatekna sinna á þessu ári. Var áréttuð nauðsyn þess, að meiri samhjálp kæmi til milli allra sjóðanna til að leysa þennan vanda. Í viðræðum við fulltrúa þessara aðila nú í haust varð svo samkomulag um það, að fallið yrði frá ráðgerðu framlagi þessara lífeyrissjóða til hinna nýju eftirlauna, þess í stað gengi tilsvarandi fjárhæð til sameiginlega sjóðsins til greiðslu lífeyrisuppbótarinnar til viðbótar þeim 4% sem sjóðirnir greiða þangað nú. Hefur fjárhagsákvæðum frv. verið breytt til samræmis við þetta samkomulag.

Þriðja og síðasta ágreiningsefnið varðandi fjárhagsákvæðin var loks sú aukna hlutdeild Atvinnuleysistryggingasjóðs í lífeyrisgreiðslunum sem gert var ráð fyrir í frv., en honum var ætlað að leggja fram jafnháa fjárhæð og Jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiðir, eða sem svarar 450 millj. kr. á næsta ári. Er þá enn miðað við kauplagsforsendur fjárlagafrv. Gert var ráð fyrir að þessar greiðslur kæmu til viðbótar þeim kostnaði, sem Atvinnuleysistryggingasjóður ber nú samkv. lögum nr. 63 frá 1971, um eftirlaun til aldraðra félaga í stéttarfélögum. Þessum auknu álögum á Atvinnuleysistryggingasjóð var mótmælt hér á Alþ., og í lífeyrisnefndinni hafa fulltrúar ASÍ, Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og vinnuveitenda bent á, að hvorki samrýmast þessi útgjöld tilgangi sjóðsins né sé hann fær um það fjárhagslega að bæta þeim á sig. Er í því sambandi einkum vísað til þeirra miklu útgjalda sem sjóðurinn hefur nú af greiðslu fæðingarorlofs.

Það er engum vafa undirorpið, að sú staðhæfing er hárrétt, að Atvinnuleysistryggingasjóður sé þess ekki umkominn að bæta á sig nýjum byrðum. Útgjöld sjóðsins eru talin verða um 2509 millj. kr. á þessu ári, en þar af er fæðingarorlofið eitt sér um 800 millj. kr. eða stærsti einstaki útgjaldaliðurinn. Tekjur hans virðast hins vegar hafa verið stórlega ofáætlaðar í fjárlögum þessa árs. Endurskoðun þeirra bendir til að þær verði aðeins um 2732 millj., eða 223 millj. umfram útgjöld. Þá hafa hins vegar verið taldar til tekna innheimtar afborganir af lánum sjóðsins að fjárhæð 362 millj. Benda þessar áætlanir því til þess, að höfuðstóll hans gæti skerst á árinu um sem næst 139 millj. kr. Að vísu er höfuðstóll sjóðsins stór, var tæpir 8 milljarðar um s.l. áramót. Engu að síður er það mikið alvörumál, að á hann skuli ætla að ganga nú í ár þegar atvinnuástand hefur verið með allra besta móti. Er það skoðun mín, að ekki verði skotið á frest öllu lengur að létta fæðingarorlofinu algerlega af honum og þá samfara því að lögfestur verði réttur allra kvenna hér á landi til fæðingarorlofs, eins og Alþ. hefur margsinnis ályktað um, en það mál er nú til athugunar hjá ríkisstj. Enn ríkari verður þörfin fyrir að bæta stöðu sjóðsins þegar lokið verður endurskoðun löggjafarinnar um sjóðinn sjálfan, en hún er nú vel á veg komin. Er óhjákvæmilegt að sú endurskoðun leiði til verulegra breytinga og rýmkunar á bótaákvæðum hans.

Af því, sem ég hef nú sagt, má ljóst vera, að þörf er víðtækrar endurskoðunar á málefnum Atvinnuleysistryggingasjóðs sem tengist tveimur stórverkefnum öðrum: endurskoðun laga um sjóðinn sjálfan og lögfestingu almenns fæðingarorlofs. Mjög er hins vegar brýnt að hraða afgreiðslu eftirlaunafrv. Hafa formenn þingflokkanna og forsetar deilda tekið vel í þau tilmæli mín að heimila nauðsynleg afbrigði til að frv. hljóti afgreiðslu fyrir jólafrí þingsins. Er ég ákaflega þakklátur fyrir þær vinsamlegu undirtektir. Það væri vissulega vegleg jólagjöf Alþingis til þessa réttindalitla fólks, ef frv. yrði að lögum í þessari viku.

Af því leiðir hins vegar það, að gagnvart Atvinnuleysistryggingasjóði verður við það að sitja að sinni, að ríkisstj. ábyrgist að af honum verði létt öðrum byrðum að sama skapi og útgjöld hans til eftirlauna aukast við samþykkt þessa frv., eins og áréttað er í aths. með frv. Fyrrv. ríkisstj. hafði einnig gert samþykktir sem gengu í sömu átt og reyndar lengra.

Ég vil að síðustu minna á að samhliða afgreiðslu þessa frv. er nauðsynlegt að koma á skylduaðild allra að lífeyrissjóðum. Hefur nú verið gengið frá frv. um það efni sem rætt hefur verið og samþykkt í 8 manna lífeyrisnefnd aðila vinnumarkaðarins. Mun ég leggja það fyrir strax er þing kemur saman aftur að loknu jólafríi. Jafnframt er þá að vænta af hálfu fjmrh. sérstaks frv. til l. um svonefndan biðreikning lífeyrisréttinda eða Almenna lífeyrissjóðinn, eins og til greina hefur komið að nefna hann, þar sem opnuð verður leið til lífeyrisaðildar fyrir alla þá sem ekki fá fullnægt tryggingaskyldu sinni með aðild að öðrum lífeyrissjóðum.

Herra forseti. Ég legg að lokum til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og heilbr.- og trn. þessarar hv. deildar.