31.01.1980
Sameinað þing: 19. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 621 í B-deild Alþingistíðinda. (711)
Umræður utan dagskrár
Helgi Seljan:
Herra forseti. Ég hef kvatt mér hljóðs utan dagskrár til að inna hæstv. fjmrh. eftir ástæðum og réttlætingu reglugerðar þeirrar er hann hefur sett varðandi leyfi ferðamanna til kaupa á áfengum bjór. Þetta fagnaðarerindi hæstv. ráðh. var í gær boðað í blaði hans undir manngæskufyrirsögninni „Davíð fær ölið sitt“. Ekki getur þó Davíð þessi verið eina réttlæting gerða ráðh. þó að allt það mál sé hið furðulegasta, þ.e. ef menn fremja lögbrot skuli stjórnvöld koma til liðs við þá í stað þess venjulega, og er það nýlunda og alveg sérstaklega hjá hv. flokki sem fjmrh. tilheyrir. En að því slepptu hlýtur að verða spurt um ótvíræða lagastoð þessa tiltækis ráðh. — raunar vildi ég bæta við: lagastoð þeirra undanþága sem áður voru í gildi.
Ég hygg að hæstv. ráðh. vilji benda á lög um verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf,1. gr., frá árinu 1969, en ég bendi þá á móti á að samkv. reglugerðinni er ekki einungis um innflutning að ræða, það er ekki aðeins komið með áfengt öl til landsins, það er keypt hérlendis yfirgnæfandi, þ.e. í fríhöfninni hér. Þessi lög eru frá 1969, en sjálf áfengislöggjöf okkar hvað þetta varðar, heildarlöggjöfin er yngri eða frá 1971, og þar eru öll tvímæli af tekin. Ég lít svo á, og það gera margir sem þessi mál hafa kynnt sér, að áfengislögin sjálf eigi hér fyrsta rétt, aðalrétt, og ef tvenn lög fara ekki saman beri að fara eftir þeim yngri og ótvíræðari, sem um leið eru heildarlöggjöf. En ég dreg fyrri lagastoð, frá 1969, líka stórlega í efa sem réttlætingu.
Inn í þetta mál hafa blandast harla vafasöm skrif um forréttindi ákveðinna hópa, sbr. reglugerð frá 1975 um frjálsan farangur ferðamanna og farmanna við komu frá útlöndum. Öll þau skrif hafa að einu marki beinst, að þrýsta á um sölu áfengs öls innanlands, en ekki afnámi forréttinda. Þessum svokölluðu forréttindum er ég alfarið andvígur og tel þar í engu á bætandi. Andstaða mín við áfengt öl er alkunn og hún er alger um leið. Ég er sannfærður um að undanþágur þessar muni verða notaðar og séu kannske til þess eins gerðar að ryðja áfengu öli almennt braut inn í þjóðlíf okkar. Ég harma þess vegna ákvörðun hæstv. ráðh., sem ég hugði a.m.k. að væri bandamaður minn í afstöðunni til áfengs öls almennt.
Ég hef aldrei þessu vant kvatt mér hljóðs utan dagskrár að þessu sinni. Það er að sérstakri beiðni þess aðila sem á að vera ríkisstj. og Alþ. ráðgefandi um öll þessi mál, þ.e. áfengisvarnaráðs. Ég mun að loknum svörum ráðh. flytja örstutt álit þess ráðs á ráðstöfun þessari, sem ég held að rétt sé að hv. þm. hlýði á og taki eftir.