31.01.1980
Sameinað þing: 19. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 641 í B-deild Alþingistíðinda. (722)
27. mál, iðnaður á Vesturlandi
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessar umr. Ég er yfirleitt sammála því, sem hv. ræðumenn hafa sagt um þetta efni, og tek undir þau mál sem þeir hafa bryddað upp á, svo sem perlusteininn og aukna nýtingu selskinna, svo að dæmi séu nefnd. Og alveg sérstaklega vil ég taka undir orð hv. 5. þm. Vesturl., þar sem hann benti réttilega á að áætlun ein nægir ekki, ef ekki er veitt blóði í æðar hennar með fjármagni þannig að hún komist í framkvæmd.
Ég þarf að leiðrétta eitt sem ég sagði í ræðu minni áðan. Ég minntist þá á till. sem við séra Ingiberg hefðum flutt á 99. löggjafarþinginu um þróun iðnaðar á Vesturlandi. Ég sagði að þessi till. hefði ekki komist alla leið í gegnum þingið, en það er rangt. Henni var vísað til hæstv. ríkisstj. Þannig hlaut hún þinglega meðferð og hefur væntanlega orðið æðstu yfirvöldum þessara mála að leiðarljósi í mótun iðnþróunarstefnu allra síðustu ára.