18.12.1979
Neðri deild: 4. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í B-deild Alþingistíðinda. (75)

32. mál, eftirlaun til aldraðra

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Í sambandi við það mál, sem hér er til umræðu, þykir mér rétt að drepa á nokkur atriði.

Eins og fram hefur komið hér í umræðunum var þetta mál lagt fram síðustu daga Alþingis á s.l. vori og kom fyrir Ed. Það, sem vakti áthygli okkar sem höfðum áhuga fyrir því að þetta mál fengi góða afgreiðslu gegnum Alþingi, var að þessu stjfrv. fylgdi strax í upphafi mjög mikið af mótmælum. Mótmælin voru fyrst og fremst frá lífeyrissjóðum launþega í landinu, sem vildu ekki fallast á þá skyldu sem upprunalega frv. lagði þeim á herðar, og enn fremur frá stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs og frá stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga vegna Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Var því vandi á höndum að afgreiða á svo stuttum tíma svona mikilvægt mál, sem allir viðurkenndu, á þann veg að vel gæti farið.

Ed. reyndi að ná samstöðu um málið og það tókst, eins og hér hefur komið fram. En afgreiðslan var háð vissum ákvæðum sem fylgdu afgreiðslu þess frá Ed. til Nd. Og ákvæðin voru þau, að fyrir 1. jan. 1980 átti ríkisstj. að leggja fram frv. til l. sem létti greiðslubyrðar á Atvinnuleysistryggingasjóði og Jöfnunarsjóði sveitarfélaga eða tryggði þeim nýja tekjustofna. Þannig afgreiddi Ed. málið til Nd. Þá var stuttur tími til stefnu, og kemur fram í nefndarálitum bæði meiri og minni hluta Nd. í sambandi við málið, að ágreiningur var ekki um eðli málsins. Það var ekki um það að ræða, að einhverjir aðilar vildu málið feigt. Allir voru sammála um að þetta væri réttlætismál, mikið réttlætismál, sem yrði að ná fram að ganga í þjóðfélaginu, því að allir viðurkenna, að 3–4 þús. aðilar í landinu bíða eftir afgreiðslu þessa máls. En það, sem gerði þetta erfitt, var einmitt mótstaða fulltrúa ASÍ, lífeyrissjóða og Atvinnuleysistryggingasjóðs, sem sáu fulla annmarka á því, að unnt yrði að fjármagna þetta ágæta mál fyrir 1. jan. Og ég vil vekja athygli á því, sem hér hefur reyndar komið fram, að lögin áttu ekki að taka gildi fyrr en 1. jan. 1980, þannig að tími var til að lagfæra þennan þátt, fjármögnunarþáttinn.

Ég ætla ekki að fara að rifja hér upp afgreiðslu á vorþingi. Sjálfsagt hafði minni hluti heilbr.-og trn. mikið til síns máls, enda er álit minni hluta nærri samhljóða áliti meiri hluta í málinu. Ég vil leyfa mér að lesa hér upp niðurlag nál. minni hlutans, en þar segir m.a., með leyfi forseta:

„Minni hlutinn vill enn fremur bent á að við gerð kjarasamninganna 1977 varð loforð um eftirlaun aldraðra til þess að greiða fyrir samningum. En þegar slíkt frv. birtist er reikningurinn sendur til sjóða verkalýðshreyfingarinnar. Minni hlutinn harmar að í aths. frv. skuli vera rangfærslur sem virðast settar þar í áróðursskyni, en ekki upplýsinga. Að lokum vill minni hlutinn leggja ríka áherslu á að sem fyrst verði unnið að undirbúningi að framkvæmd málsins og eðlilegri fjáröflun til þess. Í trausti þess, að svo verði gert, til þess að þetta mikla réttlætismál megi koma til framkvæmda, leggur minni hlutinn til að frv. verði vísað til ríkisstj.“

Undir þetta skrifuðu Einar Ágústsson, sem var formaður n., Garðar Sigurðsson og Bjarnfríður Leósdóttir. Ég ætla ekki að rekja þetta mál hér meira, en framhald þess var einfaldlega það, að hæstv. ráðh. skipaði þriggja manna nefnd til þess að tryggja að málið yrði undirbúið nægjanlega vel fyrir haustþingið svo að hægt yrði að ná samþykkt þess fyrir væntanlega gildistöku laganna 1. jan. n.k. Og það vildi svo til, að ég átti sæti í þessari nefnd ásamt Hrafni Jóhannssyni og aðstoðarmanni ráðh., Georg Tryggvasyni. Um þetta mál var fjallað í nefndinni og það, sem hér kemur fram í stjfrv. nú, er að nokkru leyti sá árangur sem náðist. Það náðist samkomulag við fulltrúa lífeyrissjóðanna í landinu. Og þannig er það að hluta til tryggt, að hægt verður að afgreiða málið.

Ég vil benda á það, sem hér hefur komið fram, að í fjárlagafrv. 1980 er gert ráð fyrir 500 millj. til þessa máls, og einnig er gert ráð fyrir því í þjóðhagsáætlun fyrir árið 1980.

Ég harma það, að þetta mál var gert að vissu áróðursefni í kosningaslagnum sem nú er nýafstaðinn. Og það var leiðinlegt að þurfa að hlusta á það, að vissir aðilar gerðu sér leik að því að reyna að sverta ákveðna stjórnmálamenn og ákveðna flokka í svona sjálfsögðu máli sem allir eru sammála um. Málið er mjög mikilvægt, og ég tel að okkur sé sómi að því að reyna að finna skynsamlega fjáröflunarleið og tryggja það, að lögin verði meira en pappírsgagn, með því að leita samstöðu um að fjármagna svona mikilvægt mál.

Ég vil einnig taka undir það, sem kom fram hér hjá hv. 1. þm. Vestf., að það er alveg brýn nauðsyn að hraða endurskoðun laganna um Atvinnuleysistryggingasjóð. Það er enn fremur brýn nauðsyn, að staðið verði við þá samþykkt, sem gerð var á síðasta Alþingi, að taka lögin um almannatryggingar til heildarendurskoðunar. Og einmitt í því sambandi bentum við framsóknarmenn, sem stóðum að þeirri þáltill. sem samþykkt var á síðasta Alþ., á mikilvægi þess, að almannatryggingalögin væru tekin til endurskoðunar í þeim tilgangi fyrst og fremst að þau tryggðu þá sem mest þurfa á samfélagslegri aðstoð að halda í þjóðfélaginu. Og við bentum þar m.a. á nauðsyn þess, að einmitt þessi þáttur [fæðingarorlofið] sem við teljum sjálfsagt öll að eigi að taka til allra fæðandi kvenna í landinu, yrði færður undir almannatryggingalögin. Þess vegna vil ég taka undir það, sem kom fram áðan, að það er brýn nauðsyn að endurskoðun þessara laga verði framkvæmd. Þá leysum við mörg mál í einu lagi í sambandi við samfélagslega aðstoð.

Ég vil svo enda þetta með því að endurtaka það, sem hér hefur komið fram, að við framsóknarmenn hér á Alþ. viljum stuðla að því, að þetta frv, verði að lögum nú á þessum dögum fyrir jólin, svo framarlega sem tæknilega er hægt að koma því við. Við munum þess vegna greiða götu þess hér á hv. Alþingi.