11.02.1980
Sameinað þing: 23. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 720 í B-deild Alþingistíðinda. (791)
Tilkynning frá ríkisstjórninni
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Það hefur engum dulist seinustu dagana, að fólk um allt land fagnar því að loksins skuli hafa verið mynduð þingræðisstjórn. Formaður þingflokks Alþfl., hv. þm. Sighvatur Björgvinsson, sagði raunar áðan, að hann fagnaði því sérstaklega að Alþfl. væri ekki lengur í stjórn. Ég skil hann vel. Ég skil vel, að hann skuli vera feginn, og ég get fullvissað hann um, að hann er ekki einn um það.
Hæstv. forsrh. hefur hér gert grein fyrir málefnasamningi hinnar nýju stjórnar, og þar er vissulega margt góðra málá eins og síðar mun koma í ljós. Formaður Sjálfstfl. kallaði þennan málefnasamning að vísu óskalista, en sami hv. þm. myndaði stjórn haustið 1974 og lofaði að koma verðbólgunni niður í 15% á einu ári, og þó var verðbólgan aldrei fjörlegri en eftir það eina ár og fór langt yfir 50%.
Aðdragandinn að myndun þessarar stjórnar hefur sannarlega verið óvenjulegur, en það er líka óvenjulegt ástand í landinu einmitt nú. Við höfum séð fram á ískyggilegri kreppu í íslenskum stjórnmálum en verið hefur í marga áratugi. Hér hefur verið stjóraleysisástand, eins og best sést á því, að það hefur ekki gerst í tvo áratugi að hér séu ekki afgreidd fjárlög fyrir áramót, og enn mun líða langur tími þar til þau fást afgreidd. Það hefur ekki heldur gerst um mjög langt skeið, að skattamál hafi verið í jafnískyggilegri flækju og einmitt nú. Nýja skattakerfið, sem á að taka í notkun á þessu ári, var afgreitt fyrir tveimur árum. Það er mjög mikilli óvissu háð hvernig það kemur út í reynd. En ofan á það bætist að skattalög verða ekki framkvæmd að öllu óbreyttu nema með talsverðum lagfæringum sem enn hafa ekki verið samþykktar hér í þinginu, og enn er eftir að ákveða skattstiga til þess að álagning geti farið fram og til þess að hægt sé að ljúka framtalsfresti.
Það gerðist hér um árið, líklega fyrir einum eða tveimur áratugum, að hreppsnefnd í fjölmennu kauptúni úti á landi gleymdi að leggja á útsvar. Ekki trúi ég því, að hv. Alþ. gleymi að leggja á skatta að þessu sinni, en drátturinn, sem orðinn er, er mjög ískyggilegur. Vissulega er þetta ekki rétta stundin til að deila um hver beri ábyrgðina á slíku stjórnleysisástandi. Ábyrgðin hvílir að sjálfsögðu þyngst á þeim flokkum sem stóðu fyrir þingrofi og nýjum kosningum. En ég vil hiklaust segja að ábyrgðin hvíli á stjórnmálaflokkunum öllum, á öllum hv. þm. Við stöndum frammi fyrir vaxandi öngþveiti ef þessi mál verða ekki afgreidd hið fyrsta. Frv. um greiðsluheimild til handa ríkisstj. til að greiða fé úr ríkissjóði, meðan fjárlög hafa ekki verið afgreidd, var lagt á borð þm. fyrir stuttri stundu og kemur í stað þeirrar heimildar sem fyrri stjórn hafði aflað sér, en gert er ráð fyrir að hin nýja heimild standi til 3. apríl n.k. sem þýðir að fjárlög verður að afgreiða í allra seinasta lagi fyrir páska. Nýtt fjárlagafrv. verður lagt fram í þinginu svo fljótt sem auðið er, en þó tæpast, vegna þess hve undirbúningur þess og prentun hlýtur að taka langan tíma, fyrr en eftir að þinghléi lýkur. En skattamálin verður að taka til með ferðar hið allra fyrsta. Það má vel vera að um þau kunni að verða einhver ágreiningur, en það verður þá að fá að koma í ljós.
Ég hef ekki séð ástæðu til að fjölyrða um málefnasamning þessarar stjórnar. Eins og ég sagði áðan hefur hæstv. forsrh. lesið hann hér og nú reynir á framkvæmd hans.
Grundvallaratriði málefnasamningsins eru fjögur frá sjónarmiði okkar Alþb.-manna.
Í fyrsta lagi það, að um leið og herferð er farin gegn verðbólgu eru kjör launafólks í landinu varin. Þrátt fyrir fjölbreyttan tillöguflutning úr ýmsum áttum í stjórnarmyndunarviðræðum seinustu vikna, þar sem fram hafa komið tillögur um meiri eða minni skerðingu lífskjara sem aðalaðferð í baráttunni við verðbólguna, er það nú niðurstaðan að meirihlutastjórn er mynduð sem ekki mun beita lagaþvingunum til að rifta kjarasamningum almennra launamanna.
Í öðru lagi er það grundvallaratriði, að unnið verður af fullum krafti að uppbyggingu íslenskra atvinnuvega. Hin neikvæða íhaldssama samdráttarleið í efnahagsmálum hefur sem sagt ekki orðið ofan á.
Í þriðja lagi er það grundvallaratriði, að uppbygging íslenskra atvinnuvega verður í höndum landsmanna sjálfra, en ekki á vegum alþjóðlegra auðhringa.
Og í fjórða lagi er það grundvallaratriði, að unnið verður kröftuglega að jöfnun lífskjara og margháttuðum félagslegum umbótum.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri að sinni. En ég vil að lokum leyfa mér að skora á alla þm. úr öllum stjórnmálaflokkunum, stjórnarþm. og stjórnarandstöðu, að horfast í augu við það öngþveiti sem stjórnleysi undanfarinna mánaða hefur skapað, sérstaklega vegna þess að skattalög eru enn óafgreidd. Ég vil sem sagt leyfa mér að skora á þá að greiða fyrir afgreiðslu aðkallandi mála svo að unnt sé að ljúka afgreiðslu þeirra næstu daga, áður en hugsanlegt þinghlé verður gert.