12.02.1980
Sameinað þing: 24. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 729 í B-deild Alþingistíðinda. (800)
Umræður utan dagskrár
Halldór Ásgrímsson:
Herra forseti. Það var s.l. fimmtudag að ég kvaddi mér hér hljóðs utan dagskrár vegna þess ástands, sem hafði skapast varðandi loðnuveiðarnar, og þeirra miklu hagsmuna sem eru í húfi fyrir einstök byggðarlög og þjóðarbúið í heild, eins og ég orðaði það þá. Þeirri umr. var slitið þá til þess að hægt væri að koma hér að fjárlagaræðu fyrrv. fjmrh. Ég vil byrja á því að gera að umtalsefni það sem kom fram í þeim umræðum. Það, sem nú hefur gerst, sýnir að ástæða hefði verið til að halda þeirri umr. áfram þá til þess að betur lægi fyrir hver vilji alþm. er í þessu máli.
Ég gerði að umtalsefni valdsvið loðnunefndar til að beina löndun að ákveðnum verksmiðjum. Ég þakka fyrrv. hæstv. sjútvrh. fyrir þau svör sem hann gaf mér. Ég vil aðeins ítreka þær skoðanir sem ég setti þá fram, að ég tel að þurft hefði að gera ráðstafanir til þess að beina lönduninni til fleiri verksmiðja, til þess að það áfall sem kemur, ef veiðar verða stöðvaðar, verði sem minnst fyrir einstök byggðarlög hvar sem er á landinu.
Það kom fram hjá hv. þm. Stefáni Jónssyni, að hér væri um það að ræða að verið væri að flytja frá einu kjördæmi til annars. Ég vil mótmæla því. Loðnan hefur verið á ýmsum stöðum við landið. Í ár er hún fyrir Norðurlandi, næsta ár er hún kannske eingöngu fyrir Austurlandi, þannig að þetta hlýtur að vera mál sem þarf að taka fyrir þegar menn standa frammi fyrir því að takmarka með einhverju móti veiðarnar.
Það kom fram hjá hæstv. fyrrv. sjútvrh. við þá umr., að hann mundi beita sér fyrir því — eða það væri hans skoðun þá, á fimmtudaginn var — að veiðarnar yrðu stöðvaðar, þegar 250 þús. tonnum væri náð, og síðan væru u.þ.b. 50 þús. tonn geymd fram á hrognatökutímann, ef ég hef skilið mál hans rétt þá. Nú hefur ný ríkisstj. tekið við, og mér sýnist að sú ákvörðun, sem var undirbúin í sjútvrn. í s.l. viku, hafi nú verið tekin af þeirri ríkisstj. sem hefur tekið við völdum, eða af núv. sjútvrh. Ég er ekki sammála um þessa ákvörðun. Ég ætla ekki að fara að blanda mér í tal fiskifræðinga um það, hvernig loðnustofninn er um þessar mundir. Menn verða að hafa í huga að það eru önnur rök sem þar gilda einnig. Að sjálfsögðu ber okkur að fara eftir fiskifræðilegum rökum og hlusta á þá menn, en það eru einnig önnur rök, sem hv. þm. Matthías Bjarnason rakti hér áður, sem þar verða að gilda. Þar eru hagsmunir heilla byggðarlaga í veði. Það hefur engin loðna borist á sunnanverða Austfirði eða til Vestmannaeyja, — það má vera að einn farmur hafi borist þangað, og ég held að í gær hafi verið útlit fyrir að 7 þús. tonn færu suður fyrir Gerpi. Þarna er um mjög alvarlegt áfall að ræða sem að mínum dómi hefði réttlætt það að halda veiðunum eitthvað áfram, a.m.k. þannig að útséð væri um að þessar verksmiðjur fengju loðnu í það þróarrými sem þær hafa, sem er ekki mjög mikið, og að Vestmannaeyjar fengju a.m.k. eitthvert magn. Við verðum að líta einnig á þessa miklu hagsmuni þegar slíkar ákvarðanir eru teknar, því að 50 þús. tonn af loðnu til eða frá gera ekki mikinn mun í því mikla magni sem þar er um að ræða.
Ég vil einnig taka undir það, að Norðmenn eiga ekki að hafa áhrif á okkur í þessu efni. Við hljótum að vísu að þurfa að undirbúa okkar samninga við Norðmenn sem best við getum. Hins vegar verðum við að leggja á það áherslu, að þetta er stofn sem við ráðum yfir innan okkar landhelgi, og Norðmenn hafa ekki verið tilbúnir til þess að taka tillit til slíkra sjónarmiða varðandi síldarstofninn. Því hefur verið haldið fram af Íslendingum, að síldarstofninn væti sameiginlegur, norsk-íslenski síldarstofninn. Norðmenn tóku aldrei tillit til þeirra sjónarmiða á sínum tíma, veiddu upp smásíldina við Noreg gegn okkar vilja, þannig að þeir hafa aldrei tekið tillit til slíkra sjónarmiða hjá okkur. Það er því ástæðulaust, að við förum að taka tillit til sjónarmiða þeirra út af Jan Mayen, sem er langt frá þeirra lögsögu, og alls ekki liggur fyrir hvernig lögsögu við Jan Mayen verður háttað.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta lengra mál. Ég vildi aðeins benda á þá miklu þjóðhagslegu hagsmuni sem hér eru í húfi, sérstaklega varðandi þau byggðarlög sem hafa ekki enn fengið loðnu. Ég vil einnig taka það fram út af ummælum hv. þm. Péturs Sigurðssonar, en hann hélt því fram að ég tæki á engan hátt tillit til afstöðu sjómanna í þessu sambandi, að ég tók skýrt fram á fimmtudaginn að ég vissi að sjómenn væru því ekki mótfallnir og útgerðarmenn, að einhvers konar stýring væri á löndun aflans. Hins vegar sagðist ég vera viss um að þessir aðilar gerðu sér góða grein fyrir hagsmunum annarra í þessu sambandi. Og það er náttúrlega það sem við verðum að hafa í huga, að hagsmunir þeirra, sem þarna eiga mikið undir, verði sem best tryggðir, vitandi það, að auðvitað verður það alltaf svo, að ekki verður hægt að gera allt fyrir alla í þessum efnum. En okkur hlýtur að bera skylda til þess, alveg án kjördæmissjónarmíða eða sjónarmiða til einstakra stétta í þessu sambandi, hvort sem það eru sjómenn, verkafólk eða aðrir, að tryggja sem best hagsmuni alls þessa fólks, jafnvel þótt einhver skerðing komi við alla þessa hópa.