18.02.1980
Neðri deild: 38. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 808 í B-deild Alþingistíðinda. (880)
44. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Matthías Á. Mathiesen:
Herra forseti. Áður en ég geri grein fyrir brtt. fjh.- og viðskn. í fjarveru formanns nefndarinnar, hv. 3. þm. Austurl., sem hefur fjarvistarleyfi, vil ég aðeins víkja að þeim orðum hæstv. fjmrh. er hann hafði áðan um lögin um tekjuskatt og eignarskatt frá 1978 sem eru hér til umr. með áorðnum breytingum sem samþ. voru samhljóða í hv. d. við 2. umr. þessa máls.
Ég held að lögin, sem samþ. voru vorið 1978, feli í sér ótvíræða kosti, eins og ráðh. réttilega sagði í upphafi máls síns. Alþ. fjallar nú um þessi lög og fram eru komnar brtt. Það stafar ekki af því, að í óefni sé komið, eins og ráðh. orðaði það, eða að það sé fen fram undan. Við umr. um frv. til l. um tekjuskatt og eignarskatt 1978 gerði ég grein fyrir því varðandi þau nýmæli, sem fólust í frv. og síðar voru samþykkt, að gera þyrfti athuganir á þeim þá þegar og gæti það leitt til þess, að brtt. yrði að flytja til að ná fram þeim höfuðsjónarmiðum sem gert hafði verið ráð fyrir. Þar var sérstaklega um að ræða svokallaðan endurmatsreikning. Alþ. gerði sér grein fyrir því, að þau nýmæli, sem þar voru tekin upp, væru með þeim hætti að rétt væri að endurskoða þau strax og koma fram breytingum ef ástæða þætti til.
Aðdragandinn að lagasetningunni var nokkuð langur. Það var flutt frv. á vorþingi 1977. Það frv fékk allítarlega umræðu bæði á Alþ. og utan þingsala, svo að frv., sem var flutt á útmánuðum 1978, kom mönnum ekki ókunnuglega fyrir sjónir. Að vísu voru tekin inn þar atriði sem við einmitt fjöllum um í dag. En því hafði verið lýst yfir, að afturvirkni í þessum efnum kæmi ekki til greina og lögin því sett á árinu 1978 með gildistöku 1. jan. 1979.
Þær brtt., sem fluttar voru af hæstv. fyrrv. fjmrh., og brtt. við þær, sem fluttar voru af fjh.- og viðskn. við 2. umr. þessa máls, eru framhald af þeirri vinnu sem unnin hafði verið í rn. og kom fram þegar frv. var lagt fram 1978. Ég gerði sem fjmrh., strax eftir að lögin höfðu verið samþykkt, ráðstafanir til þess að endurskoðun þeirra færi fram. Hér er því um að ræða áframhaldandi vinnu við að breyta reglum um endurmat á fyrningum. Það, sem unnið var í tíð fyrrv. fjmrh. Tómasar Árnasonar og fyrrv. fjmrh. Sighvats Björgvinssonar, var framhaldsvinna af því öllu saman. Ég held að það staðfesti fyrst og fremst að lögin, eins og þau voru sett, og þau höfuðsjónarmið, sem þar koma fram, hafa verið af þeim aðilum litin með svipuðum hætti og ég gerði þegar ég beitti mér fyrir breytingunum 1978. Það kom og skýrt fram hjá hæstv. fjmrh. áðan, að skattalögin voru samþ. á þingi 1978 mótatkvæðalaust. Að vísu sátu þm. hjá við lokaafgreiðsluna, en töldu ekki rétt að greiða atkvæði gegn frv.
Ég held að varðandi framhaldsvinnuna stefni í rétta átt þær brtt., sem fjh.- og viðskn. flutti og fékk samþ., voru sumar hverjar áframhald af vinnu rn., þar sem ekki hafði unnist tími til að ljúka vinnunni, og brtt. hennar því eðli málsins samkvæmt þegar málið er skoðað í heild. Þar kom að sjálfsögðu til sá órói sem verið hefur hjá okkur í sambandi við kosningar og það sem þeim fylgir. Tímaskortur varð vegna þess, en ef allt hefði verið með felldu hefði e.t.v. verið möguleiki á að ljúka þessu máli t.d. fyrir áramót.
Ég held að brtt., sem samþ. hafa verið og væntanlega verða samþ., þ.e. brtt. á þskj. 170 sem fjh.- og viðskn. Nd. flytur við 3. umr., séu allar til að ná fram því sjónarmiði sem lögin gerðu ráð fyrir, að vísu með örlítið breyttum bókhaldsreglum. En það hefur verið reynt af þeim aðilum, sem um þetta mál hafa fjallað, að ná fram skattlagningu eins og hugsað hafði verið með lögunum, enda þótt bókhaldsformum sé þar breytt.
Það kom fram í ræðu hæstv. fjmrh., og var reyndar vitað, að í lögin vantar þá skattstiga sem þarf að notast við miðað við að staðgreiðsla er ekki komin, því að skattstigarnir í lögunum miða við staðgreiðslu og eru þar af leiðandi grundvallaðir á öðrum forsendum en staðgreiðslukerfið. Verður þess vegna að flytja frv. til l. um breyt. á skattalögunum. Hæstv. ráðh. boðaði það strax og þing kemur aftur saman að loknu þinghléi. Hann vék að vísu að því, að ekkert hefði verið ákveðið um hlé, við höfum ekki heyrt neitt um slíkt, en það skiptir kannske ekki máli. Það þarf að sjálfsögðu að athuga með hvaða hætti skattstigarnir eiga að vera, hvort sem þingið verður sent heim eða ekki. Ég held að við þá skoðun verði menn að sjálfsögðu að horfast í augu við þær breytingar, sem hér er verið að gera, og haga skattprósentum eftir því. Á ég þar sérstaklega við eignarskattsprósentu, sem að vísu var lækkuð í lögunum 1978 úr 1.2% í 0.8%, en með breyttum endurmatsreglum fæ ég ekki séð annað en að lækka verði enn töluvert ef ekki á að verða um beina eignaupptöku að ræða.
Ég vil svo að lokum víkja að brtt. sem fjh.- og viðskn. flytur á þskj. 170. Þær eru í þremur liðum:
Í fyrsta lið er gert ráð fyrir að námsfrádráttur verði ekki bundinn við aldur, þ.e. 30 ár, eins og brtt. við 2. umr. gerði ráð fyrir. Lögin gerðu ráð fyrir námsfrádrætti frá 16–26 ára, en með þessari till. er gert ráð fyrir að fella niður efri mörkin. Námsfrádrátturinn er heimill eins og þar er gert ráð fyrir og ekki sett aldursmark í efri mörkum.
Önnur brtt. er í samræmi við þá fyrstu. Það, sem stendur í 66. gr. er fært til samræmis við það sem stendur í 14. gr.
Við 22. gr., eins og lögin eru orðin eftir 2. umr., flytur n. brtt. Í staðinn fyrir flýtifyrningu með 45% verði heimilt að flýtifyrna 50%. Hér er um að ræða að fyrirtæki, sem þessi kerfisbreyting gæti e.t.v. orðið neikvæð fyrir, hafi tækifæri til að lagfæra og leiðrétta útkomu sína svo að sú breyting, sem áformuð er, komi þeim ekki eins illa og yrði ef flýtifyrning væri ekki heimiluð. Þess vegna taldi n. til samkomulags rétt að hækka markið úr 45%, eins og samþ. var við 2. umr., í 50%.
Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um það frv. sem hér er til meðferðar. En eins og ég vék að áðan þarf mjög vel að skoða þær hugmyndir og þær till. sem síðar munu koma fram af hálfu fjmrn. í sambandi við skattstigana og þá sér í lagi eignarskattinn. Munum við sjálfstæðismenn við meðferð málsins hér á þingi gera grein fyrir þeim sjónarmiðum sem við höfum þar að lútandi.