18.02.1980
Neðri deild: 38. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 810 í B-deild Alþingistíðinda. (881)
44. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Vilmundur Gylfason:
Herra forseti. Á þskj. 172 leyfi ég mér að flytja brtt. ásamt hv. þm. Árna Gunnarssyni. Brtt. er við 4. gr. frv. til l. um breyt. á lögum nr. 40/1978, um tekju- og eignarskatt.
Þar er lagt til í fyrsta lagi að b-liður greinarinnar orðist svo: Í stað orðanna „nefndarlaun, stjórnarlaun og eftirlaun“ í 2. málsl. 1. mgr. 1. tölul. A-liðs 7. gr. laganna komi orðin: nefndarlaun, stjórnarlaun, eftirlaun og lífeyrir.
Í öðru lagi: C-liður greinarinnar orðist svo: Úr 1. málsl. 2. tölul. A-liðs 7. gr. laganna falli orðið „lífeyrir“. Í stuttu máli fjallar þessi breyting um að ellilífeyrisþegar og eftirlaunafólk almennt njóti sömu 10% frádráttarhlunninda sem aðrir njóta. Svo sem kunnugt er eru þær almennu reglur í skattalögunum, að skattgreiðendur geta annaðhvort notið almennra 10% frádráttarhlunninda eða dregið frádráttarbær útgjöld frá tekjum sínum. Eins og till. nú standa er ekki gert ráð fyrir að ellilífeyrisþegar njóti slíkra hlunninda. Þó að þessar reglur séu orðnar býsna flóknar er hér augljóslega um misræmi að ræða. Í einföldu máli er lagt til að þessu verði breytt þannig, að sömu reglurnar um sama 10% frádráttinn gildi um eldri borgara og aðra. Um þetta þarf í sjálfu sér ekki að hafa fleiri orð, svo ljóst sem það má vera við hvað hér er átt, en því má bæta við, að verði þetta misræmi látið óbreytt er auðvitað alveg ljóst að það mun valda mikilli gremju hjá þeim eldri borgurum sem þetta kemur til með að bitna á.
Áð því er varðar tilmæli hæstv. fjmrh. um að menn dragi brtt. sínar til baka held ég að ekki sé hægt að verða við þeim óskum. Það er allsendis óvíst hvort málið kemur til þessarar hv. d. aftur. Það fer eftir viðtökunum sem það fær í Ed. Af þeim sökum og vegna þess, hvað mér þykir hér vera um sjálfsagt réttlætismál að ræða, sé ég mér ekki fært að verða við tilmælum hæstv. ráðh.
Það má svo segja að lokum, að ráðh. vék í ræðu sinni í upphafi þingfundar að einhverju sem hann kallaði þinghlé sem í vændum væri. Ég hef ekki heyrt um slíkt talað af stjórnvöldum. Forseti ágætur, sem ég hitti á gangi í morgun hér í þinginu, kannaðist ekkert við að slíkt stæði fyrir dyrum. Heldur þykir mér óviðkunnanlegt að þetta komi óformlega frá ráðh. og án þess að um það sé nokkuð vitað að öðru leyti. Fyrst er nú a.m.k. að ganga svo frá skattalögunum að skapleg geti talist, áður en þinghlé kemur til alvarlegrar umræðu.