18.02.1980
Neðri deild: 38. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 819 í B-deild Alþingistíðinda. (894)

44. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að spyrja: Er eðlilegt að menn, sem njóta lífeyrisgreiðslna úr lífeyrissjóði ráðherra, úr lífeyrissjóði alþingismanna og úr lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna og fá greiðslur úr öllum þessum þremur sjóðum samtímis, eins og mörg dæmi eru um, fái allar sínar greiðslur dregnar frá skatti? Auðvitað svara allir sanngjarnir menn slíkri spurningu neitandi. Þetta sýnir að till., sem við höfum fengið einn eða tvo klukkutíma til að skoða hér er flausturslega samin og þarfnast nánari athugunar.

Ég tel alveg sjálfsagt að þetta mál verði í heild sinni athugað á næstu vikum og skoðun gerð á því, hvort það geti komið til greina við þá breytingu sem fyrirhuguð er, en að afgreiða málið nú á þennan flausturslega og vanhugsaða hátt tel ég fráleitt og því segi ég nei.